Síða 1 af 1

Fx 5900 ultra vs Radeon 9800 pro

Sent: Lau 09. Ágú 2003 21:02
af Skrekkur
Þetta er alveg að gera mig geðveikan, nú er ég búinn að skoða mjög mikið af reviews um þessi kort og þau eru ekki sammála um allt, Fx er hraðara í sumu en hitt er hraðara í öðru, fx er hraðara í FSAA 4x en það er samt eitthvað ljótara á fx en ATI. Nýjustu driverarnir svindla eitthvað í hinu og þessu, og ég á enn eftir að finna algera raunniðurstöðu úr því.

Ég óska því eftir álitum og commentum á þetta (verð á íslandi Radeon 9800- verð 50300) fx 5900 ultra 57000

Sent: Lau 09. Ágú 2003 21:17
af Voffinn
Pældu aðeins í þessu, þú ert að fara eyða 50.000 í skjákort.

Sent: Lau 09. Ágú 2003 21:19
af GuðjónR
Biddu þangað til verðin á þessu fara niður fyrir 20k...

psycho

Sent: Sun 10. Ágú 2003 00:38
af Skrekkur
Heh bíða eftir að þau fari niður fyrir 20 k, að mínu mati er það óttalegt sorp sem kostar núna 20 k , ég er nýbúinn að uppfæra allt annað og er á radeon 9000 sorpi, ég ætla mér að kaupa kort sem endist ágætlega í 2 ár og verður übergott. hvorki nvidia né ATI eru búin að plana eitthvað stórt fyrir jól þannig að þetta mun hvorki lækka mikið á næstunni né verða eitthvað mikið verra en annað. þessi skjákort munu amk. þrefalda rammafjöldann minn í flestum leikjum þannig að þá mun ég verða sáttur.

ég veit að 50 kall er mikið fyrir skjákort en þetta er eitt af mikilvægustu hlutunum í tölvunni og ég ætla ekki að spara við þann hlut, ég hef aldrei átt "übertölvu" og langar slatta að gera það núna, ætla að plana nú að gera svona geðveikar uppfærslur á ca 2-3 ára fresti og gera það almennilega en ekki vera með neitt svona hálfkárt

Sambandi við verðlækkanir hér heima, þá td var radeon 9700 lengi á 50 þús kall og var það allt síðasta sumar og er ekki enn komið niður fyrir 30 þús kallinn og mun sennilega ekki gera það því það er hætt að framleiða það og 9800 að koma alfarið í staðin.

En ég var nú frekar að leita að svona alvöru commentum á kortin en ekki bara staðfestingu á því að ég er geðveikur :)

takk fyrir samt að svara þessu og vonandi getiði sett eitthvað málefnalegra fram :8)

Sent: Sun 10. Ágú 2003 02:11
af gumol
Ég veit ekki afhverju en ég myndi allavega velja nvidia.
Þetta eru annars mjög svipuð kort, bara nota ugla sat á kvisti. :)

Sent: Fim 14. Ágú 2003 16:05
af Fletch
Skrekkur, keyptu bara 9700 Pro og yfirklukkaðu það langleiðina í 9800, sparar pening á því... enda ekki svo mikill munur á 9800 og 9700

Fletch

Sent: Mið 20. Ágú 2003 18:45
af Hlynzi
Talandi um dýr skjákort.

Ég verslaði mér Asus V8460 ultra um daginn, fyrir rúmar 30k á netinu, en hérna kostaði það 70k ca. Þetta kort er alveg frábært, Gf4 Ti4600, með 128mb í minni.

Sent: Mið 20. Ágú 2003 19:20
af halanegri
Ertu ekki að grínast? 70k fyrir Ti4600

Sent: Lau 23. Ágú 2003 10:06
af Hlynzi
Hér á landi. Þegar það var alveg það nýjasta af því nýjasta, ég sparaði mér 35k bara með því að fá þetta að utan, og ég fékk þetta á góðu prísi.