Síða 1 af 1
uppfærsla hvernig líst ykkur á ?
Sent: Þri 31. Okt 2006 12:10
af BrynjarDreaMeR
Sent: Þri 31. Okt 2006 12:23
af Yank
Þetta er glatað, það vantar X6800

Sent: Þri 31. Okt 2006 12:38
af Tjobbi
Ekki eru þetta nú gáfuleg skjákortakaup fynnst mér
dx10 á næsta leyti. Frekar bara að kaupa sér 7900GT eða ódýrara og bíða

?
Sent: Þri 31. Okt 2006 13:48
af Ripper
þú kaupir ekki tvö svona kort... annað kortið þarf að vera CrossFire Edition svo að þau gangi saman

Sent: Þri 31. Okt 2006 13:51
af MuGGz
tilhvers í ansk.. að uppfæra þessa vél sem þú ert með ?
uppfærðu bara skjákortið þitt og þá ertu alveg meira enn vel settur í bili ...
Sent: Þri 31. Okt 2006 16:28
af BrynjarDreaMeR
nei ég ætla að taka heila klabbið svo verður þetta aldrei fyrr en eftir manuð
hvenær koma dx10 ut
Sent: Þri 31. Okt 2006 17:33
af Tjobbi
MuGGz skrifaði:tilhvers í ansk.. að uppfæra þessa vél sem þú ert með ?
uppfærðu bara skjákortið þitt og þá ertu alveg meira enn vel settur í bili ...
Sumir vilja bara intel mussle

ekkert að því

Sent: Mið 01. Nóv 2006 11:54
af BrynjarDreaMeR
Já maður er að fara fá sér intel Mucsle
Sent: Mið 01. Nóv 2006 12:22
af ÓmarSmith
glæsilegt að fara í Core 2 duo.
en þú hefur EKKERT að gera með 2 svona skjákort. Ég er með 1 X1900XT og það ræður leikandi við allt í botni í dag.
DX10 kortin eru að fara að detta inn svo að líklegast væri gáfulegt fyrir þig ða bíða með skjákortið. Það eru líka engir leikir á næstunni að koma út sem þurfa svona gríðarlegt power.
DX10 kortin eiga að koma í nóv/des hingað. En ath . Að þú getur ekkert nýtt DX10 effecta fyrr en að Vista kemur út því XP keyrir BARA á DX9. OG það er engin sérstakur stuðningur á leiki og DX10 í BETA útg. af Vista.
Sent: Mið 01. Nóv 2006 21:42
af BrynjarDreaMeR
þá held ég að ég geymi skjákortið
Sent: Mið 01. Nóv 2006 23:37
af kristjanm
Hvaða DX10 kort eiga að koma hingað í nóv/des?
Ég hef ekki séð review af einu einasta korti svo að þau eru ekki tilbúin ennþá, efa soldið að þau séu á leiðinni hingað í þessum mánuði eða næsta.
Ég er samt sammála því að það sé sniðugra að bíða eftir þeim. Að eyða 100þús kalli í einhver tvö skjákort til þess að eiga örugglega það nýjasta og besta er bara fáránlegt. Hvað ætlaru að skemmta þér alveg geðveikt vel við að keyra 3dmark aftur og aftur?
Sent: Fim 02. Nóv 2006 10:30
af corflame
nvidia 8800 á að koma hingað. Verst að verðið er bara rétt um $800...
Sent: Fim 02. Nóv 2006 12:29
af ÓmarSmith
GTX útgáfan er dýrari já.
En Gt af 8800 er undir 500 dollurum minnir mig.
Sent: Fim 02. Nóv 2006 14:13
af corflame
Svo var ég að sjá mynd af kortunum, þetta er með 2 auka power plöggum og alveg
hrikalega langt, þannig að þetta passar ekki í næstum því alla kassa.
Myndi t.d. ekki komast fyrir í mínum kassa.
http://www.theinquirer.net/default.aspx?article=35499
Sent: Fim 02. Nóv 2006 14:22
af hsm
MuGGz skrifaði:tilhvers í ansk.. að uppfæra þessa vél sem þú ert með ?
uppfærðu bara skjákortið þitt og þá ertu alveg meira enn vel settur í bili ...
Það er alveg merkilegt hvað það getur farið í taugarnar á mörgum þegar menn eru að eiða peningum í vitleisu

en hvað er málið, við erum Íslendingar og verðum að sætta okkur við það.
Ég vitna nú bara í bílaflotan okkar og íbúðarkaupin sem eru farinn úr böndunum bara af því að allir gátu fengið lán þá bara kaupa kaupa og skiftir ekki máli hvað þarf að borga.
Ég er allavegna þannig að þegar ég er búinn að fá það sem mig langar í tölvuna mína þá langar mér bara í eitthvað annað í tölvuna

það hættir alldrei
En það sem bjargar mér frá því að verða alveg geðveikur er að ég er hálfur Færeyingur hehe

Sent: Fim 02. Nóv 2006 15:35
af ÓmarSmith
Pff..
Helv.. Poolari

Sent: Fim 02. Nóv 2006 15:58
af Stebet
kristjanm skrifaði:Hvaða DX10 kort eiga að koma hingað í nóv/des?
Ég hef ekki séð review af einu einasta korti svo að þau eru ekki tilbúin ennþá, efa soldið að þau séu á leiðinni hingað í þessum mánuði eða næsta.
Ég er samt sammála því að það sé sniðugra að bíða eftir þeim. Að eyða 100þús kalli í einhver tvö skjákort til þess að eiga örugglega það nýjasta og besta er bara fáránlegt. Hvað ætlaru að skemmta þér alveg geðveikt vel við að keyra 3dmark aftur og aftur?
G80 (Nvidia) kemur víst út 8. nóv. Ætli það verði ekki komið í einhverju magni hingað á klakann í desember þá ef það er eitthvað að marka þesa 8. nóv dagsetningu.
Sent: Fim 02. Nóv 2006 15:59
af gnarr
Þetta er alveg vel innan allra ATX staðla.
Sent: Fim 02. Nóv 2006 16:10
af corflame
Má vel vera, en hjá mér þá er svona diskabúr alveg við endann á móðurborðinu sem þýðir að þetta kort passar ekki í mínu tilfelli.
Sent: Fim 02. Nóv 2006 18:29
af hsm
ÓmarSmith skrifaði:Pff..
Helv.. Poolari

Ekki bjóst ég við þessu frá þér ÓmarSmith HeHe

humm já eða þannig.
Af hverju getur þú ekki verið líkari frænda þínum Alan Smith hann elskar Pollara
