Síða 1 af 2

Tölva frýs í leikjum

Sent: Lau 14. Okt 2006 17:34
af Ingvi
Sælir, ég og vinur minn erum að reyna að finna út af hverju tölvan hans crashar alltaf í leikjum. Það gerist þannig að allt í einu heyrist eitthvað asnalegt hljóð og allt frýs á skjánum, þetta kemur bara fyrir í leikjum!. Fyrir stuttu komumst við að því að þegar hann var að fikta í kassanum hafði hann óvart snúið 1 viftunni vitlaust þannig að allar blésu út... er það eitthvað sem getur skemmt tölvuna? Svo þegar hann installaði driverum fyrir skjákortið stendur að það sé eitthvað ekki í lagi fyrir Windows XP Logo og spurt hvort að hann vilji halda áfram eða hætta við :? . Hann er að vísu að nota frekar gamlann Windows XP Home Edition disk sem fylgdi með Dell tölvunni hans ef það kemur málinu eitthvað við... Þegar hefur líka gerst á LAN-i þar sem hann var með kassann opinn þannig að varla er þetta hitavandamál...

Kveðja, Ingvi

Re: Tölva frýs í leikjum

Sent: Lau 14. Okt 2006 19:03
af Ripper
Ingvi skrifaði:Það gerist þannig að allt í einu heyrist eitthvað asnalegt hljóð og allt frýs á skjánum, þetta kemur bara fyrir í leikjum!

Svipuð vandamál hafa oft verið leyst með að fara í start - run - dxdiag - Sound og lækka þar í no acceleration.

Það er engin hætta á að öfugu vifturnar hafi skemmt eitthvað :wink: og þessi villa sem kemur eftir að þú settir upp skjákortið... er það ekki bara melding um að SLI fítusinn sé óvirkur ?

Sent: Lau 14. Okt 2006 19:14
af gnarr
líklega er það að driverarnir eru ekki WHQL certified eða eitthvað álíka. Bara eins og kemur nánast alltaf þegar maður setur inn drivera.

Re: Tölva frýs í leikjum

Sent: Lau 14. Okt 2006 19:26
af stjanij
Ingvi skrifaði:Sælir, ég og vinur minn erum að reyna að finna út af hverju tölvan hans crashar alltaf í leikjum. Það gerist þannig að allt í einu heyrist eitthvað asnalegt hljóð og allt frýs á skjánum, þetta kemur bara fyrir í leikjum!. Fyrir stuttu komumst við að því að þegar hann var að fikta í kassanum hafði hann óvart snúið 1 viftunni vitlaust þannig að allar blésu út... er það eitthvað sem getur skemmt tölvuna? Svo þegar hann installaði driverum fyrir skjákortið stendur að það sé eitthvað ekki í lagi fyrir Windows XP Logo og spurt hvort að hann vilji halda áfram eða hætta við :? . Hann er að vísu að nota frekar gamlann Windows XP Home Edition disk sem fylgdi með Dell tölvunni hans ef það kemur málinu eitthvað við... Þegar hefur líka gerst á LAN-i þar sem hann var með kassann opinn þannig að varla er þetta hitavandamál...

Kveðja, Ingvi


" Svo þegar hann installaði driverum fyrir skjákortið stendur að það sé eitthvað ekki í lagi fyrir Windows XP Logo og spurt hvort að hann vilji halda áfram eða hætta við :? "

svar: ýttu á continue og sjáðu hvað gerist?

Sent: Lau 14. Okt 2006 21:16
af Ingvi
Svipuð vandamál hafa oft verið leyst með að fara í start - run - dxdiag - Sound og lækka þar í no acceleration.


Prófuðum þetta og þá hætti 5.1 kerfið að virka rétt :( Heyrðist bara í 2 hátölurum

Sent: Lau 14. Okt 2006 21:44
af Ripper
ok en heldur tölvan áfram að frjósa ? :D

Sent: Lau 14. Okt 2006 22:09
af stjanij
posta specca um tölvuna, hvað er í kasssanum ?

Sent: Lau 14. Okt 2006 23:51
af Ingvi
Svipuð vandamál hafa oft verið leyst með að fara í start - run - dxdiag - Sound og lækka þar í no acceleration.


Þetta virkaði ekki :(

Og speccarnir:

Athlon64x2 4200+ Dual Core
2 GB vinnsluminni
400 GB Seagate HD
GeForce 7900 GT 256 MB.

Sent: Sun 15. Okt 2006 08:50
af Yank
Þá eru næstu skref:
ef þau hafa ekki þegar verið framkvæmd.

Uppfæra Win XP í allavega SP1 helst SP2
Uppfæra drivera fyrir: móðurborð, hljóðkort, og skjákort.
Uppfæra DirectX http://www.microsoft.com/windows/directx/default.mspx

Re: Tölva frýs í leikjum

Sent: Sun 15. Okt 2006 10:57
af ManiO
Ingvi skrifaði:Þegar hefur líka gerst á LAN-i þar sem hann var með kassann opinn þannig að varla er þetta hitavandamál...


Finnst skrítið að enginn er búinn að benda á að hafa kassann opinn þýðir ekki alltaf að það kólni inni í honum.

Sent: Sun 15. Okt 2006 12:49
af Heliowin
Hvað með hljóðkorts rekla er það alveg á hreinu?

Sent: Sun 15. Okt 2006 12:54
af Fumbler
Margir leikir í dag eru ekki að virka rétt með Dualcore. En þetta patch frá AMD sem á að laga öll þau vandamál.
AMD Dual-Core Optimizer
AMD.com skrifaði:AMD Dual-Core Optimizer - The AMD Dual-Core Optimizer can help improve some PC gaming video performance by compensating for those applications that bypass the Windows API for timing by directly using the RDTSC (Read Time Stamp Counter) instruction. Applications that rely on RDTSC do not benefit from the logic in the operating system to properly account for the affect of power management mechanisms on the rate at which a processor core's Time Stamp Counter (TSC) is incremented. The AMD Dual-Core Optimizer helps to correct the resulting video performance effects or other incorrect timing effects that these applications may experience on dual-core processor systems, by periodically adjusting the core time-stamp-counters, so that they are synchronized.

Sent: Sun 15. Okt 2006 14:58
af Ingvi
Margir leikir í dag eru ekki að virka rétt með Dualcore. En þetta patch frá AMD sem á að laga öll þau vandamál.
AMD Dual-Core Optimizer


Við prófum þetta.

En þegar maður skannar tölvuna með Driver Detective eru hvorki meira né minna en 9 driverar "out of date". Gæti það verið ástæðan fyrir þessu? Og er ekki nokkuð öruggt að þetta er ekki vélbúnaðurinn þar sem þetta gerist BARA í leikjum, sama hversu stórir eða litlir þeir eru?

Sent: Mið 18. Okt 2006 22:45
af Ingvi
Þetta heldur áfram að gerast :evil:

Búnir að: Formatta
Update-a drivera

Eitthvað fleira sem við getum reynt?

Sent: Fim 19. Okt 2006 09:02
af Ripper
frýs í mörgum leikjum? hvaða leiki ertu að prófa?

Sent: Fim 19. Okt 2006 10:46
af corflame
Ég var að lenda í svipuðu vandamáli, lausnin var að setja ATI skjákort í staðinn :)

Eitthvað incompatibility við þetta nvidia skjákort hjá mér. Allt virkar eitt og sér, en bara í þessari samsetningu hjá mér fraus alltaf annað slagið.

Sent: Fim 19. Okt 2006 15:51
af Ingvi
frýs í mörgum leikjum? hvaða leiki ertu að prófa?


Það undarlega er að þetta er að koma fyrir í bara öllum leikjum sama hversu "léttir" þeir eru. T.d. Capitalism 2, Warcraft 3, FM 2005/6!!! og svo í þyngri leikjum eins og Company of heroes. Frýs aldrei í neinni annari vinnslu, bara leikjum.

Sent: Fim 19. Okt 2006 16:13
af Ripper
gæti verið skjákortið að ofhitna. Gallað eða viftan stopp á því

Sent: Fim 19. Okt 2006 16:16
af corflame
Eitt atriði enn, er nógu stór spennugjafi í vélinni?

Sent: Fim 19. Okt 2006 17:39
af Ingvi
Aflgjafinn er 420 W. og þetta er enginn rosavél, held að hann sé nógu stór.
Svo er þetta líklega ekki skjákortið, amk. sýnir SensorsWiew enga ofhitnun á því.

Sent: Fim 19. Okt 2006 17:51
af Heliowin
Gæti verið að eitthvað athugavert sé með minnið?

Sent: Fim 19. Okt 2006 17:55
af Ingvi
Veit ekki... prófaði eitthvað MemTest og þar var enginn error. Er eitthvað annað sem getur athugað það?

Sent: Fim 19. Okt 2006 18:06
af Heliowin
Ertu búin að prófa AMD plásturinn sem Fumbler minntist á?

Sent: Fim 19. Okt 2006 18:15
af Ingvi
Já, og það virkaði því miður ekki :(

Sent: Fim 19. Okt 2006 18:33
af Mazi!
hvernig móðurborð er í vélini?