Síða 1 af 1

munur á 7900gtx og 7950gx2 ?

Sent: Fös 06. Okt 2006 19:03
af hsm
Segið mér er 7950gx2 kortið tvö 7900gt eða tvö 7900gtx kort eða hvaða örri er á því, vitið þið það (já heimskuleg spurning að sjálfsögðu vitið þið það) :oops:

Sent: Fös 06. Okt 2006 22:33
af Yank
Nvidia 7950X2 er kort með 2 7950GT vpu. Keyrir á 500 core og 1200 mem 1GB af því.
Það er ekki jafn öflugt og 2x7900GTX í SLI.

Sent: Lau 07. Okt 2006 15:51
af stjanij
það er ekkert mál að yfirklukka GX2 kortið í 600/800 sem er betra en 7900GTX SLI.

Lengi lifi ATI :8)

Sent: Lau 07. Okt 2006 18:13
af ÓmarSmith
True.. hættu að skoða Nvidia .

Taktu X1900XT eða X1950 kort.

Verður klárlega sáttur.

Sent: Fim 12. Okt 2006 12:57
af hsm
Hef reindar alltaf verið ATI maður en þarf ég þá ekki að fá mér nýtt móðurborð ef að ég vill nota CrossFire

Sent: Fim 12. Okt 2006 16:42
af gnarr
afhverju myndiru vilja nota crossfire? og fyrst þú ætlar að eyða 100.000kalli í skjákort, er þá ekki í lagi að eyða 10.000kalli í móðurborð í leiðinni?

Sent: Fim 12. Okt 2006 20:30
af stjanij
rétt hjá gnarr, enn hvað ætlaðu að nota í crossfire í dag?

Sent: Fim 12. Okt 2006 20:37
af Tjobbi
stjanij skrifaði:rétt hjá gnarr, enn hvað ætlaðu að nota í crossfire í dag?


Ömm til að tengja tvö ATI skjákort saman? :roll:

:lol:

Sent: Fim 12. Okt 2006 21:50
af hsm
gnarr skrifaði:afhverju myndiru vilja nota crossfire? og fyrst þú ætlar að eyða 100.000kalli í skjákort, er þá ekki í lagi að eyða 10.000kalli í móðurborð í leiðinni?


stjanij skrifaði:rétt hjá gnarr, enn hvað ætlaðu að nota í crossfire í dag?


Þið eruð snillingar fyrir það fyrsta þá sagðist ég ekki ætla að nota CrossFire heldur var ég að spyrja hvort að ég þarf ekki nýtt móðurborð ef að ég ætla að nota CrossFire.
( er reindar búinn að fá svar við því )

Og svo skiftir það ekki máli hvort að ég sé með 500Hp bíl til að komast í vinnuna þó svo að ég geti hjólað þangað.
Þetta er spurning um að vera með dellu og það kostar alltaf peninga og oft eiðir maður í óþarfa hluti en ég vona að þó að ég fái mér tvö 1950xtx kort vatnskælingu og allskonar óþarfa hluti til að geta verið á netinu og skrifað hér á vaktina og kanski skoðað tölvupóst að það gangi ekki fram af ykkur.

Og Gnarr þú sem ert allveg svell skír, ekki hneikslast á vitleisunni í öðrum.
Það eru margir sem ganga í 20.000kr gallabuxum þegar 2000kr gallabuxur gera sama gagn. Þykir bara ekki eins töff :D

Sent: Fös 13. Okt 2006 04:18
af gnarr
þá ættiru ekki að hafa áhyggjur af auka tíkalli í móðurborð..

Annars var vaktin upprunalega stofnuð fyrir fátæka aumingja sem að tíma ekki nema lágmarki í vélbúnað.. svo að það er svolítil kaldhæðni í því að annarhver maður hér sé að kaupa sér skjákort fyrir næstum 6 stafa tölur..

Sent: Fös 13. Okt 2006 09:49
af hsm
engar áhyggjur hér, ég er nefninlega í rétta liðinu :8)
Gnarr þetta var bara spurning, svo er ég ekki ríkur en á reindar svolítið of seðlum núna svo að ég vildi bara "fjárfesta" þeim í tölvubúnaði áður en að ég eiði þeim í vitleisu :lol:
En ein spurning í viðbót því að ég er að velta fyrir mér tveim möguleikum.

1. Fá mér ASUS P5W DH Delux og Conroe E6600 + 2GB minni um 80.000kr

2. Halda MSI K8N Diamond móðurborðinu og fá mér Athlon64 X2 4800+ (er með 3000+) og Sapphire ATI Radeon X1950 XTX 512MB GDDR4 PCI-Express skjákort (er með 6600GT) um 80.000kr

Nota tölvuna mest í heimasíðugerð Photoshop AutoCad og svoleiðis ekki neina video vinnslu eða svoleiðis en hef gaman að því að grípa í leiki einstaka sinnum.

Sent: Fös 13. Okt 2006 11:19
af ÓmarSmith
Byrjaðu bara á því að setja Tappa í Liverpool :8)

Þá eru þér allir vegir færir.

Og Gnarr, Liverpool er smurálegg á brauð ;)

Þykir nokkuð vinsælt í englandi í dag.

Sent: Fös 13. Okt 2006 11:46
af hsm
ÓmarSmith skrifaði:Byrjaðu bara á því að setja Tappa í Liverpool :8)

Þá eru þér allir vegir færir.

Og Gnarr, Liverpool er smurálegg á brauð ;)

Þykir nokkuð vinsælt í englandi í dag.


Ég veit að Alan Smith er frændi þinn en ég hélt að við vorum búnir að ræða þetta :8)

Þegar ég segist vera í rétta liðinu þá á ég ekki við Liverpool, því að ég er ekki í Liverpool ég held bara með því.

Ég er í rétta liðinu því að ég geng með Guði og allir sem eru með honum eru í rétta liðinu :lol:

Og það besta við það er að hann heldur með LFC hehe :D

Sent: Fös 13. Okt 2006 12:25
af ÓmarSmith
Kræst.

Ef þú ert mormóni eða ætlar að vera með Gunnar í krossinum yfirlýsingar hérna þá verður þú bráðkvaddur af Vaktinni :lol:

ha ha ha

Sent: Fös 13. Okt 2006 12:44
af Blackened
ÓmarSmith skrifaði:Kræst.

Ef þú ert mormóni eða ætlar að vera með Gunnar í krossinum yfirlýsingar hérna þá verður þú bráðkvaddur af Vaktinni :lol:

ha ha ha


En.. en.. gunnar er maðurinn!.. meina.. hann tildæmis sagði okkur að við ættum ekki að bjóða syndinni í kaffi!
..Hvað fleira getum við beðið um?

Sent: Fös 13. Okt 2006 13:15
af hsm
ÓmarSmith skrifaði:Kræst.

Ef þú ert mormóni eða ætlar að vera með Gunnar í krossinum yfirlýsingar hérna þá verður þú bráðkvaddur af Vaktinni :lol:

ha ha ha


Ómar kallin farðu nú varlega í að ásaka menn um eitt og annað.

Ég er ekki í neinum trúarsöfnuði heldur er þetta bara minn guð eins og ég skil hann, en ekki eins og mormonar eða Gunnar skilja hann.
Svo var ég ekki með neinar yfirlýsingar um neitt heldur bara að leiðrétta þig sem virðist leggja allt annan skilning í allt sem ég skrifa, kanski þarf ég bara að skrifa lengri bréf svo að það verði enginn miskilningur á ferðinni :8)

En annars þá þykir mér bara vænt um þig, ert alltaf svo krúttlegur hér á vaktin.is

Sent: Fös 13. Okt 2006 13:23
af ÓmarSmith
Ha ha ha .

Ég held að HSM hafi komist í safnaðarvínið ;)

Sent: Fös 13. Okt 2006 23:34
af gnarr
hsm skrifaði:1. Fá mér ASUS P5W DH Delux og Conroe E6600 + 2GB minni um 80.000kr

2. Halda MSI K8N Diamond móðurborðinu og fá mér Athlon64 X2 4800+ (er með 3000+) og Sapphire ATI Radeon X1950 XTX 512MB GDDR4 PCI-Express skjákort (er með 6600GT) um 80.000kr


Nr.1

AGP kortið þitt gengur ekki í PCIe borð..

Nr.2

X1950XTX gengur ekki í AGP borð..

Svo að þú neyðist til að finna einn eða tvo valkosti í viðbót til að skoða :p

Blackened skrifaði:En.. en.. gunnar er maðurinn!


takk :8)

Sent: Lau 14. Okt 2006 00:30
af Woods
ÓmarSmith skrifaði:Byrjaðu bara á því að setja Tappa í Liverpool :8)

Þá eru þér allir vegir færir.

Og Gnarr, Liverpool er smurálegg á brauð ;)

Þykir nokkuð vinsælt í englandi í dag.


slökum aðeins á Ómar með að drulla yfir Liverpool. annars verðum við að hittast niðri á Hlemmi og ræða þetta frekar :)

Sent: Lau 14. Okt 2006 16:04
af ÓmarSmith
Ég hef ekkert á móti guði eða neinni trú og finnst asnalegt þegar fólk er að drulla yfir trú hjá fólki ;)

Ég get hinsvegar ganntast með allt, og sérstaklega ofsatrúa og aðra kjána.

já og Gunnzi talaði um að bjóða syndinni í kaffi .. Flott mál Ég er með þetta sem hringingu í símanum mínum.. hehe


Já og til hamingju Poolarar .. 1-1 við Blackburn í dag :8)

Í hvaða sæti eruð þið í deildinni ? ..thihihi

Sent: Fim 19. Okt 2006 11:58
af hsm
gnarr skrifaði:
hsm skrifaði:1. Fá mér ASUS P5W DH Delux og Conroe E6600 + 2GB minni um 80.000kr

2. Halda MSI K8N Diamond móðurborðinu og fá mér Athlon64 X2 4800+ (er með 3000+) og Sapphire ATI Radeon X1950 XTX 512MB GDDR4 PCI-Express skjákort (er með 6600GT) um 80.000kr


Nr.1

AGP kortið þitt gengur ekki í PCIe borð..

Nr.2

X1950XTX gengur ekki í AGP borð..

Svo að þú neyðist til að finna einn eða tvo valkosti í viðbót til að skoða :p

Blackened skrifaði:En.. en.. gunnar er maðurinn!


takk :8)


Já undirskriftinn er vitlaus hjá mér þarf að laga það.
En ég nefndi að ég er með K8N Diamond móðurborð sem er PCIe SLI móðurborð og er með PCIe 6600gt 128mb skjákort í því svo að fyrirspurnin er rétt. :D