Síða 1 af 2
Vantar álit á þessujm 20" LCD skjám :)
Sent: Fim 05. Okt 2006 12:23
af hsm
þeir mega ekki vera mikið dýrari en 50.000-60.000 kr
Hef verið að skoða þessa.
ViewSonic 20.1" LCD VX2025wm, 8ms, Widescreen 1680x1050
Samsung 205BW 20.1" 5ms 800:1 LCD, Widescreen
20 Acer AL2051W TFT Gamers LCD skjár
Og jafnvel þessi ef að hann er þess virði
Samsung SyncMaster 215TW 21" Widescreen
Væri til í að fá ykkar álit á þessu það skiftir mig mikklu máli hvað ykkur fynst
Kveðja HSM
Sent: Fim 05. Okt 2006 12:31
af Blackened
Ég er með Samsung 205BW og ég er mjöög sáttur við hann.. er búinn að eiga hann í viku núna
Bjartur og góður og ég verð ekki var við neitt backlight
ég hef allavega ekkert nema gott um þennan skjá að segja
Sent: Fim 05. Okt 2006 13:19
af hsm
Ég veit svo sem ekki mikið um þessa skjái en ég veit að ACER skjárinn er mjög góður en ég er ekki nógu ánægður með hvað það speglast mikið í honum það má ekki vera lítið ljós eða gluggi þá er maður með sterka mynd af því í skjánum, en annars er hann mjög skír við réttu aðstæðurnar.

Sent: Fim 05. Okt 2006 15:59
af ÓmarSmith
ég ELSKA ACer skjái. Crystal Brite er fáránlega heitt stöff.
Er með í dag Samsung 205BW og hann er reyndar alveg magnaður. Skýr og flottur, ekkert backlight sem Acer er með.
Svo spillir ekki fyrir hvað hann kostar lítið. 40.000 kall er alveg vel þess virði.
Myndi halda hann væri betri en Acerinn í myndvinnslu amk. Hef heyrt að Gamers Acerarnir séu ömurlegir þar en þeir eru klárlega yndislegir í leikina.
Ég reikna með að halda mig við Samsunginn amk eitthvað áfram.
Sent: Fim 05. Okt 2006 16:29
af marri87
Ég las review um Samsung SyncMaster 215TW og viðkomandi sagði skjárinn væri algjör draumur. Tengimöguleikarnir eru óendanlegir, mæli með því að skoða greinina
http://www.trustedreviews.com/article.a ... 267&head=0
Sent: Fim 05. Okt 2006 20:08
af hsm
Takk marri87 þetta virðist vera góð græja ef að það er eitthvað að marka þetta reviews
Ég mun nota skjáinn að mestu í heimasíðugerð, Photoshop og AutoCad,
og að sjálfsögðu til að skoða VAKTINA.
En ég gríp stundum í leiki líka en er samt að hugsa þetta sem vinnu skjá en ekki leikja skjá.
Það munar tildæmis ekki mikið á verði á 215TW skjánum(64.990kr) og ViewSonic skjánum(59.900kr) en 215TW fær mikklu betri dóma
Sent: Fim 05. Okt 2006 21:57
af ÓmarSmith
Acer Gamers er held ég ekki sá besti í Photoshop og autocad og þessháttar en alveg Deeraumur í leikina.
Samsung skjáir eru góðir all over.
Viewsonic skjárinn er held ég meira huxaður í multimedia og leikjaspilun en myndvinnslu.
Ég myndi íhuga þennan 21" Samsung skjá.
Sent: Fim 05. Okt 2006 22:08
af Birkir
Ómar, hvað er „max fps“ með vsync on á Samsung skjánum?

Sent: Fös 06. Okt 2006 01:01
af ÓmarSmith
who gives a flying rats ass .
Flestir LCD skjáir eru 60-75HZ en ég hef aldrei notað V sync þannig að.
Hef aldrei lennt í vandræðum með neina leiki sem ég hef spilað so far þannig að reyktu þessa hugmynd þína

Sent: Fös 06. Okt 2006 12:18
af Birkir
Mér þykir mun betra að nota vsync..
Einhvers staðar heyrði ég að það væri hægt að nota þessa aðferð til að reikna út Hertz:
1000 / response time (í ms) = Hz
T.d. 1000 / 8ms = 125Hz.
Er þetta bara vitleysa?
Notast framleiðendur kannski alltaf við „Gray to gray“ mælingar þegar þeir segja til um response time?
Sent: Fös 06. Okt 2006 12:33
af ÓmarSmith
Ertu með LCD Birkir ?
En hvað sem öllu þessu líður.
Ef ég er með nógu öfluega vél til að keyra allt í mígandi botni í max upplausn og verð ekki var við neitt lagg eða lélegt FPS þá er mér alveg sama hvernig ég stilli skjáinn.
Held að flestir séu sammála. Það væri ekki fyrr en maður verður var við lagg // hökt , sem að maður færi að skoða þessar V sync stillingar eitthvað frekar.
Sent: Fös 06. Okt 2006 14:26
af goldfinger
Hef prófað þennan viewsonic skjá, mjög góður. Myndi skella mér á eintak ef ég hefði efni á því
Sent: Fös 06. Okt 2006 14:33
af gnarr
ÓmarSmith skrifaði:Það væri ekki fyrr en maður verður var við lagg // hökt , sem að maður færi að skoða þessar V sync stillingar eitthvað frekar.
þú hefur greinilega ekki hugmynd um hvað vsync gerir...
Sent: Fös 06. Okt 2006 16:59
af appel
Þú getur leitað að þessum skjám á pricegrabber.com, þar finnur þú dóma og reviews frá þeim sem hafa keypt svona skjá.
Sent: Fös 06. Okt 2006 18:23
af audiophile
Mæli hiklaust með Samsung skjám.
Sent: Fös 06. Okt 2006 18:39
af hsm
Fór og ætlaði að skoða Samsung SyncMaster 215TW 21" hjá Start í dag en hann er uppseldur og kemur kanski aftur eftir 2-3 vikur þeir vissu það ekki alveg
En vitið þið hvort að það sé hægt að fá hann á fleiri stöðum en í Start ?
Sent: Lau 07. Okt 2006 14:53
af Woods
gnarr skrifaði:ÓmarSmith skrifaði:Það væri ekki fyrr en maður verður var við lagg // hökt , sem að maður færi að skoða þessar V sync stillingar eitthvað frekar.
þú hefur greinilega ekki hugmynd um hvað vsync gerir...
Ef .þér Finnst of mikið TEARING í leiknum sem þu ert að spila Omar , þá notarðu V-syncið
Þá hverfur það en FPS lækkar alltaf eitthvað
Sent: Lau 07. Okt 2006 14:55
af Woods
Birkir skrifaði:Ómar, hvað er „max fps“ með vsync on á Samsung skjánum?

Ómar, hvað er „max fps“ með vsync on á Samsung skjánum? Razz
Fer eftir hvað þú ert með öflugt kort
Sent: Lau 07. Okt 2006 18:12
af ÓmarSmith
Síðast þegar ég vissi þá er Vsync tól sem hleypir Skjánum ekki í hærri tíðni en hann ræður við.
eða þá sýnir ekki fleiri ramma en HZ í skjánum segja til um.
Ekki segja mér að þetta sé ekki nokkuð rétt.
Sent: Lau 07. Okt 2006 21:46
af Woods
ÓmarSmith skrifaði:Síðast þegar ég vissi þá er Vsync tól sem hleypir Skjánum ekki í hærri tíðni en hann ræður við.
eða þá sýnir ekki fleiri ramma en HZ í skjánum segja til um.
Ekki segja mér að þetta sé ekki nokkuð rétt.
Rangt Sorry
Sent: Sun 08. Okt 2006 16:16
af Birkir
Woods skrifaði:Birkir skrifaði:Ómar, hvað er „max fps“ með vsync on á Samsung skjánum?

Ómar, hvað er „max fps“ með vsync on á Samsung skjánum? Razz
Fer eftir hvað þú ert með öflugt kort
Auðvitað átti ég við „svo lengi sem kortið stoppar þig ekki“..
Ómar: Nei, ég er ekki með LCD skjá, en í gegnum tíðina hef ég alltaf getað stillt CRT skjáinn minn á 100 Hertz og spilað leiki með vsync á og fps í 100..
Sent: Sun 08. Okt 2006 17:55
af gnarr
það fer eftir því hvað skjákortið ræður við stórann buffer. ef þú ert með triple buffering, þá ætti leikurinn að keyra nokkuð nálægt 60fps (með skjáinn stilltann á 60hz) í flestum tilvikum, en ef þú ert double buffering, þá ætti það að vera kringum 30fps í flestum tilvikum.
Sent: Sun 08. Okt 2006 20:35
af Birkir
En hversu hátt kem ég skjánum?
Er það bara 60Hz?
Sent: Mán 09. Okt 2006 11:03
af gnarr
flestir skjáir fara uppí 75Hz. Annars eru til skjáir sem fara miklu hærra. Þetta er bara spurning um hvað stýringin í skjánum ræður við mikla input tíðni.
Sent: Mið 22. Nóv 2006 21:43
af andr1g
Vill ekki vera að inveida þráðinn þinn hérna en mig vantar einnig 20" LCD skjá á verðbilinu 30-60.000 og ég nota tölvuna aðallega í leiki (fyrir utan almenna notkun eins og Internetið/MSN osfv) einnig er stór gluggi fyrir aftan mig ef það skiptir einhverju.
Einnig hvernig er þetta, ætti maður að vera að fá sér widescreen skjá? Hvernig er það í sambandi við leikina og er það óþægilegra við almenna notkun (semsagt teygt osfv?)