Síða 1 af 1

Hjálp með val á LCD skjá

Sent: Mið 27. Sep 2006 21:14
af Blackened
Nú langar mig í nýjan lcd skjá þarsem að gamli minn 17" er ekki alveg að gera sig þessa dagana

Ég var að spá í 20.1 tommu skjáunum hjá Kísildal og var ég þá aðallega að spá í því hver munurinn væri á þessum 2 :

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=216

og

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=294

Sé auðvitað að annar þeirra er WideScreen en ég var að spá í því hvort að þessi 10þús króna verðmunur væri réttlætanlegur?

Mun aðallega nota þetta í almenna desktop vinnslu og auðvitað eitthvað í leikjaspilun.. þó að það verði ekki aðalmálið

Líka ef að þið vitið um aðra skjái annarstaðar á svipuðu/minna verði þá megiði endilega benda mér á þá

Með fyrirfram þökkum
Blackened

Sent: Mið 27. Sep 2006 22:29
af ÓmarSmith
Wide Screen er klárlega framtíðin. Ég er sjálfur með Þennan 205BW og verð að segja að verðið á honum er fáránlega gott !!

eini munurinn sem ég get séð á þeim er að WS er í 1680 x 1050 upplausn en hinn er í 1600x1200.

Widescreen skjárinn er yndislegur í leiki og videogláp.


Myndi ekki einu sinni hugsa mig um.

Sent: Mið 27. Sep 2006 22:50
af Mazi!
Einhver ACER þeir eru bestir!

Sent: Mið 27. Sep 2006 23:27
af ÓmarSmith
Segir hver ?


Þeir eru reyndar með Crystalbrite sem ég persónulega sakna í Samsung, En Samsunginn býður upp á margfalt fleiri litabrigði og stillingar og er mun betri í myndvinnslu alveg klárlega.

Annars skaltu ekki vera að alhæfa neitt litli kall :8)


Samsung - Acer Gamers - Viewsonic VX eða VP - Nec

Allt eru þetta mjög góðir skjáir .

Sent: Mið 27. Sep 2006 23:47
af Mazi!
ÓmarSmith skrifaði:Segir hver ?


Þeir eru reyndar með Crystalbrite sem ég persónulega sakna í Samsung, En Samsunginn býður upp á margfalt fleiri litabrigði og stillingar og er mun betri í myndvinnslu alveg klárlega.

Annars skaltu ekki vera að alhæfa neitt litli kall :8)


Samsung - Acer Gamers - Viewsonic VX eða VP - Nec

Allt eru þetta mjög góðir skjáir .


er farinn aftur í skammakrókinn :lol:

Sent: Fim 28. Sep 2006 11:18
af audiophile
Mæli alveg sterklega með 204B skjánum. Fékk minn fyrir helgi og hann er rosalega bjartur, skarpur og það sem betra er, hann er gjörsamlega nothæfur á öðru en native resolution, sem er snilld. Flestir LCD sem ég hef prófað verða blörraðir og texti pixlaður þegar hann er á annarri upplausn en native, ekki þessi.

Færð hann hérna 10.000 ódýrari en í Kísildal, http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1347

Að spila í 1600x1200 er bara snilld :D

Sent: Fim 28. Sep 2006 12:30
af ÓmarSmith
1680x1050 toppar það ;)

Widescreen er klárlega málið .

Flestir ef ekki allir leikir til að mynda styðja WS í dag og ef Ekki þá er minnsta málið að "haxa" það með einföldum command línum.

Ég amk get ekki huxað mér að fara aftur í "raunstærðir" eftir að hafa prufað Widescreen.

Næst verður það 23" eða 24" .

Sent: Fim 28. Sep 2006 12:36
af Blackened
Já.. takk fyrir álitin.. ég hugsa að ég skelli mér bara á WS skjáinn eins og Smith mælir með..

Efast ekkert um að það sé algjör snilld :)

Sent: Fim 28. Sep 2006 13:39
af audiophile
Já þú verður ekki vonsvikinn. Þetta er sami skjár og minn bara í widescreen. Fantagóð græja.

Sent: Fim 28. Sep 2006 15:11
af SolidFeather
Widescreen, best í heimi!

Sent: Fim 28. Sep 2006 21:26
af Blackened
búinn að panta.. ahh.. 7900gt og 20.1" WideScreen eftir helgi..

:shock: ég hugsa að ég verði veikur alla næstu viku :lol:

Sent: Fös 29. Sep 2006 01:33
af Ragnar
Ég var að fá mér Samsung 244t 24" WS og þetta eru örugglega bestu kaup sem ég hef gert 100.000kr vel eitt.

Sent: Fös 29. Sep 2006 09:46
af ÓmarSmith
Blackened skrifaði:búinn að panta.. ahh.. 7900gt og 20.1" WideScreen eftir helgi..

:shock: ég hugsa að ég verði veikur alla næstu viku :lol:



ha ha ha

"veikindafrí"

Sent: Lau 30. Sep 2006 15:25
af Blackened
Fékk skjáinn í gær..

Flottur skjár.. en ég hef ekki haft tækifæri til að nota hann neitt því að tölvan mín er í rugli eins og er..

Held að það séu vinsluminnin eða eitthvað.. allavega þá fékk ég nýtt skjákort.. 7900gt og ég setti það í og formattaði vélina.. og núna þegar ég boota þá fæ ég alltaf BSOD

Reyndar var ég búinn að vera að fá þennan sama BSOD reglulega af og til í 2-3 vikur.. hélt að það væri bara einhver villa í stýrikerfinu eða eitthvað og nennti voða lítið að spá í því
Villan sem ég fæ:
IRQL_LESS_OR_NOT_EQUAL

Dettur einhverjum í hug hvað þetta gæti verið? búinn að taka alla hdd úr sambandi nema system.. og ég er búinn að prufa minniskubbana eina og sér og þetta kemur alltaf rétt eftir "load screen" sem að kemur rétt á undan Welcome Screen..

Ég get bootað henni í Safe mode af einhverjum ástæðum

Sent: Lau 30. Sep 2006 18:02
af ÓmarSmith
Búinn að uppfæra Bios eða jafnvel núllstilla hann ?

Sent: Lau 30. Sep 2006 18:06
af Blackened
Heyrðu.. ég lagaði þetta.. ég formattaði bara uppá nýtt og setti upp gömlu chipset og móðurborð driverana sem að fylgdu með móbóinu.. og þá virkar þetta allt smooth

STÓR SKJÁR! ;D

Játakkk! Game-on!

Sent: Lau 30. Sep 2006 18:09
af Tjobbi
Til hamingju, þessi skjár er algjort monster :wink:

Sent: Lau 30. Sep 2006 18:42
af Blackened
Þakka þér! :)

Sent: Fim 05. Okt 2006 22:00
af ÓmarSmith
Eflaust í Kísildal.

Virkilega smooth verð líka á honum.

39500 er bara grín fyrir svona góðan skjá. !!

Sent: Fim 05. Okt 2006 22:07
af Blackened
Jebb.. fékk hann í kísildal.. mjög góð þjónusta að mínu mati..

Pantaði hann hvað fimmtudag kringum hádegi ef ég man rétt.. það var allavega á fimmtudag..

Og hann var kominn heim til mín á akureyri á föstudagseftirmiðdegi :)

herra guðbjartur hefur greinilega afgreitt skjáinn á methraða og komið honum í póst :D

Sent: Fim 05. Okt 2006 22:14
af Birkir
Hvernig standa málin með dauða pixla hjá ykkur sem eigið svona skjá?
Any?

Sent: Fös 06. Okt 2006 00:08
af Blackened
Enginn dauður pixell hjá mér..

...eða ég hef þá allavega ekki séð hann ennþá