Síða 1 af 1

Sjónvarpsflakkari

Sent: Fös 22. Sep 2006 14:03
af Prowler
Góðann daginn.

Ég verslaði mér þennan http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... Vix_M3100U
fyrir nokkrum dögum.
Ég tók bara gamla 160 samsung HDD minn úr tölvunni og setti í hann.
Sá diskur var ekki aðal diskur á tölvunni minni.

Þegar ég tengi hann við sjónvarpið þá kemur þessi villu melding

Mounting on the hard disk drive was failed
Please check cable connection, partion and format settings.

Ég er búinn að prufa formatta og búa til nýtt partion.
Veit ekki hvað skal gera?


Edit: Bætti við að diskurinn er NTFS formattaður og er nokkuð
að hann sé ATA en ekki sata eins og virkar ekki með Tvix
http://www.samsung.com/Products/HardDis ... P1614N.htm

Sent: Fös 22. Sep 2006 14:11
af ÓmarSmith
Spurning hvort þú þurfir að formatta diskinn áður, myndi halda það.

Hvernig er hann formattaður ? FAT eða NTFS.


Annars lét ég Task sjá um þetta alveg fyrir mig þegar ég fékk mér Rapsody spilarann.

Sent: Fös 22. Sep 2006 14:29
af Prowler
Ég formattaði hann eftir að ég setti hann í boxið.
annars er þetta NTFS

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Fös 22. Sep 2006 15:25
af Ripper
Prowler skrifaði:Ég tók bara gamla 160 samsung HDD minn úr tölvunni og setti í hann. Sá diskur var ekki aðal diskur á tölvunni minni.

Getur verið að diskurinn sé stilltur sem slave? þá býst ég við að þú þurfir að breyta í master

Prowler skrifaði:Edit: Bætti við að diskurinn er NTFS formattaður og er nokkuð
að hann sé ATA en ekki sata eins og virkar ekki með Tvix
http://www.samsung.com/Products/HardDis ... P1614N.htm

Þetta er ekki Seral-ATA diskur það eru allt öðruvísi tengi á þeim. Þú gætir ekki tengt hann í samband :wink:

Sent: Fös 22. Sep 2006 15:52
af Hannesinn
Eins og fleiri, þá myndi ég veðja á vitlausa jumperingu. Ég þurfti að stilla boxið sem ég setti í gang um daginn á master. Sumir diskar, eins og Western Digital, þurfa sérstaka Master/Single jumperingu.

Sent: Fös 22. Sep 2006 20:43
af stjanij
ef þú ert ekki klár hvað er master eða slave taktu þá jumperinn úr og sjáðu hvað gerist

Sent: Fös 22. Sep 2006 23:57
af Prowler
Hann er stilltur á master held ég.

Sent: Lau 23. Sep 2006 00:22
af stjanij
farðu bara til þeirra sem seldu þér græjuna og biddu þá um að sýna þér hvernig þetta virkar og ekki fara, frá þeim, nema að þú sjáir dótið virka.

Sent: Sun 24. Sep 2006 14:16
af Prowler
þetta var vitlaus jumper stilling. Takk fyrir hjálpina