Var að skipta um kassa/psu í tölvunni hjá múttu. Tölvan er ekki alveg sú nýjasta, minnir að móðurborðið sé MSI KT3-Ultra með AMD XP1800+ örgjörva.
Ég keypti þennan kassa hér: http://www.kisildalur.is/?p=2&id=144
Nota bene .... ég hef ekki framkvæmt svona aðgerð á tölvu í örugglega 1-2 ár og er því eiginlega dottinn út úr þessu ....
Svo færi ég allt draslið úr gamla kassanum yfir í þennan nýja. Svo kemur að því að plögga power í móðurborðið, en viti menn, power snúran passar ekki
Myndin sýnir plöggið á móðurborðinu sem ég er að tala um.
Snúran úr PSU-inum er frábrugðin að því leyti að það eru komnir a.m.k 4 pinnar í viðbót og plöggið passar því engan veginn.
Nú spyr ég .... hvenær breyttist þetta eiginlega? Er ekki hægt að fá millistykki á þetta?