Síða 1 af 1
DVD Skrifarar
Sent: Þri 29. Júl 2003 14:21
af Hlynzi
Getið þið sagt mér hvað venjulegur DVD-R .. DVD-RW skrifari kostar ?
(og les þetta ekki venjulega cd. líka ?)
Vegna þess eins og ég póstaði hér áður um "Til Danmerkur" þá ef ég fæ smá aukapening ætla ég sennilega að splæsa í svona tæki.
Sent: Þri 29. Júl 2003 16:50
af MezzUp
ég fór bara á tölvulistinn.is og sá að þar kostaði lægsti DVD skrifarinn 21.000 kall
DVD skrifar skrifa og lesa DVD diska og skrifa og lesa CD diska
ps. menn verða nú aðeins að geta bjargað sér sjálfir......
Sent: Þri 29. Júl 2003 17:41
af Hlynzi
Ástæðan fyrir því að ég er að spyrja er sennilegast sú að ég var um daginn að horfa uppá tækið fyrir 40.000 krónur.
Sent: Þri 29. Júl 2003 18:06
af odinnn
ég er að fara að kaupa mér DVD skrifara frá USA á u.þ.b. 25.000 kall en hann kostar 45þ kall hérna á klakanum.
Sent: Þri 29. Júl 2003 18:13
af Hlynzi
Hvernig skrifari er það ?
Sent: Þri 29. Júl 2003 23:01
af odinnn
Sony DRU-510A (black)
[url]http://bcd2000.com/ItemDesc.asp?CartId={E945CB6B-22F3-48E3-818D-67ACD2DCE94C}&ic=DRU510AOEM[/url] er ekki viss um hvort urlið virki en annas er þetta svarta geisladrifið hérna niðri til hægri
http://www.bcd200.com
Sent: Fim 14. Ágú 2003 18:12
af xark
en hérna er ekki hægt að setja dvd-rip fæla yfir á dvd diska með dvd skrifara ?

Sent: Fös 22. Ágú 2003 09:21
af Hlynzi
xark skrifaði:en hérna er ekki hægt að setja dvd-rip fæla yfir á dvd diska með dvd skrifara ?

Með DVD skrifara geturu afritað dvd mynddiska, en það er alveg jafn ólöglegt og önnur afritun, annars er líka um 5gb af plássi á þessum diskum.
Sent: Fös 22. Ágú 2003 11:04
af gumol
Hlynzi skrifaði:xark skrifaði:en hérna er ekki hægt að setja dvd-rip fæla yfir á dvd diska með dvd skrifara ?

Með DVD skrifara geturu afritað dvd mynddiska, en það er alveg jafn ólöglegt og önnur afritun, annars er líka um 5gb af plássi á þessum diskum.
Ekki til einkanota(t.d. til að hafa 1 afrit í ferðavélartöskunni og annað upprunalegt heima

)