Hef Dead pixel á flatskjá, er þetta virkilega ásættanlegt?

Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Hef Dead pixel á flatskjá, er þetta virkilega ásættanlegt?

Pósturaf Heliowin » Þri 06. Jún 2006 23:23

Varð bara að fá mér flatskjá.
Hvað gerist?
Jú dead pixel við fyrstu sýn.

Hef verið að velta fyrir mér hvort þetta sé virkilega ásættanlegt og googlaði þetta. Og mér sýnist á öllu að þetta líti ekki vel út.

Hafið þið reynslu af því hvað söluaðilar geta gert fyrir mann í slíkum tilvikum.

Ég allavega, sætti mig ekki við að vinna við tölvuskjá með áberandi dead pixel.




Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Þri 06. Jún 2006 23:26

Þetta ætti að falla undir ábyrgð, þetta er í raun galli í vörunni.



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1652
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Þri 06. Jún 2006 23:28

ég veit ekki hvernig er farið með svona mál..

enn fyrir mitt leiti finndist mér glatað ef þetta myndi ekki falla undir ábyrgð ...



Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Þri 06. Jún 2006 23:31

Já ég vona það, ég hef nefnilega bara verið að heyra um vissan fjölda af dauðum punktum sem falla undir ábyrgð.

Takk fyrir.




@Arinn@
Kerfisstjóri
Póstar: 1280
Skráði sig: Þri 03. Maí 2005 18:39
Reputation: 1
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf @Arinn@ » Þri 06. Jún 2006 23:33

Ég myndi virkilega klikkast ef þetta fjélli ekki undir ábyrgð hvernig skjár er þetta og hvar keyptiru hann ?



Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Þri 06. Jún 2006 23:39

Keyptann í dag http://tb.is/?gluggi=vara&vara=5225

Ég held ég sé að verða meir en smáklikkaður.
Síðast breytt af Heliowin á Þri 06. Jún 2006 23:48, breytt samtals 1 sinni.




@Arinn@
Kerfisstjóri
Póstar: 1280
Skráði sig: Þri 03. Maí 2005 18:39
Reputation: 1
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf @Arinn@ » Þri 06. Jún 2006 23:48

Farðu og heimtaðu nýjann.



Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Þri 06. Jún 2006 23:57

@Arinn@ skrifaði:Farðu og heimtaðu nýjann.


Jú ég reyni allavega.
Hvað sem líður framleiðendum, þá er þetta nefnilega alls ekki ásættanlegt.

Það er furðulegt að stríð séu ekki háð vegna þessa, en bara þegar önnur þjóð vill ekki trúa á hin heilögu sakramenti :dissed



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Pósturaf Pandemic » Mið 07. Jún 2006 03:07

Endursöluaðli tekur það á sig ef skjárinn er gallaður og framleiðandi vill ekki taka við vörunni... þetta er galli og samkvæmt íslenskum lögum ber endursöluaðla að bæta þér vöruna þó svo að framleiðandi taki annað fram.
Það eina sem þessi ábyrgð fellur ekki undir er vara eins og batterý,mat,hluti sem ganga úr sér með tímanum.



Skjámynd

kemiztry
Gúrú
Póstar: 592
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:15
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Pósturaf kemiztry » Mið 07. Jún 2006 12:30

Þú átt að geta skilað honum innan 1-2 daga frá afhendingu. Þetta er augljóslega galli í skjánum. En annars er rosalega misjafnt hvernig sum fyrirtæki bregðast við svona því miður :? Flest eru þó það heiðarleg að skipta honum út ef skjárinn var keyptur fyrir 1-2 dögum.


kemiztry

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6428
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 289
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 07. Jún 2006 12:34

þú meinar. 2 ár.. Það er tveggja ára ábyrgð á raftækjum á íslandi. Dauður puntkur á skjá er auðvitað galli sem að fellur undir ábyrgð.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Mið 07. Jún 2006 12:46

Ég fór meðann í dag, daginn eftir kaupin.
Það er bara að bíða og sjá.
Maður er ekkert að leita að dauðum punkti, þetta var áberandi strax við ræsingu á tölvu. Þannig hlýtur þetta að vera fleiri dauðir samliggjandi punktar.




Nafnotenda
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Mán 06. Mar 2006 22:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Nafnotenda » Mið 07. Jún 2006 19:03

Ég keypti nýlega flatskjá hjá Hugver, það var einn dauður pixel, ég hringdi í þá, mætti með skjáinn, og fékk nýjan. :)



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2702
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 151
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Mið 07. Jún 2006 19:43

Nafnotenda skrifaði:Ég keypti nýlega flatskjá hjá Hugver, það var einn dauður pixel, ég hringdi í þá, mætti með skjáinn, og fékk nýjan. :)


Sama með EJS, nema ég hringdi ekki á undan mér. Sýndi þeim punktinn og fékk nýjan skjá.



Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1326
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Reputation: 1
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Mazi! » Mið 07. Jún 2006 19:51

þú átt að fá þessu skipt annas neytendasamtök?

btw frændi minn á tb.is/computer.is :D


Mazi -

Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Mið 07. Jún 2006 23:12

Mazi! skrifaði:þú átt að fá þessu skipt annas neytendasamtök?


Yep, ég bíð og sé til.
Ef mat söluaðilans myndi vera neikvætt eða þeir myndu sýna mér samúð, en samt ekki geta fundið sig í að leiðrétta þetta, segjum vegna neikvæðrar afstöðu framleiðandans og þeir virðast vera það, þá er það bókað mál að ég myndi hafa samband við neytendasamtök og gera sterkar athugasemdir við það að verið sé að dreifa og selja neytendavöru með augljósum útlitsgalla og neytendur geti átt það á hættu að fá slíkt ekki bætt. Hvað er að gerast á ykkar bæ, eru þið ekki vakandi fyrir slíku?

Mazi! skrifaði:btw frændi minn á tb.is/computer.is :D


Thats nice [-o<




Mr.Jinx
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 394
Skráði sig: Fös 25. Mar 2005 20:37
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf Mr.Jinx » Fim 08. Jún 2006 15:14

Ég er með einn dauðan pixel á mínum skjá.
Pirrar mig ekkert það mikið en það væri alveg fínt að losna við hann.

Annars er ég að fara að skila minn skjá á morgun. Ekki útaf pixelinn heldur að hann er byrjaður að gefa frá sér einhver svona "Tikk hljóð á c.a 5 ,10 min fresti.
og það er frekar óþolandi. Annars var ég búin að prufa skipta um Skjá og rafmagns snúru. Gerðist það sama og prufaði hann líka í gömlu tölvuna mína og það gerist líka það sama.
-
Þetta er Samsung 913N skjár.
-
Jinx.




Hlynkinn
Græningi
Póstar: 42
Skráði sig: Mán 29. Maí 2006 15:46
Reputation: 0
Staðsetning: 210Gardabær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynkinn » Fim 08. Jún 2006 16:27

"Áður en LCD skjár telst gallaður þurfa að greinast í honum 6 dauðir pixlar samkvæmt alþjóðlegum staðli framleiðenda nema annað sé tekið fram" Held nú að það sé hægt að væla og fá nýjan :)


LALALA

Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Fim 08. Jún 2006 17:57

Hlynkinn skrifaði:"Áður en LCD skjár telst gallaður þurfa að greinast í honum 6 dauðir pixlar samkvæmt alþjóðlegum staðli framleiðenda nema annað sé tekið fram" Held nú að það sé hægt að væla og fá nýjan :)


Frá mínum bæjardyrum séð er þessi alþjóðlegi staðall framleiðenda meingallaður.

Í dag fékk ég samt skjáinn endurbættan :D

Þetta var nú bara einn dead pixel og það kom mér á óvart. Ég man ekki hvað var sagt við mig, en mér skilst að einn dead pixel sé ekki nægilega mikið til vera ábyrgðarskilt, ég man bara ekki alveg. Tæknibær tóku hann samt til sín og létu mig fá annan af sömu tegund og hann er fínn. Þeir munu senda hinn, tilbaka til framleiðandans, en ég veit ekki hvernig þeir hátta þessu, nákvæmlega.

þetta voru fyrstu kaup mín á flatskjá. Við næstu kaup ætla ég að fara fram á prófun, eða sérstaka ábyrgðar skilmála ef því er ekki hægt að koma við.



Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Mán 12. Jún 2006 21:58

Já jæja hann var víst ekki alveg fínn. Það kom upp einn dead pixel eftir smá tíma, blár.

Þetta er víst dálítið erfitt fyrir framleiðendur að geta þetta galla laust þegar kemur að dead pixels, enda framleiðslan flókin og rándýr, og hver vill kaupa rándýra flatskjái?

Það er - hef ég heyrt - mögulegt fyrir notendann að rétta þetta við, og ég mun reyna þegar ég nenni.




Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Mán 12. Jún 2006 22:38

Hvernig þá? Og hví er þá ekki bara boðin viðgerðarþjónusta?



Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Þri 13. Jún 2006 00:49

Rusty skrifaði:Hvernig þá? Og hví er þá ekki bara boðin viðgerðarþjónusta?


Ástæðan fyrir því að viðgerðaþjónusta sé ekki í boði, er líklega vegna þess að það er venjulega ekki hægt að gera við þetta.

En það finnast ráð sem mögulega geta hjálpað.

Ég veit núna um eitt kerlingarráð sem ég hef þó ekki ennþá prufað en geri það sem fyrst.

Mér skilst að fólk hafi gert þetta með góðum árangri, virkar samt ekki alltaf:
Og reyna fyrst að skila skjánum ef hann er í ábyrgð.
1. Hafa slökkt á skjánum
2. Nuddaðu svæðið varlega með hringlaga hreyfingu í um 30 sekúntur með fíngerðu efni eins og bómul, líklega smá votan ég veit ekki.
3. Kveikja á skjánum og sjá hvort þetta hafi lagast.

Ef þetta hefur virkað, þá er það sennilega ekki transistor (kristal þrískauti?) sem var að, heldur það að kristallarnir hafi ekki raðað sér á réttan hátt, ég veit ekki. Ég hef ekki neina þekkingu á þessu.

Ef þetta kemur aftur, þá er bara að gera það sama á ný. Það er reynsla fólks að ef þetta komi aftur, þá hafi það gert það sama og það hafi jafnvel alveg horfið.




DoRi-
</Snillingur>
Póstar: 1023
Skráði sig: Mið 20. Okt 2004 19:18
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf DoRi- » Þri 13. Jún 2006 12:12

það er 0-2 dauðir hjá mér, þrýsti bara á þá og þeir lifna við, nokkurnskonar CPR :)




Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Þri 13. Jún 2006 19:52

já, vinur minn var einhverntíman pirraður, og byrjaði að nudda skjáinn minn frekar mikið. Ég bara DÚD! HVAÐ ERTU AÐ GERA! Skemmdi þó ekki neitt. Persónulega sá ég engan mun, en hann sagði að þetta lagaðist nú aðeins.