Síða 1 af 1
eVGA 7900Gt KO vandamál
Sent: Þri 06. Jún 2006 17:08
af barabinni
Núna þegar ég hef lent í vandræðum með rekla og ímyslegt annað. Þá hef ég getað lagað source vandræðin sem ég lenti í. En núna hafa 2 önnur vandræði verið að trufla mig.
Hinsvegar er það að þegar ég keyri 3dMark 03' á tölvunni þá frýs hún alltaf á prófi númer 2. Ekkert gerist, skjárinn verður einfaldlega svartur.
Svo er það eitt sem mér þótti nú hálf óhugnalegt. Þá var það þegar ég var að reyna útvega manneskju einhvern púslleik. Ég hafði verið að fikta í þessum leik og hreifði gluggann tölvuvert hratt, upp og niður. Þá byrjaði skjárinn að missa liti, hóf svo að flökta og að lokum þurfti ég einfaldlega að slökkva á tölvunni til að stöðva þetta.
Einhver sem hefur hugmynd um hvað þetta gæti verið ?
Sent: Þri 06. Jún 2006 19:00
af Pandemic
Hvernig móðurborð ertu með?
Sent: Þri 06. Jún 2006 20:13
af Cikster
Held að þurfi ekki að hafa áhyggur af móðurborðinu. Forum á heimasíðunni hjá eVga hafa verið ansi active varðandi þetta kort. Sumir segja að sé eitthvað sem er að hitna of mikið á kortinu og eru jafnvel búnir að senda til þeirra 2 kort tilbaka og alltaf sömu vandræði.
Alltaf að skoða áður en maður kaupir

Sent: Þri 06. Jún 2006 21:26
af barabinni
Ég skoðaði nú smá til um þetta kort. Og gat ekki fundið neitt verulega slæmt. En ég keypti nýja og betri kælingu fyrir kortið. Verð bara að sjá hvort það sé eitthvað að þessu korti eða hvort það er einfaldlega ekki að höndla að keyra 100% keyrslu.
Sent: Mið 07. Jún 2006 03:13
af Pandemic
Hentu bara AtiTool í gang og athugaðu með hitan á kortinu í stillingunum.
þá sérðu hvort þetta er hita vandamál.
Ég myndi veðja á AGP busin.
Sent: Mið 07. Jún 2006 11:21
af Cikster
http://www.evga.com/community/messagebo ... C_ID=15366
Virðist virka hjá sumum að keyra minnið niður á kortinu.
Ef það virkar hjá þér er eitthvað að kortinu eins og virðist vera algengt hjá þeim með þetta GT CO version sérstaklega hjá þeim.
Sent: Mið 07. Jún 2006 11:37
af Hlynkinn
á ég að vera hræddur við að kaupa mér evga geforce 7800gtx??? ekki þetta co dæmi reyndar.
Sent: Mið 07. Jún 2006 12:24
af @Arinn@
Fáðu þér 7900GT frekar. Ég er með þannig XFX og það er geðveikt.
Sent: Mið 07. Jún 2006 16:18
af Hlynkinn
Búinn að lesa um þetta evga 7800gtx dæmi og lýst helvíti vel á það búinn að heyra margar slæmar sögur um saprkle kortin... Svo á gaurinn sem selur mér ekki evga 7900 þannig ég tek bara þetta 7800gtx dæmi og lýst bara helvíti vel á það var að panta allt draslið áðan

Sent: Sun 11. Jún 2006 20:47
af barabinni
Þetta AtiTool virkaði ekki þar sem það fann ekkert kort. Og ég held að það sé einaldlega útaf þetta er ekki Ati tool.
En þegar ég keyrði "Scan for artifacts" Þá fann það enda errora. En það kom oft gulur kassi í kringum þrívíddar kassann ásamt einhverri meldingu sem ég náði ekki að skrá niður.
Þetta er farið að þreyta mig dálítið að spila leiki eins og oblivion þar sem ég fer stundum að sjá línur standa útúr hinu og þessu. Allir textures og allt fer í rugl. Ég veit ekki hvort ég eigi að fara með þetta kort og fá annað eða einfaldlega að bíða eftir annari lausn.