Síða 1 af 1
19" Skjáir
Sent: Fös 19. Maí 2006 00:33
af thiwas
Sælir,
ég er að spá í að fá mér 19" skjá, hvað væri best fyrir mig að kaupa, er ekki mikið í leikjum, það er þá aðallega Football Manager og COD, vil helst ekki eyða of miklu kannski 30.000
eins og t.d. hvað birtustigið ætti að vera mikið og skerpan ???
kv.
ásgeir
Sent: Fös 19. Maí 2006 15:38
af Veit Ekki
LCD eða CRT?
Ef þú ætlar að fá þér LCD sem ég býst við, þá ertu í raun bara að fá þessar auka 2" ef þú færð þér 19" skjá, þar sem að það er sama upplausn á 17" og 19" LCD skjáum.
Annars breytir t.d. ms ekki það miklu. Veit ekki með birtustigið og skerpuna en held nú að það sé enginn svaka sýnilegur munur á skjáum með mismunandi skerpu og birtustig.
Sent: Fös 19. Maí 2006 16:50
af Harvest
Sent: Fös 19. Maí 2006 18:44
af thiwas
Sent: Fös 19. Maí 2006 18:55
af Rusty
Ég segi nei. Amk. við fyrsta. Annars, ef þú finnur 21" sem er ekkert mikið dýrari mæli ég með honum, þar sem 17" og 19" hafa hvort eð er sömu upplausn.
Sent: Fös 19. Maí 2006 23:41
af Veit Ekki
Ég myndi allavega ekki taka þennan fyrri, einfaldlega af því að ég hef aldrei séð þetta merki áður. En seinni gæti verið góður.
Þú gætir prófað að leita af reviews á netinu af þessum skjáum. Þar að segja ef enginn hér hefur heyrt neitt um þá.
Sent: Lau 20. Maí 2006 13:16
af audiophile
Já það er alveg eins gott að spara pening og fá sér 17" því 19" skjáir eru bara með max upplausn 1280x1024 eins og 17".
Eða þú getur borgað meira og fengið þér stærri skjá t.d. 21" þar sem upplausnin er orðin hærri.
Sent: Sun 21. Maí 2006 23:38
af Saphira
Ég er með þennann:
20" Acer 2051W Gamers Edition, Slimline LCD, CrystalBrite, 1680X1050, 800:1, 8ms, 176°V, VGA, DVI, svart/silfur m/hát.
Verð: 59.900
Gríðarlega góður skjár en hann er í dýrari kantinum. Keypti hann hjá Tölvulistanum