Síða 1 af 1

NX7800GTX vs NX6600GT

Sent: Sun 14. Maí 2006 22:33
af GuðjónR
Hefur einhver reynslu af þessu korti?
Er að velta því fyrir mér hvort það sé hávært eða ekki...

Á maður kannski frekar að taka þetta?
6600 kortið er viftulaust og þar með silent...en er hitt mikið sterkara? og aðaláhyggjuefnið...hversu hávært er stærra kortið.

Talandi um þessi kort...þá rakst ég á þetta Spurning bara hvort það sé 56k virði?

Þið sem hafið reynslu af þessum kortum látið í ykkur heyra...þið hinir...sjaddap or be banned!

Sent: Sun 14. Maí 2006 23:39
af Gestir
Ohh.. ég elska hvað þú ert harður Guðjón ;)

Heyrðu.

Woods er að selja 97% ónotað 7900GTX á 45.000 þannig að gleymdu þessu 56K dæmi.

Þú borgar ALDREI 20.000 fyrir 6600GT kort þar sem að það er langt frá því að vera HighEnd kort í dag og ræður alls ekkert við nýjustu leikina í virkilega smooth upplausn.

7800GTX eða 7900GT(x) er klárlega málið í dag.

Ég mæli með BFG kortunum eins og ég er með. Þau koma O.C frá framleiðanda og það er endalaus ábyrgð á þeim.

Getur fengið þannig að utan hingað komið á um 24-27.000 kr.

Ég var t.d að panta mér annað sem fer í SLI settup vonandi í næstu viku :)

Ég veit að ég fæ gott backup með þetta að taka ALLS ekki 6600 línu kort frekar en 7800 -7900 línu kort.

Það er virkilega breið lína þarna á milli,

6600GT kortin eru flott budget(10-12k) kort sem duga í allt en ekki í hárri upplausn og allt í MAX.

Trust me, þú vilt 7800 eða 7900 kort.

Ég var með x800Pro sem er talsvert betra en 6600GT kort en þvílíkur munur samt að fara í 7800 nvidia.

Vona að þetta komi sér að notum handa þér.

Sent: Sun 14. Maí 2006 23:42
af Yank
Ég átti svona silent 6600GT.
Vandamálið með það er hversu slakt það er að verða m.v. verð.

7600GS er sterkara og ódýrara en 6600GT. http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2331

Tæki það ferkar ef þú vilt algjörlega hljóðlaust.
review hér http://www.legionhardware.com/document.php?id=547

Hvort 7900GTX sé 56 þúsunda virði þá segi ég nei. Tæki frekar 7900GT.
Kælingin á 7900GTX á að vera frekar hljóðlát. Hef þó ekki heyrt í þessum kortum sjálfur.

Sent: Mán 15. Maí 2006 02:08
af Holy Smoke
Taktu 7900GT fram yfir 7800GTX. Það kostar um 35þús kallinn, og er þannig bæði ódýrara en 7800GTX og örlítið hraðvirkara.

Sent: Mán 15. Maí 2006 14:01
af audiophile
Má benda á að 7900Gt er komið niður í 33Þ hjá þeim ágætu mönnum í Tölvuvirkni. Keypti hjá þeim Sparkle 7900gt um daginn og það er súpergott kort.

Sent: Mán 15. Maí 2006 14:07
af GuðjónR
Er þetta kort sterkara en þetta kort?

Sent: Mán 15. Maí 2006 14:30
af @Arinn@

Sent: Mán 15. Maí 2006 16:56
af Yank
GuðjónR skrifaði:Er þetta kort sterkara en þetta kort?


já 7900GT er öflugra en 7800GTX

Sent: Mán 15. Maí 2006 20:11
af kemiztry
Endilega fáðu þér svona 7900GTX kort... svo skal ég skipta á sléttu á mínu við þig... Það er hörku gott 6800 kort :lol:

Sent: Mán 15. Maí 2006 20:14
af GuðjónR
kemiztry skrifaði:Endilega fáðu þér svona 7900GTX kort... svo skal ég skipta á sléttu á mínu við þig... Það er hörku gott 6800 kort :lol:

:shock: :roll: :lol:

Sent: Mán 15. Maí 2006 22:47
af @Arinn@
Pantaðu bara eitt kort frá honum SIKO getur fengið XFX7900GT 520/1500 á eitthvað í kringum 30.000 á meðan 7800GTX 430/1200

Sent: Þri 16. Maí 2006 19:18
af GuðjónR
@Arinn@ skrifaði:Pantaðu bara eitt kort frá honum SIKO getur fengið XFX7900GT 520/1500 á eitthvað í kringum 30.000 á meðan 7800GTX 430/1200

nahhh...gæti þá alveg eins keypt þetta sjálfur af ebay...ég get innskattað þetta og notað í kostnað...það borga sig fyrir mig að kaupa þetta út úr búð.