Síða 1 af 1

Error

Sent: Sun 07. Maí 2006 17:54
af Steini2
Ég er að fá black screen þegar ég spila wow og hefur það sama gerst í CS.
Ég fæ aðeins upp signal á skjáinn sem segir "Self test check your pc and signal cable monitor is working".

Ég hef skipt um skjá og kapal einnig hef ég þrifið viftuna og kassan og virðist þetta vandamál enn koma upp.
Veit eithver hverju þetta tengist ?

Sent: Sun 07. Maí 2006 17:58
af Veit Ekki
Kannski ofhitnun á skjákorti. Allavega gæti það vel verið ef þetta gerist bara í leikjum hjá þér.

Sent: Sun 07. Maí 2006 18:09
af Mazi!
hvernig skjákort ertu með og hvernig kælingu?

Sent: Sun 07. Maí 2006 18:28
af Steini2
Ég nota Sapphire Ati Radeon 9600xt og með standard viftuna á henni og kassin er með 2 viftum framan og á hliðinni (xblade kassi).

Sent: Sun 07. Maí 2006 18:41
af Mazi!
prufaðu að taka kortið úr og skoða hvort það sé í lagi með viftuna

Sent: Sun 07. Maí 2006 18:45
af mjamja
Mazi! skrifaði:prufaðu að taka kortið úr og skoða hvort það sé í lagi með viftuna


myndi frekar bara opna tövuna og tékka hvort hún snýst

Sent: Sun 07. Maí 2006 18:51
af Steini2
Amm hún snýst þannig það eina sem gæti valdið þessu væri skjákortið ?

Stundum get ég verið að spila í yfir klukkutima og allt í góðu svo hefur þetta gerst tvisvar sinnum á 20min.

Sent: Sun 07. Maí 2006 19:55
af Veit Ekki
Steini2 skrifaði:Amm hún snýst þannig það eina sem gæti valdið þessu væri skjákortið ?

Stundum get ég verið að spila í yfir klukkutima og allt í góðu svo hefur þetta gerst tvisvar sinnum á 20min.


Það gerðist svipað með Radeon 9800xt kortið mitt, að tölvan var að slökkva á sér þegar ég var í leikjum og bara random, stundum gat ég verið í klukkutíma og stundum bara smá tíma. Þá var skjákortið að ofhitna, fékk mér nýja viftu og þá virkaði þetta allt.

Prófaðu bara að snerta kortið næst þegar þetta gerist og ef það er mjög heitt þá er þetta mjög líklegast skjákortið.

Sent: Sun 07. Maí 2006 20:10
af Steini2
Geri það þakka ykkur fyrir skjót og skýr svör :D