Síða 1 af 1

[vandamál] Bakgrunns suð og önnur hljóð

Sent: Fim 04. Maí 2006 21:29
af Opal
hey

nýr hér og ég fann ekki betri stað til þess að setja þetta. vonandi valdi ég réttan stað á spjallinu.


Vandamálið mitt tengist því að frá tölvunni minni koma leiðinleg hljóð. Ef ég tek headphona og tengi við tölvuna þá heyrist svona suð alltaf. Svo ef ég t.d. geri eitthvað eins og að minimize/maximize glugga á fullu þá gefur það ákveðið hljóð frá sér. Ég spila einnig tölvuleik og mismunandi hljóð berast frá tölvunni eftir því hvort ég sé að tengjast server eða að loada mappi.

Þetta er það lágt að þetta pirrar mig ekki þegar ég hlusta á tónlist en þessi hljóð heyrast mjög vel í gegnum teamspeak/ventrillo eða þá þegar ég tek upp á tölvuna.

Ég er ekki með neina ofurtölvu en veit einhver hvað þetta gæti verið? Tengst einhverri lélegri tengingu á vélbúnaðinum? Eða hvað?

Sent: Fim 04. Maí 2006 21:56
af mjamja
ef þú ert með innbyggt hljóðkort er það líklega það sem er lélegt og er þ.a.l. að gefa frá sér allskonar hljóð.

eina lausnin á því er að kaupa sér hljóðkort.

Sent: Fös 05. Maí 2006 00:30
af Skoop
þú getur prufað að setja mute á allt nema wave og play control, hinar rásirnar valda oft svona suði.

svo installa nýjum hljóðkortsdriverum, þeir eiga það til að laga þetta aðeins.

setja hljóðkortið eins langt frá öðrum pci kortum ef þetta er ekki inbyggt hljóðkort.

færa önnur pci kort í ystu pci slottin ef þetta er inbyggt hljóðkort.

ef þetta er ekki inbyggt hljóðkort sem þú notar en þú ert líka með inbyggt hljóðkort á móðurborðinu disablaðu það í biosnum.

hér eru meiri upplýsingar, þegar ég var að lenda í þessu með mitt inbyggða hljóðkort þá gaf besta raun að setja "mute" á allt nema það sem ég nefndi að ofan í volume control

http://www.infopackets.com/channels/en/ ... part_2.htm
http://forum.maxthon.com/lofiversion/in ... 37686.html

Sent: Fös 05. Maí 2006 20:14
af Opal
takk fyrir svörin :)

Prófaði þetta hjá þér og það virkaði ekki.., svo nýtt hljóðkort er á leiðinni ;)

Takk enn og aftur fyrir hjálpina! :)

Sent: Þri 16. Maí 2006 08:27
af Gestir
Ég var með Sb Live kort og það svínvirkaði að mute á line in og mic, þá hvarf allt suð.

En er samt svo klikkaður að ég varð að eignast X-fi kortið.



Sé alls ekki eftir því

Sent: Þri 16. Maí 2006 11:17
af hahallur
Þetta hefur með rafmagn að gera....

Þegar skjárinn er allveg hvítur er mikið suð, þegar hann er svartur lítið suð....

...hefur með að gera hversu mikið rafmagn fer inná hann.

Er þetta ekki svona hjá þér ?

Sent: Þri 16. Maí 2006 14:07
af ICM
Fá sér bara UPS... annars eru sum VIA Chipset pain með Creative hljóðkortum.