Síða 1 af 1

varðandi innflutning á skjám

Sent: Lau 22. Apr 2006 20:25
af kraft
Halló félagar.

Þannig er mál með vexti að vinur minn er að koma í heimsókn að utan og var að velta fyrir sér ef hann kemur með lcd skjá til landsins hvort það sé tollur á slíkum vörum. Getur einhver frætt mig á því hvort hann myndi lenda í veseni hjá tollinum flugstöðinni og ef það er álagning á lcd skjái þá hvað það sé mikið os.frv.

Sent: Lau 22. Apr 2006 21:38
af Gúrú
ef það er innan sirka 30k og hann merkir hann gjöf sleppuru allvega með vask og kannski með toll.... :roll:

lcd skjár.

Sent: Lau 22. Apr 2006 22:49
af kraft
Hann er að koma til landsins og skjárinn verður hluti af farangri, hann sendir hann ekki í pósti

Re: varðandi innflutning á skjám

Sent: Lau 22. Apr 2006 23:06
af Veit Ekki
kraft skrifaði:Halló félagar.

Þannig er mál með vexti að vinur minn er að koma í heimsókn að utan og var að velta fyrir sér ef hann kemur með lcd skjá til landsins hvort það sé tollur á slíkum vörum. Getur einhver frætt mig á því hvort hann myndi lenda í veseni hjá tollinum flugstöðinni og ef það er álagning á lcd skjái þá hvað það sé mikið os.frv.


Það er enginn tollur af tölvuhlutum en hinsvegar þarftu auðvitað að borga vsk. sem er 24,5%.

Gúrú skrifaði:ef það er innan sirka 30k og hann merkir hann gjöf sleppuru allvega með vask og kannski með toll.... :roll:


Gjafahámarkið er held ég 7 þús. kr.

Edit: Hámarkið er 10 þús.

Sent: Sun 23. Apr 2006 00:28
af Taxi
Ekkert hámark á brúðkaupsgjöfum,er það ???

Að sjálfsögðu ert þú að fara að gifta þig í sumar og vinur þinn kemst
ekki þá vegna vinnu svo að hann vildi færa þér gjöfina núna. :o

Hver veit hinsvegar hvort að þú og þín heittelskaða náið að altarinu. :?:

Sent: Sun 23. Apr 2006 10:11
af kraft
Takk fyrir þessar upplýsingar, þannig að það er bara vaskur sem ég þarf að hafa áhyggjur af ekki satt ?

Sent: Sun 23. Apr 2006 10:47
af Veit Ekki
kraft skrifaði:Takk fyrir þessar upplýsingar, þannig að það er bara vaskur sem ég þarf að hafa áhyggjur af ekki satt ?


Hef heyrt að það þurfi að borga tollskýrslugjald, sirka 1000-1500 kr. en er samt ekki viss, til að þú þurfir ekki að borga toll. Annars bara vsk.

Sent: Sun 23. Apr 2006 17:40
af gumol
frihofnin.is skrifaði:Ferðamenn sem búsettir eru erlendis, er heimilt að hafa með sér gjöf, verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meiri en 10.000 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 10.000 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld miðað við verðmæti sem umfram er.

Við komu til landsins mega ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, hafa með sér tollfrjálst þann farangur, t.d. fatnað og annan ferðabúnað, sem þeir fóru með til útlanda. Ferðamenn mega ennfremur hafa meðferðis tollfrjálsan varning sem fenginn er í ferðinni eða í tollfrjálsri verslun hér á landi (við brottför eða heimkomu) fyrir allt að 46.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 23.000 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 23.000 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld miðað við verðmæti sem umfram er. Börn yngri en 12 ára skulu njóta að hálfu þeirra réttinda er að framan greinir. Upplýsingar um innflutningsgjöld er hægt að fá síma 425-0650.

Sent: Fim 04. Maí 2006 16:36
af kraft
takk fyrir þessar upplýsingar strákar :twisted: