Síða 1 af 1
Uppfærsla...... DAUÐANS!!!
Sent: Mið 09. Júl 2003 16:33
af AMoRi
Já, ég var að fá eina gamla gefins. Og ég þarf að upp færa hana. Ég veit ekkert um tölvur, og þá meina ég sko EKKERT! Jaa.. ég kann samt svona basic.. En þetta er eitthvað gamalt.. Pentium 2, 54 RAM.. og eitthvað 5 gb hd.. Ég ætla að uppfæra hana aðeins.
Ég er að pæla í að kaup þennan ódýra 2000 ghz á eitthvað 7 þúsund
Og harðidiskurinn, er að pæla í bara 40 gb.. ÓDÝRUM! .. eitthvað 7 þ..
RAM.. það er annhvort 256 eða 5 og einhverjar aðrar 2 tölur í vinnslu minni.. Haldið þið að 256 næjji?
Skjákort.. Geoforce 4.. þetta með þessu TV out.. á.. jaa.. man ekki.
Er það þá ekki komið? Get ég ekki bara farið að djöflast í henni eftir þetta..??
Og já.. ég hef eitthvað 35 þúsund til að eyða í þetta.. (Unglinga vinnana sko)
Sent: Mið 09. Júl 2003 16:44
af gumol
Þú verður lík að fá þér nýtt móðurborð.
P4 2000 MHZ = 20.000 kr.
Sent: Mið 09. Júl 2003 17:26
af Bitchunter
hann er örugglega að tala um
Celeron 2.0GHz (400)O á 7.505kr hjá
http://www.computer.is
Sent: Mið 09. Júl 2003 18:28
af zooxk
Þetta er nú engin uppfærsla dauðans get ég sagt þér.
Sent: Mið 09. Júl 2003 19:06
af odinnn
ég man ekki eftir því hvort P2 fór uppí 2Ghz en ég held að hann geri það ekki. síðan af því að þú ert með svona gamla tölvu þá er spurning hvort hún sé með AGP rauf (hún er greinilega ekki á öllum móðurborðum). þú þarft líka að vita hvað móðurborðið styður mikið vinnsluminni og einnig hversu stóran hd þú getur verið með.
það er margt sem maður þarf að hugsa um.
Sent: Mið 09. Júl 2003 19:42
af Voffinn
guð minn góður, hentu þessu, keyptu þér kassa með þessu, OG GUÐ MINN GÓÐUR, GET A JOB.
Sent: Mið 09. Júl 2003 19:42
af gumol
Pentium 2 fór ekki upp í 2 GHz, ekki einusinn Pentium 3 fór svo hátt.
Sent: Mið 09. Júl 2003 19:46
af gumol
Unglingavinnan er ágæt voffi

Sent: Mið 09. Júl 2003 19:48
af Voffinn
ekki í 8. bekk eða eitthvað þar sem þú gerir ekkert í 4 tíma í dag og færð ekkert borgað fyrir það...
Sent: Mið 09. Júl 2003 19:49
af gumol
Ef þú vinnur vel, græðiru þegar þú líkur 10. bekk
Sent: Mið 09. Júl 2003 21:40
af Bitchunter
ég er í unglingavinnuni hjá 9 bekk
ég fæ eitthvað 60 þús kall
Sent: Mið 09. Júl 2003 22:52
af gumol
Ég var að ljúka 10. bekk og fæ ca. 100.000 kr.-
Ég er líka í góðri vinnu

Sent: Mið 09. Júl 2003 23:24
af GuðjónR
Eru þið að tala um mánaðarkaupið eða launin fyrir allt sumarið?
Sent: Fim 10. Júl 2003 00:08
af gumol
þetta er fyrir allt sumarið

Sent: Fim 10. Júl 2003 00:55
af Voffinn
það er svona að fara ekki í smíða/byggingavinnu

Sent: Fim 10. Júl 2003 10:25
af zooxk
iss piss
ég er að vinna í heildsölu og er með 500.000 yfir allt sumarið!!!
Sent: Fim 10. Júl 2003 15:36
af gumol
Og á ekki að fara að uppfæra?
Sent: Fim 10. Júl 2003 21:53
af halanegri
gumol skrifaði:Og á ekki að fara að uppfæra?
ég held að hann sé nýbúinn að því
Sent: Fös 11. Júl 2003 10:10
af zooxk
yupp, nýbúinn að því! og hún er supersweet...
Sent: Fös 11. Júl 2003 15:42
af MuGGz
zooxk skrifaði:yupp, nýbúinn að því! og hún er supersweet...
hvernig er sú vél ?

Sent: Fös 11. Júl 2003 16:26
af zooxk
Besta fyrir peninginn myndi ég segja sko.
Lian Li PC6085B
P4 2.8 Ghz 800 FSB
2x512 DDR minni
MSI Neo móðurborð
Samsung Combo driv
Logitech MX500
ódýrt svart lyklaborð frá Dell
Dell P992 19" skjár
MSI FX5600
Man ekki eftir fleirru en ég borgaði 136 þúsund fyrir þetta allt, fékk rosagóð tilboð. Keypti nefnilega 2 alveg eins, það er ég og bróðir minn.
Sent: Fös 11. Júl 2003 18:18
af MuGGz
hvernig ertu að fíla msi móbóið og fx5600 kortið ?
ég er í svaka pælingum með skjákort nefnilega hehe

Sent: Fös 11. Júl 2003 18:28
af GuðjónR
Þetta samsung drif er ekki kombo...
Sent: Fös 11. Júl 2003 18:59
af MuGGz
ég væri til í að eignast þetta msi móðurborð .. er að taka öll borðin í bencmark testum
http://www6.tomshardware.com/motherboard/20030707/i875p-46.html
vitiði hvar þetta borð fæst ? ég er búin að vera leita að því hérna á íslandi
