"stressprófa" nýjan harðan disk
Sent: Þri 03. Mar 2026 10:16
Nú er ég nýkominn með nýjan harðan disk í tölvuna mína og mig langar til að spyrja mér vitrari menn hérna hvort það sé nauðsynlegt að gera einhverskonar "stressprófanir" á honum áður en maður setur mikið af mikilvægum gögnum á hann. Margir á Reddit virðast gera eitthvað slíkt en veit ekki hvort það er paranoia eða skynsamlegt.
Ég er búinn að gera stutt próf með Seatools og diskurinn fær "passed" á því. Það eru fleiri möguleikar í boði í því forriti en mér skilst að það taki mikið lengri tíma ef maður fer í þau próf.
Hverju mælið þið með?
Ps. Er að keyra Win11