Síða 1 af 1
Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mán 02. Feb 2026 19:40
af playman
Hvað er að frétta með þessa HDD? Eru bara allir hættir að selja 10 og 20tb IronWolf/Exos diska??
Ég finn ekki einn einasta í þessum tölvubúðum hérna heima.
Fann 20tb í Ofar, en finnst hann frekar dýr hjá þeim.
En já þetta verða að vera 10 eða 20tb diskar þar sem þeir verða notaðir í að stækka vdev í TrueNas, tími ekki að kaupa
stærri diska og geta bara notað 10 eða 20tb af þeim.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mán 02. Feb 2026 20:19
af Klemmi
Verð á diskum hefur u.þ.b. tvöfaldast núna á sama tíma og SSD hafa 2-3 faldast og vinnsluminni fimmfaldast.
Eftirspurnin hefur á sama tíma minnkað, líklega vegna hækkandi verðs.
Þannig ef þú ert að tala um þennan 20TB á 95þús hjá Ofar, þá má áætla að núverandi innkaupsverð sé í kringum 90þús kr m/vsk, svo það er ekki nema þú finnir einhvern sem eigi eldri lager af diskum sem þú mættir búast við að finna hann á betra verði :/
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mán 02. Feb 2026 21:25
af playman
Já ég vissi þetta með SSD og RAM, hélt bara að HDD myndu ekki hækka svona líka.
Sá líka að 16tb Seagate IronWolf var 10þ ódýrari hjá Tölvutek en hjá Ofar, þannig að ég reiknaði með að Ofar væru að
smyrja aðeins meira ofan á diskana sína.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mán 02. Feb 2026 22:32
af Henjo
AI slop rusl að éta þetta allt upp. Get ekki beðið eftir að þessi glataði "iðnaður" hrynji.
Sam Altman, meira svona Scam Altman.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mán 02. Feb 2026 23:09
af falcon1
Ekki bara er þetta AI dæmi að hækka verð á öllum tölvuvörum heldur er það líka að nota gríðarlega mikið af drykkjarvatni sem og er að menga umhverfið töluvert.
https://www.youtube.com/watch?v=b0C56yqIkbk
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 08:02
af Moldvarpan
Henjo skrifaði:AI slop rusl að éta þetta allt upp. Get ekki beðið eftir að þessi glataði "iðnaður" hrynji.
Sam Altman, meira svona Scam Altman.
Ég er nokk viss um að það sé draumur í dós. Andinn er sloppinn úr glasinu.
Þetta á eftir að þróast og vera partur af daglegu lífi flest fólks á eitthvern hátt.
Við tölvunörd og gamerar, meigum vera þakklátir fyrir þann tíma sem við fengum "óáreittir".
Þetta er ekki bara "ai"... Drones. það þarf slatta af kubbum í það. Og Ai serverum til að processa gögnin sem koma frá droneum.
Þannig, get what you can... Þetta á eftir að vera viðverandi næstu árin.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 11:36
af Stutturdreki
Iðnaðurinn getur alveg hrunið þótt AI haldi áfram að vera til.
Í dag er verið að veita alveg fáránlegum fjármunum, resources og orku til þess eins að notendur á grok geti deepfeikað barnaklám, það þarf að koma þessu í einhvern eðlilegan og heilbrigðan farveg.
Það er alltaf talað um hvað Ai geti gert geðveikt flotta hluti efast um að stór hluti notenda sé að gera eitthvað sem er mannkyni, nú eða bara þeim sjálfum, til gagns. Gagnið er amk. í engu samræmi við resourcanna sem eru settir í AI.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 12:30
af GuðjónR
Stutturdreki skrifaði:Það er alltaf talað um hvað Ai geti gert geðveikt flotta hluti efast um að stór hluti notenda sé að gera eitthvað sem er mannkyni, nú eða bara þeim sjálfum, til gagns. Gagnið er amk. í engu samræmi við resourcanna sem eru settir í AI.
Your point:
RUV.is skrifaði:Elon Musk, eigandi X, hefur verið boðaður í skýrslutöku ásamt fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Rannsóknin vegna áhrifa á frönsk stjórnmál stækkaði að umfangi eftir að tilkynningar bárust um að Grok, gervigreindarspjallmenni X, dreifði áróðri um að helförin hafi ekki átt sér stað og bjó til klámfengnar djúpfalsanir af fólki og jafnvel börnum.
Stjórnendur X hafa áður sagt að rannsóknirnar séu pólitískar.
https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026- ... oku-466006
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 12:39
af Henjo
Moldvarpan skrifaði:Henjo skrifaði:AI slop rusl að éta þetta allt upp. Get ekki beðið eftir að þessi glataði "iðnaður" hrynji.
Sam Altman, meira svona Scam Altman.
Ég er nokk viss um að það sé draumur í dós. Andinn er sloppinn úr glasinu.
Þetta á eftir að þróast og vera partur af daglegu lífi flest fólks á eitthvern hátt.
Við tölvunörd og gamerar, meigum vera þakklátir fyrir þann tíma sem við fengum "óáreittir".
Þetta er ekki bara "ai"... Drones. það þarf slatta af kubbum í það. Og Ai serverum til að processa gögnin sem koma frá droneum.
Þannig, get what you can... Þetta á eftir að vera viðverandi næstu árin.
Ég er ekki að tala um að AI hverfi bara. Ég er að tala um að fyrirtæki eins og OpenAI sem eru að kaupa mestmegnis af vinnsluminni í heiminum, fyrir gagnaver sem eru ekki til, fyrir peninga sem þeir eiga ekki, svo keppinautar þeirra geti ekki keypt vélbúnað til að keppa við þá.
"OpenAI requires massive amounts of capital—potentially over $200 billion in new financing by 2030—to sustain its operations, train new models, and build necessary infrastructure, according to analysts. The company is currently operating as a "loss-making machine" with estimates suggesting it could run out of cash by mid-2027 if it does not secure further funding"
Það er auglj́ost að það er gífurlegt offramboð af gervigreind. Ég hef aldrei hitt manneskju sem vill allt þetta AI sem er verið að troða ofaní alla síma og stýrikerfi.
Fyrir uþb 500 dögum sagði Scam Altman að AGI (semsagt gervigreind með greind á við manneskju) væri innan 1000 daga. Ég sé ekki fram á það, ég sé að þetta er allt hype og tækni CEO'ar eru að lofa öllu milli himins og jarða ef þeir bara fá endalausan pening. Það eru líka góðar líkur á LLM er dead end þegar kemur að alvöru gervigreind.
Núna erum við að horfa á Nvidia fjárfesta 14000 milljörðum í openAI með peningum sem basically koma frá OpenAI. Á það að teljast eðlilegt?
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 12:44
af Moldvarpan
Það er bara útilokað að koma með svona fullyrðingar, hvert þetta sé allt að fara, þar sem hergagnaframleiðendur sem dæmi, gefa ekki upp hvað þeir eru að kaupa. Þetta eru bara þínar getgátur.
Þetta er bara kapitalismi hér eins og annarsstaðar, hann hefur fært okkur þessa tækniþróun, sem er orðin meiri samkeppni um á að kaupa.
Money talks.
Þetta helst allt í hendur, tollar usa á kína, hótanir og þvinganir kína á málma sem usa þarf.
Þessar verðhækkanir eru bara toppurinn á ísjakanum sem sést ekki.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 12:48
af DJOli
Svo er spurning hvort fólk hérna meti stéttarfélög og verndirnar sem þau geta veitt.
Það segir sig sjálft eins og t.d. varðar Arc Raiders þar sem rödd amk eins raddleikarans var fengin til að mata einhvern svona grautarbottann, til að feika fleiri línur í handrit á meðan raddleikarinn fékk annaðhvort ekkert borgað fyrir það, eða krónur fyrir dollarann eins og kaninn segir.
Eins er ég rosalega hrifinn af því hvað Evrópa og Evrópsk yfirvöld gjörsamlega fordæma Suni. Það er þróun sem ég vona fyrir alla muni að falli ekki.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 12:52
af Henjo
Moldvarpan skrifaði:Það er bara útilokað að koma með svona fullyrðingar, hvert þetta sé allt að fara, þar sem hergagnaframleiðendur sem dæmi, gefa ekki upp hvað þeir eru að kaupa. Þetta eru bara þínar getgátur.
Þetta er bara kapitalismi hér eins og annarsstaðar, hann hefur fært okkur þessa tækniþróun, sem er orðin meiri samkeppni um á að kaupa.
Money talks.
Þetta helst allt í hendur, tollar usa á kína, hótanir og þvinganir kína á málma sem usa þarf.
Þessar verðhækkanir eru bara toppurinn á ísjakanum sem sést ekki.
Þetta eru ekkert bara "mínar getgátur"
https://en.wikipedia.org/wiki/AI_bubblehttps://www.forbes.com/sites/gilpress/2 ... uary-2026/https://gizmodo.com/yann-lecun-world-models-2000685265LeCun has become notorious lately for saying LLMs as we currently understand them are duds—no longer worth pursuing, no matter how much Big Tech scales them up. He said in April of last year that “an LLM is basically an off-ramp, a distraction, a dead end.”
Bara því þetta er "kapitalismi" þá má alveg gagnrýna hann eins og maður vill. Og það er alveg eðlilegt að við sem samfélag setjum ákveðna bremsur á hlutina, því þegar þetta brestur allt þá er það vinnandi fólk sem tekur fallið af hrynjandi hagkerfi á sig. Við búum ekki í pure-kapítalísku samfélagi ef þú heldur það. Og við myndum ekki vilja það, því það væri martröð og myndi bara enda hryillilega.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Þri 03. Feb 2026 20:27
af Moldvarpan
Þetta snýst allt um TSMC, ríkisstjórn Biden henti 55 billjónum dollara í að styðja við að fá þessa framleiðslu til USA.
TSMC eru búnir að opna eina FAB í arizona, sem kostaði mikið mikið mikið meira en áætlað var. Það er sennilega 30-40billjónir sem fer í að opna hvert FAB. Það er að segja ef þeim tekst það.
Það reyndist stjórnendum TSMC mikið erfiðara að opna þessa FAB í arizona en áætlað var. Það er talað um að FAB nr 2 í USA opni 2028.
Þeir segja að framleiðsla nýjustu Blackwell kubbana sé komin í þessa FAB verksmiðju í Arizona.
Þegar bandarísk stjórnvöld hafa sett þetta margar billjónir í þetta verkefni, þá vilja þau fá forgang í alla framleiðslu TSMC ef þess er krafist.
Allir kubbar nVidia koma frá TSMC.
Ef það verður stríð, þá lokast líklega mjög fljótt á allar FABs í Taiwan. Framleiðslugetan getur orðið að engu í eitthvern tíma.
Sem þýðir að það er bara ein starfrækt FAB í Arizona.... ég held að við getum gleymt því að fá nokkuð af ráði af þessum kubbum.
Það stefnir bara í eina átt.
Allur tölvubúnaður mun bara hækka og hækka í verði

Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mið 04. Feb 2026 12:51
af emil40
Ég g var að kaupa 20 tb exos í computer.is nýlega á computer.is á 89.900
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mið 04. Feb 2026 13:06
af Henjo
emil40 skrifaði:Ég g var að kaupa 20 tb exos í computer.is nýlega á computer.is á 89.900
Og kostar núna 94þús. Það er 20tb Toshiba sem kostar 100þús hjá þeim núna. Held að ég hafi borgað 65þús fyrir hann í sumar.
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mið 04. Feb 2026 15:05
af emil40
Re: Hvað er að frétta með HDD?
Sent: Mið 04. Feb 2026 20:56
af falcon1
Á maður að kaupa núna eða taka sénsinn og bíða eftir að markaðurinn róist (þ.e. ef það gerist)?