Síða 1 af 2

Foreldrahjálp

Sent: Fös 17. Feb 2006 20:18
af Taxi
Hjálp.mig vantar hjálp með að velja tölvu fyrir son minn í fermingagjöf.Hann spilar mikið af leikjum td.BF2 DOOM3 og EVE.ca,150þús til að eyða,er betra að kaupa tilbúna vél eða velja saman hluti td hjá att.is eða computer.is

Sent: Fös 17. Feb 2006 20:23
af Pandemic
Mæli með að þú spjallir við aðla í þessum verslunum ef þú vilt fá þetta samsett.
:arrow: 1. http://www.kisildalur.is
:arrow: 2. http://www.tolvuvirni.net
:arrow: 3. http://www.start.is

kem líklegast með lista eftir smá.

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:04
af Rusty
Hvað er málið með kísildal. Aldrei litist vel á þessa búð, eða allavega verðin.

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:08
af Mazi!
Rusty skrifaði:Hvað er málið með kísildal. Aldrei litist vel á þessa búð, eða allavega verðin.


ég spyr nú bara ertu eitthvað klikk þessi búð er kraftaverk :o

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:16
af Taxi
Var að kikja á kísildal þar er allt uppselt,td cpu´s 4af7 uppseldir.Kísildalur kemur ekkert svo vel út á verðvaktinni miðað við att.is og computer.is en ég hef engan samanburð á þjónustu og ábyrgð.Fulltrúum tölvuverslana er frjálst að gera mér tilboð hérna á síðunni ef það er í lagi.

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:30
af Rusty
maro skrifaði:
Rusty skrifaði:Hvað er málið með kísildal. Aldrei litist vel á þessa búð, eða allavega verðin.

ég spyr nú bara ertu eitthvað klikk þessi búð er kraftaverk :o

Hvað meinarðu :o

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:36
af Taxi
Úrvalið virðist ekki mikið hjá þeim.Alveg samkeppnisfærir í verðum en ekki í vöruúrvali virðist vera.

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:36
af kristjanm
Mér finnst verðin hjá Kísildal bara hreinasta snilld og alveg sérstaklega miðað við það að búðin er splunkuný.

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:43
af Rusty
kristjanm skrifaði:Mér finnst verðin hjá Kísildal bara hreinasta snilld og alveg sérstaklega miðað við það að búðin er splunkuný.

Þannig þú kaupir frekar frá Kýsildal heldur en att?

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:46
af @Arinn@
Verðið líka að átta ykkur á því að maðurinn er bara einn með þessa búð og eru þetta mjög góð verð miðað við það og er hægt að panta vörur held ég hjá honum.

Sent: Fös 17. Feb 2006 22:12
af Taxi
Veit einhver hvort þessi vara er til á Íslandi og er þetta jafn gott og dómarnir segja http://www.edimensional.com/product_inf ... ucts_id=28

Sent: Fös 17. Feb 2006 22:20
af Mazi!
Rusty skrifaði:
maro skrifaði:
Rusty skrifaði:Hvað er málið með kísildal. Aldrei litist vel á þessa búð, eða allavega verðin.

ég spyr nú bara ertu eitthvað klikk þessi búð er kraftaverk :o

Hvað meinarðu :o


ekki illa meint :D

Sent: Lau 18. Feb 2006 01:42
af kristjanm
Rusty skrifaði:
kristjanm skrifaði:Mér finnst verðin hjá Kísildal bara hreinasta snilld og alveg sérstaklega miðað við það að búðin er splunkuný.

Þannig þú kaupir frekar frá Kýsildal heldur en att?


Nei, ég hef ekki verslað neitt nýlega. Ekkert síðan einhvern tíma áður en búðin opnaði.

Sent: Lau 18. Feb 2006 02:01
af gumball3000
ég hef ekki verslað hjá kísildal en kem pottétt til með að gera það :wink: þeir eru að selja t.d mjög flotta kassa á ekki miklum pening. Vinur minn keypti power supply hjá þeim 680 w á 12000 held ég sem mér finnst nú bara vera ekki mikið og segjir hann að þetta sé alveg mjög fínt powersupply. Þeir eru að að standa sig vel í verði, eina búðin sem er eitthvað kannski ódýrari er att og miðað við hvað kísildalur er nýbyrjað er þetta mjög gott. Svo hef ég líka heyrt um góða þjónustu og hef séð wiceman mjög duglegan hér og hjálpsaman, hann(þeir donno) kaupir greinilega bara nokkuð pottþétta hluti og þetta er framtíðar búð í mínum augum :wink:

Sent: Lau 18. Feb 2006 11:09
af wICE_man
Taxi skrifaði:Var að kikja á kísildal þar er allt uppselt,td cpu´s 4af7 uppseldir.Kísildalur kemur ekkert svo vel út á verðvaktinni miðað við att.is og computer.is en ég hef engan samanburð á þjónustu og ábyrgð.Fulltrúum tölvuverslana er frjálst að gera mér tilboð hérna á síðunni ef það er í lagi.


Rusty skrifaði:Hvað er málið með kísildal. Aldrei litist vel á þessa búð, eða allavega verðin.


Ég verð nú að fá að svara fyrir mína verslun þar sem mér finnst vegið að þeirri ágætu verslun ;)

Birgðastaðan í augnablikinu er frekar lítil, en þið sjáið þó allavega hvort varan er til eða ekki, slíkt er því miður ekki tilfellið hjá öllum. Þetta er
tímabundin staða sem lagast með tímanum.

Varðandi verðvaktina þá held ég að Kísildalur komi vel út þar, 7 af 30 skráðum verðum kísildals eru lægst og ef við köfum dýpra og berum saman áþekka hluti þá kemur í ljós eftirfarandi:

- Munur á verði örgjörva er að meðaltali um 250kr, þ.e. betra hjá Att

- Í vinnsluminnun um ef við berum saman áþekk merki, t.d G.Skill vs. Corsair Value select þá er Kísildalur með betri verð í öllum helstu flokkum, verðmunurinn er á bilinu 850-2850kr kísildal í vil.

- Í skjákortunum er munurinn á þeim skjákortum sem bæði Att og Kísildalur bjóða að meðaltali ca. 1.200 kr þ.e. betra verð

- Í hörðu diskunum eru aftur sitthver merkin og ef við ætluðum að finna jafnoka t.d. Samsung SP 250GB SATAII þá væri það sennilega Western Digital SE16 250GB SATA II en hann er 950 kr dýrari hjá Att, hér er þó alltaf verið að bera saman epli og appelsínur.

Annað sem nefna má er að Kísildalur er hefðbundin tölvuverslun með tengda netverslun, því væri nær að bera hana saman við Tölvulistan eða Tæknibæ heldur en Att eða Computer.is þar sem þær eru netverslanir og því um lægra þjónustustig að ræða.

En að sjálfsögðu er þetta allt mjög huglægt og menn eiga rétt á sínum skoðunum. Það er t.d. algjör óþarfi að væna menn um að vera klikk eða eitthvað svoleiðis.

En svo að við snúum okkur að allt öðru máli, hvernig væri að koma með ráðleggingar fyrir manninn?

Ég mæli með GF 7800GT sem skjákorti, ódýru SLI móðurborði, Örgjörvi væri að mínu mati annað hvort Athlon64 3700+ eða Athlon64 X2 3800+, 1GB vinnsluminni ætti að duga flestum.

Svo er spurning um góðan 19" skjá, og annað svo sem hátalarasett, lyklaborð og mús og hversu stórt geymslupláss þarf að vera á tölvunni.

Sent: Lau 18. Feb 2006 16:13
af gnarr
Ég mæli með Kísildal hvenar sem er. Verðin, vörurnar og þjónustan hjá kísildal er á heimsmælikvarða.

Sent: Lau 18. Feb 2006 16:19
af BrynjarDreaMeR
gnarr skrifaði:Ég mæli með Kísildal hvenar sem er. Verðin, vörurnar og þjónustan hjá kísildal er á heimsmælikvarða.


ég tek undir það með Gnarranum

Kísildalur For The Win

Sent: Lau 18. Feb 2006 18:12
af zedro
Kísildalur er málið.

Ekkert nema toppþjónusta.

Sent: Lau 18. Feb 2006 18:24
af HemmiR
ég er buinn að kaupa 1 aflgjafa sem er 420w eða eithvad og hann virkar fínt:) góð þjónusta

Sent: Sun 19. Feb 2006 12:46
af Rusty
Til að halda áfram, þá mæli með með 1.stk 250gb Western Digital harðan disk.
Fyrir hátlarakerfi mæli ég með Logitech X530. Kosta 10k í flestum búðum.
Og ef þessi fermingapeyji spilar tölvuleiki, fáðu þá einhver Sennheiser heyrnartól með. Eitthvað í 500 seríunni (5xx)
Veit ekki með skjá..

Sent: Þri 21. Feb 2006 13:20
af Gestir
Kísildalur all the way.

Ef ekki þá er það START.is

alveg það allra ódýrasta er aldrei það sniðugasta .

Sent: Þri 21. Feb 2006 14:44
af Rusty
wICE_man skrifaði:
Taxi skrifaði:Var að kikja á kísildal þar er allt uppselt,td cpu´s 4af7 uppseldir.Kísildalur kemur ekkert svo vel út á verðvaktinni miðað við att.is og computer.is en ég hef engan samanburð á þjónustu og ábyrgð.Fulltrúum tölvuverslana er frjálst að gera mér tilboð hérna á síðunni ef það er í lagi.


Rusty skrifaði:Hvað er málið með kísildal. Aldrei litist vel á þessa búð, eða allavega verðin.


Ég verð nú að fá að svara fyrir mína verslun þar sem mér finnst vegið að þeirri ágætu verslun ;)

Ókei, ég ætlaði að sleppa því að svara þessu og aðstoða manninn, en oh well.. verður víst að bíða.
wICE_man skrifaði:Birgðastaðan í augnablikinu er frekar lítil, en þið sjáið þó allavega hvort varan er til eða ekki, slíkt er því miður ekki tilfellið hjá öllum. Þetta er tímabundin staða sem lagast með tímanum.

Aha..
wICE_man skrifaði:Varðandi verðvaktina þá held ég að Kísildalur komi vel út þar, 7 af 30 skráðum verðum kísildals eru lægst og ef við köfum dýpra og berum saman áþekka hluti þá kemur í ljós eftirfarandi:

- Munur á verði örgjörva er að meðaltali um 250kr, þ.e. betra hjá Att

Spáð í því að lækka um 300kr?
wICE_man skrifaði:- Í vinnsluminnun um ef við berum saman áþekk merki, t.d G.Skill vs. Corsair Value select þá er Kísildalur með betri verð í öllum helstu flokkum, verðmunurinn er á bilinu 850-2850kr kísildal í vil.

Ásættanlegt. Fer nú ekki að hundsa góða hluti.
wICE_man skrifaði:- Í skjákortunum er munurinn á þeim skjákortum sem bæði Att og Kísildalur bjóða að meðaltali ca. 1.200 kr þ.e. betra verð

Ég held ég kósi frekar nú att!
wICE_man skrifaði:- Í hörðu diskunum eru aftur sitthver merkin og ef við ætluðum að finna jafnoka t.d. Samsung SP 250GB SATAII þá væri það sennilega Western Digital SE16 250GB SATA II en hann er 950 kr dýrari hjá Att, hér er þó alltaf verið að bera saman epli og appelsínur.


wICE_man skrifaði:Annað sem nefna má er að Kísildalur er hefðbundin tölvuverslun með tengda netverslun, því væri nær að bera hana saman við Tölvulistan eða Tæknibæ heldur en Att eða Computer.is þar sem þær eru netverslanir og því um lægra þjónustustig að ræða.

Er att ekki með nokkra starfsmenn? Getur fólk ekki farið niður í att og beðið um hluti? Er hvort eð er ekki bara einn starfsmaður hjá kísildal? Og ef svo er, er það ekki þú?
wICE_man skrifaði:En að sjálfsögðu er þetta allt mjög huglægt og menn eiga rétt á sínum skoðunum. Það er t.d. algjör óþarfi að væna menn um að vera klikk eða eitthvað svoleiðis.

En svo að við snúum okkur að allt öðru máli, hvernig væri að koma með ráðleggingar fyrir manninn?

Ég mæli með GF 7800GT sem skjákorti, ódýru SLI móðurborði, Örgjörvi væri að mínu mati annað hvort Athlon64 3700+ eða Athlon64 X2 3800+, 1GB vinnsluminni ætti að duga flestum.

Svo er spurning um góðan 19" skjá, og annað svo sem hátalarasett, lyklaborð og mús og hversu stórt geymslupláss þarf að vera á tölvunni.

Já, hjartanlega sammála. Komið nú með einhver ummæli.

Og kannski benda á einhverjar þegar-samsettar tölvur?

Sent: Þri 21. Feb 2006 15:59
af wICE_man
Tökum klassíska tölvu saman í 4 verslunum hún er með eftirfarandi:

Athlon 3500+ örgjörvi
Nforce4 SLI móðurborð
2x512MB PC3200 CL2,5 top brand minni
250GB SATA Harður diskur
GeForce 6600GT skjákort
DVD-skrifari svartur

Verð hjá Att: 72.500

Verð hjá Start: 74.930 (reyndar myndi tölvan hjá att kosta 77.500 með sama móðurborði)

Verð hjá tölvuvirkni: 75.858

Verð hjá Kísildal: 71.400 (73.900 með sambærilegu borði og hjá Start)

Heimasíðan er reyndar tímabundið í rugli útaf uppfærslu servers hjá Ogvodafone en ég stend við þetta verð.

Þetta er bara eitt snöggt dæmi en segir sína sögu. Att eru kannski grænir en sumir eru grænni ;)

Hér er svo það sem ég myndi í fljótu bragði geta sett saman fyrir 150.000kr:

Örgjörvi: Athlon64 3700+ (S939)
Móðurborð: ASUS A8N-SLI
Vinnsluminni: 2x512MB G.Skill PC3200
Skjákort: EVGA GeForce 6800GS
Harður diskur: Samsung Spinpoint SATA2 250GB
Geisladrif: NEC dual-layer DVD brennari
Kassi: Aspire X-plorer svartur
Aflgjafi: Aspire 500W PSU
Skjár: 19" Hyundai B90A
Mús: Logitech optical svört
Lykklaborð: Chicony Fun-touch svart
Hátalarar: Creative Inspire T3030
Stýrikerfi: MS Windows XP Home

Samsett 150.000kr

Sent: Mið 22. Feb 2006 19:18
af zedro
Rusty skrifaði:
wICE_man skrifaði:Birgðastaðan í augnablikinu er frekar lítil, en þið sjáið þó allavega hvort varan er til eða ekki, slíkt er því miður ekki tilfellið hjá öllum. Þetta er tímabundin staða sem lagast með tímanum.

Aha..

Hvað meinaru með þessu? Þetta er svo rétt hjá wICE_man að hálfu væri nóg. Ég hef svo oft farið niðrí búð og ætla kaupa og fæ bara "Sorry varan búin". Ojá, Computer.is sem sendir mann email þega mar getur sótt vöruna sína, fór 3. sinnum að sækja sömu vöruna og aldrey var hún til!

Rusty skrifaði:
wICE_man skrifaði:Varðandi verðvaktina þá held ég að Kísildalur komi vel út þar, 7 af 30 skráðum verðum kísildals eru lægst og ef við köfum dýpra og berum saman áþekka hluti þá kemur í ljós eftirfarandi:

- Munur á verði örgjörva er að meðaltali um 250kr, þ.e. betra hjá Att

Spáð í því að lækka um 300kr?

Til hvers? Bara til að verða grænn? Veit ekki um ykkur en mér finnst það svakalega lame. Einnig á hann að hækka verðin á hinum vörunum einsog att gerir?

Rusty skrifaði:
wICE_man skrifaði:- Í skjákortunum er munurinn á þeim skjákortum sem bæði Att og Kísildalur bjóða að meðaltali ca. 1.200 kr þ.e. betra verð

Ég held ég kósi frekar nú att!

Ég vill fá rök fyrir þessu!

Rusty skrifaði:
wICE_man skrifaði:En svo að við snúum okkur að allt öðru máli, hvernig væri að koma með ráðleggingar fyrir manninn?

Já, hjartanlega sammála. Komið nú með einhver ummæli.

Og kannski benda á einhverjar þegar-samsettar tölvur?

Bíddu ættlaðir þú ekki að gera það?

Rusty skrifaði:Ókei, ég ætlaði að sleppa því að svara þessu og aðstoða manninn, en oh well.. verður víst að bíða.

Sleppir að hjálpa dúddanum til að vera með skítkast? :catgotmyballs