Síða 1 af 1

Hvaða fartölvu fyrir skóla og leik?

Sent: Lau 23. Ágú 2025 11:54
af GuðjónR
Jæja, örverpið er að byrja framhaldsskóla og þarf fartölvu. Hann vill ekki Mac (nei, ég skil það ekki heldur). Ég sá þessar í Costco, veit ekki með gæðin en hef sjálfur átt tvær Lenovo Yoga sem dóu í kringum tveggja ára aldurinn, er því ekki of bjartsýnn.

  • Lenovo IdeaPad 83BG002GMX – Létt, 1.89 kg. Rafhlaða ~11 klst, 1TB SSD, Wi-Fi 6E. Örugglega ágæt í létta vinnslu en varla meira en það. Verð: 130.000 ISK, eftir afslátt: 120.000 ISK.
    IMG_5958.jpeg
    IMG_5958.jpeg (2.26 MiB) Skoðað 313 sinnum

    IMG_5957.jpeg
    IMG_5957.jpeg (2.21 MiB) Skoðað 313 sinnum

    IMG_5961.jpeg
    IMG_5961.jpeg (2.72 MiB) Skoðað 313 sinnum


  • Lenovo LOQ 83JC0023MX-C – Hraður 144Hz skjár, RTX 4050, meira RAM. Rafhlaða ~7 klst. Frekar þung eða 2.38 kg. Verð: 200.000 ISK, eftir afslátt: 150.000 ISK.
IMG_5954.jpeg
IMG_5954.jpeg (2.28 MiB) Skoðað 313 sinnum
IMG_5955.jpeg
IMG_5955.jpeg (2.17 MiB) Skoðað 313 sinnum
IMG_5956.jpeg
IMG_5956.jpeg (2.29 MiB) Skoðað 313 sinnum


Einhver sem hefur reynslu af þessum eða veit um aðra hagkvæma valkosti sem gætu enst í skólann næstu 4 árin?

Re: Hvaða fartölvu fyrir skóla og leik?

Sent: Lau 23. Ágú 2025 13:07
af Hjaltiatla
Úff... ég gæti ekki þessi lyklaborð. Sjálfur myndi ég frekar skoða Thinkpad vélar (meira að segja refurbished eða notaða ef þú ert fastur í einhverju budgeti) og passa að batteríið er gott.

Re: Hvaða fartölvu fyrir skóla og leik?

Sent: Lau 23. Ágú 2025 14:42
af TheAdder
Hjaltiatla skrifaði:Úff... ég gæti ekki þessi lyklaborð. Sjálfur myndi ég frekar skoða Thinkpad vélar (meira að segja refurbished eða notaða ef þú ert fastur í einhverju budgeti) og passa að batteríið er gott.

Sammála, ThinkPad er allt annar klassi, ég er með 5-6 ára Thinkpad L390 Yoga, sem stendur sig eins og hetja ennþá (reyndar að keyra linux á henii). Thinkpad lyklaborðin eru líka mjög fín.

Re: Hvaða fartölvu fyrir skóla og leik?

Sent: Lau 23. Ágú 2025 17:37
af rapport
Gæti næstum fengið þrjár Elitebook 840 g7 10310u 16gb minni og 500gb hjá Fjölsmiðjunni fyrir sama pening...

Re: Hvaða fartölvu fyrir skóla og leik?

Sent: Sun 24. Ágú 2025 09:04
af Hjaltiatla
T.d myndi ég sjálfur frekar skoða þessa , færð miklu betri vél fyrir aurinn https://bland.is/til-solu/raftaeki/tolvur-og-fylgihlutir/thinkpad-p16s-fartolva/5160516/

Samt ekki hentug leikjavél.