Síða 1 af 1
Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 17:41
af einarn
Vantar smá ráðgjöf varðandi external flakkara. Er ekki betra að kaupa hdd og box heldur enn eitthvern tilbúinn flakkara? Hraðinn skiptir minnsta máli ég er helst að hugsa um gagnaöryggi og endingu á disk, Var að hugsa um að taka 4tb segate barracuda og eitthvað external box. Er eitthvað betra í boði?
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 18:47
af olihar
Ef þú ert að fara í svona lítinn disk hentu þér á SSD.
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 19:59
af einarn
olihar skrifaði:Ef þú ert að fara í svona lítinn disk hentu þér á SSD.
Frekar pointless að splæsa í SSD fyrir cold storage, er það ekki?
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 20:03
af olihar
Eða henda í Cloud storage
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 21:57
af Henjo
Ég keypti flakkara fyrir nokkrum árum og hef ekkert gert það síðan og mun ekki gera það aftur. Það var eitthvað vesen með hýsinguna þannig ég ætlaði að kippa disknum úr. Nema það var auðvitað þvílíkt mál því þeir vilja ekki að þú sért að opna þetta, og eftir það allt kom í ljós að diskurinn var ekkert með venjulegum SATA tengjum heldur eithvað proprietary bull tengjum.
Myndi allan daginn kaupa disk og hýsingu. Eða staka diska plús dokku. Eða jafnvel diskaskúffu ef þú ert með gamaldags kassa.
Getur hent í cloud storage, en hvað kostar það á ári? og hvað er maður lengi að sækja eða skrifa heilu terabætin? En þá er maður samt auðvitað með öryggið ef t.d. húsið hjá manni brennur niður. Eða allavega þangað til þeir delete óvart dótinu þínu, annaðhvort óvart eða þeir vilja meina að það sé copyrightað.
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 22:10
af Viggi
Myndi allan daginn kaupa m.2 hýsingu og setja disk að egin vali. Hægt að fá fyrir 2 diska fyrir raid 0 t.d
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 22:19
af olihar
Viggi skrifaði:Myndi allan daginn kaupa m.2 hýsingu og setja disk að egin vali. Hægt að fá fyrir 2 diska fyrir raid 0 t.d
Alls ekki setja upp raid 0 fyrir svona.
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 22:20
af einarn
Henjo skrifaði:Ég keypti flakkara fyrir nokkrum árum og hef ekkert gert það síðan og mun ekki gera það aftur. Það var eitthvað vesen með hýsinguna þannig ég ætlaði að kippa disknum úr. Nema það var auðvitað þvílíkt mál því þeir vilja ekki að þú sért að opna þetta, og eftir það allt kom í ljós að diskurinn var ekkert með venjulegum SATA tengjum heldur eithvað proprietary bull tengjum.
Myndi allan daginn kaupa disk og hýsingu. Eða staka diska plús dokku. Eða jafnvel diskaskúffu ef þú ert með gamaldags kassa.
Getur hent í cloud storage, en hvað kostar það á ári? og hvað er maður lengi að sækja eða skrifa heilu terabætin? En þá er maður samt auðvitað með öryggið ef t.d. húsið hjá manni brennur niður. Eða allavega þangað til þeir delete óvart dótinu þínu, annaðhvort óvart eða þeir vilja meina að það sé copyrightað.
Það er einmitt málið, maður veit aldrei hvernig innvolsið í þessum pre-made flökkurum er. Held að ég splæsi bara í disk og hýsingu.
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 22:27
af Viggi
olihar skrifaði:Viggi skrifaði:Myndi allan daginn kaupa m.2 hýsingu og setja disk að egin vali. Hægt að fá fyrir 2 diska fyrir raid 0 t.d
Alls ekki setja upp raid 0 fyrir svona.
Hví ekki? Hef verið með venjulega hdd í mörg ár og ekkert vesen
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 22:29
af olihar
Viggi skrifaði:olihar skrifaði:Viggi skrifaði:Myndi allan daginn kaupa m.2 hýsingu og setja disk að egin vali. Hægt að fá fyrir 2 diska fyrir raid 0 t.d
Alls ekki setja upp raid 0 fyrir svona.
Hví ekki? Hef verið með venjulega hdd í mörg ár og ekkert vesen
Raid 0 þýðir ef 1 diskur bilar þá missir þú öll gögn af öllum diskunum sem eru í sama raid 0.
Re: Vantar ráð varðandi flakkara.
Sent: Mið 06. Ágú 2025 22:35
af Viggi
olihar skrifaði:Viggi skrifaði:olihar skrifaði:Viggi skrifaði:Myndi allan daginn kaupa m.2 hýsingu og setja disk að egin vali. Hægt að fá fyrir 2 diska fyrir raid 0 t.d
Alls ekki setja upp raid 0 fyrir svona.
Hví ekki? Hef verið með venjulega hdd í mörg ár og ekkert vesen
Raid 0 þýðir ef 1 diskur bilar þá missir þú öll gögn af öllum diskunum sem eru í sama raid 0.
þá bara raid 1 var búinn að gleyma muninum á 0 og 1. Þarf að fara uppfæra
