Þetta er eitt mesta rugl sem ég hef heyrt á ævinni
Þetta er stór alhæfing, hefurðu lifað svona stutt eða heyrirðu kanski illa? Þetta var svo sem ekkert rökstutt hjá mér en þú gætir beðið um rökstuðning í stað þess að flammera mig, er þetta bull? Við skulum sjá.
Bendill:
Ég sé ekki betur en að P4 sé að standa sig feikilega vel í leikjum
Ég sagði ekkert um að hann væri að standa sig illa en clawhammerinn er samt að standa sig betur þar yfir heildina lytið (Athugið ég er ekki að tala um FX-51 eða P4EE heldur þessa sem er raunverulega hægt að kaupa á viðráðanlegu verði), sjáið bara sjálfir:
http://techreport.com/reviews/2004q1/p4-prescott/index.x?pg=6
http://www.lostcircuits.com/cpu/prescott/14.shtml
http://www.anandtech.com/cpu/showdoc.html?i=1956&p=19
Bendill:
og að segja að AMD sé eitthvað betri í server umhverfi? Það er bara alhæfing sem hefur ekki við nein rök að styðjast.
Hvernig væri þá að biðja um rökstuðning, þetta er reyndar ekki einu sinni umdeilt hvað afköst varðar:
http://www.anandtech.com/IT/showdoc.html?i=1935&p=9
Hvaða örgjörvi er í STÓÓRUM meirihluta í server umhverfi? Og afhverju ætli það sé?
Intel XEON, af hverju, kanski af því að AMD eru nýkomnir á þennan markað og breytingar eru mjög hægar á sér í þessum geira þar sem menn eru tortryggnir gagnvart nýjungum. Allavega er það ekki út af afkastagetu, ekki þegar þú getur fengið ódýrari Opteron server sem skilar miklu meiri afköstum.
Linux virkar jafn vel á báða örgjörva, það eru oftast kubbasettin sem valda vandræðunum.
Engin ástæða á öðru, en það sem ég átti við var að Athloninn er fljótari að kompæla, eitthvað sem linux notendur gera oftar en annað fólk:
http://www.anandtech.com/cpu/showdoc.html?i=1956&p=23
Einnig geta linux notendur nú þegar notað 64-bita vinnslu sem er kostur.
AMD er meira en fýsilegur í myndvinnslu og grafíkvinnslu því að hann er öflugur.
Enn og aftur ég var ekki að segja að einn örrin væri ómögulegur bara að hinn væri ákjósanlegri, Pentium4 er betri á þessum sviðum, þau henta arkitektúrnum hans þannig að klukkuhraðinn nýtist í botn svo að AMD örgjörvar á lægri klukkutíðni geta ekki keppt við hann. Þetta gæti breyst með 64-bita forritum en í dag þá er þetta bara svona.
Það eina sem að ég sé út úr þessu hjá þér er það að þú heldur með AMD og tekur það nærri þér þegar Gumol fer að predika um Intel... Rolling Eyes
Þetta passar engan veginn við innihald póstsins míns, ég er að benda á kosti beggja örgjörva umfram hinn. Ég tek það til mín sem er beint til mín og reyni að svara því sem ég er spurður að, nú eða gagnrýni á skrif mín,
Bendill:
Vá! þessi korkur hefur aldeilis farið framhjá umræðuefninu...
Ég biðst fyrir mitt leyti afsökunar á því að hafa átt þátt í því að umræðan fór svona langt frá upprunalegum tilgang hennar, ég hefði átt að fara með spjall mitt við gumol á annan þráð, ég var bara að reyna að benda honum á kosti þess að hafa 32/64 bita stuðning umfram það að vera fastur með 32 bita eingöngu en það fór út í vitleysu og biðst ég afsökunar á því.
En ég stend við að þessi póstur minn var ekkert bull þótt ég hefði mátt rökstiðja hann betur, ég var bara að halda lengdinni í skefjum.