Mechanical Lyklaborð

Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Mechanical Lyklaborð

Pósturaf MatroX » Þri 16. Des 2014 21:28

kiddi skrifaði:Já ég er aðeins að smitast af þessu líka út af þessum þræði ykkar hér, ég nota reyndar Apple lyklaborð því mér hefur þótt þau langsamlega best, heyrist lítið í þeim og þau er þunn og nálægt borðinu, en ég verð að viðurkenna að ég er pínu skotinn í þessu blingbling lyklaborði frá Corsair, Gaming K70, ég er aðeins fyrir liti og ljós :-) Ég á margar góðar minningar með upprunalegu lyklaborðunum frá IBM frá því í gamla daga, en ég er hræddur um að konan myndi henda mér út ef ég tæki upp svoleiðis lyklaborð hér, sem og ungabörnin á heimilinu gætu sennilega lítið sofið.

ég er með k95 og ég elska það, þetta er svo þæginlegt borð og fítusarnir í forritinu frá corsair eru endalausir, kærastan segir að þetta sé ekkert rosalega hátt og þetta venst bara


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |


Höfundur
SolviKarlsson
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Fös 30. Ágú 2013 20:23
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Mechanical Lyklaborð

Pósturaf SolviKarlsson » Mið 17. Des 2014 10:21

Hvað voru Corsair borðin að kosta hingað komin? Hvað gæti K65 RGB kostað?


No bullshit hljóðkall

Skjámynd

zetor
spjallið.is
Póstar: 472
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: Mechanical Lyklaborð

Pósturaf zetor » Mið 17. Des 2014 11:22

Er haegt ad fa thokkalegt mechanical gaming lyklabord fyrir 10.000 kr ?




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Mechanical Lyklaborð

Pósturaf linenoise » Mið 17. Des 2014 12:48

Ódýrasta mechanical á Íslandi er nýtt á 10K.
http://tolvutek.is/vara/tt-esports-meka ... art-nordic

Það eru samt ekki allir hrifnir af Cherry Mx Black svissum. Mörgum finnst þeir of stífir.

Ódýrasta Cherry Mx Red lyklaborðið er á 14500 í Kísildal. http://www.kisildalur.is/?p=2&id=2598

Það er samt alveg spurning hversu mikið "gaming lyklaborð" þetta frá Kísildal er. Hvað þýðir "gaming" lyklaborð fyrir þér? Ef við erum að tala um onboard programmable macros o.s.frv. þá erum við komnir vel yfir 25K.



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mechanical Lyklaborð

Pósturaf kiddi » Fös 19. Des 2014 12:51

Ég kíkti í Tölvulistann með það hugarfar að fá mér K70 (Cherry Brown) borðið, en svo þegar ég fór að pikka í það og K95 (Cherry Red) til skiptis fannst mér K95 ögn hljóðlátari og með léttari takka, fannst þetta bara alls ekki svo slæmt. Svo nú er ég kominn heim og ég er alveg...uh-oh, ég held þetta sé alltof hátt :/ Þarf eitthvað að máta þetta næstu daga, kannski verð ég með spánýtt K95 RGB lyklaborð til sölu bráðlega :/



Skjámynd

zaiLex
FanBoy
Póstar: 719
Skráði sig: Fim 30. Okt 2003 01:46
Reputation: 11
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mechanical Lyklaborð

Pósturaf zaiLex » Lau 20. Des 2014 15:54

kiddi skrifaði:Ég kíkti í Tölvulistann með það hugarfar að fá mér K70 (Cherry Brown) borðið, en svo þegar ég fór að pikka í það og K95 (Cherry Red) til skiptis fannst mér K95 ögn hljóðlátari og með léttari takka, fannst þetta bara alls ekki svo slæmt. Svo nú er ég kominn heim og ég er alveg...uh-oh, ég held þetta sé alltof hátt :/ Þarf eitthvað að máta þetta næstu daga, kannski verð ég með spánýtt K95 RGB lyklaborð til sölu bráðlega :/


Fá sér o-rings


Lyklaborð: Red Scarf III 96 key með GMK keycaps og Zealios 65g switchum með Zilencios.
Mús: G Pro Wireless Superlight með Corepad gripi, Tiger mouse feet, TTC Gold Mouse Wheel Encoder og Huano Transparent Blue Shell Pink Dot Switchum.
Músarmotta: Zowie P-SR


braudrist
</Snillingur>
Póstar: 1040
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Reputation: 58
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mechanical Lyklaborð

Pósturaf braudrist » Lau 20. Des 2014 17:22

MatroX skrifaði:
kiddi skrifaði:Já ég er aðeins að smitast af þessu líka út af þessum þræði ykkar hér, ég nota reyndar Apple lyklaborð því mér hefur þótt þau langsamlega best, heyrist lítið í þeim og þau er þunn og nálægt borðinu, en ég verð að viðurkenna að ég er pínu skotinn í þessu blingbling lyklaborði frá Corsair, Gaming K70, ég er aðeins fyrir liti og ljós :-) Ég á margar góðar minningar með upprunalegu lyklaborðunum frá IBM frá því í gamla daga, en ég er hræddur um að konan myndi henda mér út ef ég tæki upp svoleiðis lyklaborð hér, sem og ungabörnin á heimilinu gætu sennilega lítið sofið.

ég er með k95 og ég elska það, þetta er svo þæginlegt borð og fítusarnir í forritinu frá corsair eru endalausir, kærastan segir að þetta sé ekkert rosalega hátt og þetta venst bara



Finnst þér Corsair Gaming Software ekki vera svona feature-lítið? Mér fannst alla veganna Logitech Gaming Software vera mun betra þegar ég var með G19 lyklaborðið mitt. Ég er með Corsair Vengeance K95 lyklaborð og mér finnst vanta marga möguleika í forritinu og svo eru þeir ekki búnir að uppfæra hugbúnaðinn hjá sér í marga mánuði. Ég er samt mjög mikill Corsair maður, enda eru þeir gæðamerki að mínu mati, en mér finnst Corsair Gaming Software vera bara algjör hörmung.


Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m