Pósturaf wICE_man » Mið 25. Feb 2004 09:28
Hljóðláta tölvu? Surprised
AMD örgjörvar eru EKKERT hljóðlátari en Intel örgjörvar (fáránlegasta sem ég hef heyrt lengi)
gumol, þú mættir gefa þér meiri tíma til að lesa skeytin manns, ég klipti með lýsingu frá framleiðanda þar sem tekið er fram að Pentium4 yfir 2.8GHz gangi ekki á "silent mode" heldur þurfi viftan að vera á normal mode, þ.e. meiri hávaði, en að Athlon64 2.0GHz (3200+) eða hærra gangi á "silent mode".
Þannig að ef hann var að leyta sér að topp örgjörva = P4 3.2/Athlon64 3200+ þá var Athloninn betri kostur upp á hávaðan að gera.
Og já mér fannst illa gert af elv að bögga þig fyrir það eitt að mæla með pentium örgjörva.