Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
-
falcon1
Höfundur - </Snillingur>
- Póstar: 1045
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 142
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Ég veit að þetta er algjör nýliði'a spurning, en ég hef alltaf verið frekar hræddur við að bæta við og fikta í að setja saman tölvuparta sjálfur, aðallega hræddur við að eyðileggja þá og kannski tölvuna líka með einhverju stöðurafmagni eða öðrum klaufaskap, hversu erfitt er að bæta við hörðum disk í kassa eins og bequiet silent base 802 sem hýsir aðaltölvuna mína? Er einhver hætta á að ég rústi einhverju í leiðinni? 

Síðast breytt af falcon1 á Fim 19. Feb 2026 22:27, breytt samtals 1 sinni.
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Það væri alveg stórkostleg afrek tækist þér það að rústa tölvunni við það að bæta öðrum disk við tölvuna.
Koma disknum fyrir, sata power + sata data sem tengist í mobo svo bara ræsa og fara í disk management og virkja diskinn og formatta. Búið.
Koma disknum fyrir, sata power + sata data sem tengist í mobo svo bara ræsa og fara í disk management og virkja diskinn og formatta. Búið.
Leikjavél | X870E | 9800x3D | RTX 5080 | 32GB 6000 | 1000W | Fractal Design North
Server | B760M DS3H | i7 12700 | 32GB DDR4 | 14 TB | Unraid Plus
Server | B760M DS3H | i7 12700 | 32GB DDR4 | 14 TB | Unraid Plus
-
DJOli
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
- Reputation: 200
- Staðsetning: Heima
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Elska spurninguna.
Að bæta drifi við í tölvu er eitthvað sem ég myndi segja að almennt á borðtölvu sé erfiðleikastig 1 af 10, en á flestum fartölvum á bilinu 2-5, með undantekningartilvik sem eru nær 8.
Þú þarft að byrja á að ákveða hvernig drif þú ætlar í. Er þetta m2 nvme? sata ssd? lítill eða venjulegur harður diskur?
M2 nvme drifin eru litlu 'kortin'. Sata ssd eru yfirleitt eins og litlir harðir diskar, harðir diskar eru eins og venjulegu sata drifin, bara þyngri og viðkvæmari fyrir höggum og dynkjum, venjulegir harðir diskar eru yfirleitt mældir 3,5" (tommur).
Ef þú ætlar að bæta við m2 nvme drifi þá þurfum við bara að vita hvort móðurborðið þitt styðji að bæta slíku við, þá þyrftum við módelnúmer eða mynd/myndir af móðurborðinu.
Ef þú ætlar að bæta við sata ssd eða hörðum diski þurfum við að vita aðeins meira um tölvukassann og aflgjafann hjá þér.

i7-11700KF|64gb(2x32gb) ddr4|RTX 4060Ti-16gb|2tb Samsung 990 Evo Plus nvme m.2|1tb Samsung 990 Evo nvme m.2|Corsair HX1200
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Þetta er verkefni sem er ekki alltof flókið og frábært ef maður vill prufa að fikta sig smá sjálfur áfram, go for it! 

-
falcon1
Höfundur - </Snillingur>
- Póstar: 1045
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 142
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Ég er með Asrock Z690 extreme móðurborð sem er í "bequiet silent base 802" kassa. Ég er núna með 3 ssd (1 af þeim er nvme ef ég man rétt).
Ég er að bæta við Seagate IronWolf Nas 3,5" disk
Ég er að bæta við Seagate IronWolf Nas 3,5" disk
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Eins og alltaf er Youtube með fullt af fróðleik varðandi flest tölvuverk. Legg til að þú leitir þar líka.
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
falcon1 skrifaði:Ég er með Asrock Z690 extreme móðurborð sem er í "bequiet silent base 802" kassa. Ég er núna með 3 ssd (1 af þeim er nvme ef ég man rétt).
Ég er að bæta við Seagate IronWolf Nas 3,5" disk
Þetta móðurborð virðist hafa helling af SATA tengjum, þannig ekkert vandamál þar. Þessi kassi er líka með helling af pláss fyrir harða diska, þannig ekkert vesen þar. Og allir HDD útí búð er í raun alveg eins, þannig hvort sem þú hefðir keypt þennan eða annan HDD í búðinni þá er processið alveg eins.
1. Koma diskun fyrir í kassanum, í þessum bequet kössum kemur svona "cage" með sem þú skrúfar diskinn inní og síðan kemurðu búrinu fyrir í kassanum
2. Tengja diskin í rafmagn, sem er rafmags SATA tengi frá aflgjafanum.
3. Tengja SATA gagnakapall í móðurborð og í harða diskinn.
Gæti þurft að formata diskinn eða eitthvað í Windows, en það er ekkert mál.
Getur skoðað video á youtube, bæði hvernig á að koma HDD fyrir sérstaklega í þessum kassa og yfirhöfuð installa hörðum diskum. Þetta er allt búið að vera eins í basically áratugi.

Ef hlutir eins og stöðurafmagn væri alvöru ógn, þá væri helmingurinn af tölvudraslinu mínu ónýtt. En það er góður siður að kannski vera ekki að vinna með þetta á mottu eða í þykkum ulllarskoum, eða aðrar aðstæður sem gætu skapað stöðurafmagn.
Síðast breytt af Henjo á Fös 20. Feb 2026 17:18, breytt samtals 3 sinnum.
-
Moldvarpan
- Vaktari
- Póstar: 2914
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 560
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Henjo skrifaði:falcon1 skrifaði:Ef hlutir eins og stöðurafmagn væri alvöru ógn, þá væri helmingurinn af tölvudraslinu mínu ónýtt. En það er góður siður að kannski vera ekki að vinna með þetta á mottu eða í þykkum ulllarskoum, eða aðrar aðstæður sem gætu skapað stöðurafmagn.
Flott innlegg Henjo, og ég er sammála. Stöðurafmagns ógnin er mikil grýla en vissulega snertir maður ekki hvað sem er.
Við að meðhöndla HDD væri t.d. óþarfi að snerta prentplötuna, en einhverjum gæti dottið í hug að pota í þetta.
Ég mæli samt ekki með að vera í gervi efna fötum eins og flís, það býr til mikið meira stöðurafmagn. Ég er yfirleitt í cotton eða gallafataefnum.
Þetta er ekkert mál, þú ættir falcon1 alveg að geta fundið út úr þessu held ég.
-
falcon1
Höfundur - </Snillingur>
- Póstar: 1045
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 142
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Held að þetta sé einhver kvíðaarfleifð frá því í eldgamladaga þegar það var brýnt fyrir manni að þetta væri allt svo viðkvæmt og smá "zapp" gæti drepið tölvuna. 
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Moldvarpan skrifaði:Henjo skrifaði:falcon1 skrifaði:Ef hlutir eins og stöðurafmagn væri alvöru ógn, þá væri helmingurinn af tölvudraslinu mínu ónýtt. En það er góður siður að kannski vera ekki að vinna með þetta á mottu eða í þykkum ulllarskoum, eða aðrar aðstæður sem gætu skapað stöðurafmagn.
Flott innlegg Henjo, og ég er sammála. Stöðurafmagns ógnin er mikil grýla en vissulega snertir maður ekki hvað sem er.
Við að meðhöndla HDD væri t.d. óþarfi að snerta prentplötuna, en einhverjum gæti dottið í hug að pota í þetta.
Ég mæli samt ekki með að vera í gervi efna fötum eins og flís, það býr til mikið meira stöðurafmagn. Ég er yfirleitt í cotton eða gallafataefnum.
Þetta er ekkert mál, þú ættir falcon1 alveg að geta fundið út úr þessu held ég.
Góður punktur einmitt að vera ekkert að snerta prentplötuna eða aðra parta sem lýta út fyrir að vera viðkvæmur, overall fara mjög varlega.
Maður var sjálfur að gera þetta þegar maður var tólf ára, með ekkert youtube eða neinar leiðbeningar. Og í raun kraftaverk að maður rústaði ekki neinu. Maður lærir með að gera. Kannski væri sniðugt fyrir OP að finna gamla tölvu og leika sér með það, fjarlægja íhluti og koma þeim aftur fyrir.
-
russi
- Geek
- Póstar: 839
- Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
- Reputation: 209
- Staðsetning: Terran Empire
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Ef þú vilt losna við stöðurafmagn þá er bara snerta ofn eða eitthvað sem þú veist að er jarðtengd. Bingó farið, ekki vera labba mikið um á teppi og crocs skóm eða álíka skóm heldur, þannig verður stöðurafmagnið til
-
falcon1
Höfundur - </Snillingur>
- Póstar: 1045
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 142
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Þetta er sem sagt speccið á tölvunni sem ég er að pæla í að bæta við drifi
* Be quiet! Silent Base 802 Black E-ATX turnkassi
* Be quiet! Dark Power 12 750W
* Gigabyte Z690 Gaming X DDR4 ATX Intel LGA1700 móðurborð
* Intel i7-12700K Alder lake LGA1700 8P+4E kjarna örgjörvi
* Be quiet! Dark Rock Pro 4 örgjörvakæling
* Palit GeForce RTX 3060 Dual 12GB
* 2x 1TB WD Black SN850 M.2 NVMe SSD
* 1x 2TB Samsung 970 Evo Plus M.2 NVM Express SSD
* 64gb 2666mhz DDR4 RAM
* 1x 3,5 18TB harður diskur
Er þessi aflgjafi ekki alveg nóg þótt ég bæti við einum eða fleirum (síðar) hörðum diskum?

GuðjónR
- Stjórnandi
- Póstar: 17243
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2378
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Erfiðleikastig er 1 (1-10) ... þetta er eitt það allra auðveldasta sem þú gerir í PC heiminum.
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af orkunotkun, 3.5" diskur tekur að meðaltali 6W-12W.
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af orkunotkun, 3.5" diskur tekur að meðaltali 6W-12W.
-
Moldvarpan
- Vaktari
- Póstar: 2914
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 560
- Staða: Ótengdur
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Þú getur þetta, ert að of hugsa þetta allt of mikið.
Bara setja á sig big boy pants og tækla þetta
Bara setja á sig big boy pants og tækla þetta
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Hjá mér var árið (The LINUX on the desktop) Linux skjáborðsins 2004 þegar Ubuntu komu fram