Mig vantar að kaupa 2x 8tb HDD. Ég tók eftir því að Tölvutek er með 11% afslátt af öllu, þmt HDD.
Er ekki rétt munað hjá mér að yfirleitt er ekki sett HDD á einhvern alvöru afslátt yfir þessa tilboðsdaga (Black friday og Cyber monday).
Er að vonast til að geta nýtt mér einhvern afslátt, en er að hugsa hvort það sé best að taka þessa með 11% afslætti sem er í dag og á morgun.
Kanski er einhver hérna með eitthvað inside info?
Eða sem veit hvernig þetta hefur verið undanfarið, hvort þeir koma á einhverjum afslætti eða ekki.