3070 að gefa sig

Skjámynd

Höfundur
kristofer_viking
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Lau 04. Júl 2020 17:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

3070 að gefa sig

Pósturaf kristofer_viking » Mið 18. Jún 2025 21:11

Er með 3070 kort og vram að gefa sig líklega þar sem ég "crasha" og fæ þessa píxla sem gefa í skyn að þetta sé vram að kenna
hvað get ég gert í því eða er sniðugast að uppfæra bara í leiðinni því kortið er orðið fjögra ára

Ef menn eru að losa sig við kort skoða ég helst 40 seríu eða 50 seríu




gunni91
Besserwisser
Póstar: 3185
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 237
Staða: Ótengdur

Re: 3070 að gefa sig

Pósturaf gunni91 » Mið 18. Jún 2025 22:42

Búinn að kanna hitastig á minninu og temps / hot spots á því?

Hvernig 3070 er þetta?
virka allar viftur?
Hvað er þetta gamalt kort?
Í hvaða aðstæðum er kortið að "crasha"?
Slekkur tölvan á sér og vifturnar fara í botn eða slekkur leikurinn bara á sér?
Geturðu sýnt okkur myndir af þesum pixlum sem þú ert að tala um?




andriki
Gúrú
Póstar: 509
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 00:31
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: 3070 að gefa sig

Pósturaf andriki » Mið 18. Jún 2025 23:00

kristofer_viking skrifaði:Er með 3070 kort og vram að gefa sig líklega þar sem ég "crasha" og fæ þessa píxla sem gefa í skyn að þetta sé vram að kenna
hvað get ég gert í því eða er sniðugast að uppfæra bara í leiðinni því kortið er orðið fjögra ára

Ef menn eru að losa sig við kort skoða ég helst 40 seríu eða 50 seríu

get skoðað kortið fyrir þig of mögulega lagað það ef þú vilt



Skjámynd

Höfundur
kristofer_viking
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Lau 04. Júl 2020 17:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: 3070 að gefa sig

Pósturaf kristofer_viking » Fim 19. Jún 2025 15:32

Þetta er palit gamerock kort ekki oc viftur virka vel hef alltaf passað uppá að rykhreinsa
Kortið var keypt í júlí 21
Þetta byrjaði uppúr þurru þegar èg opnaði var búinn að spila counter strike í 3 tíma en réði við detroit become human í hæðstu gæðum mjög vel
Ég hef ekki haft tíman í að kíkja á hita vrams en hiti kortsins sjálft hefur aldrei farið yfir 80c
Leikurinn var mjög tregur eftir á og vildi ekki opnast. drap einu sinni á tölvuni en grunar að windows update hafi bara verið frekt (hefur gerst nokkrum sinnum)
Verts er ég er ekki með mynd af þessu eins og er




Frussi
Tölvutryllir
Póstar: 646
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Reputation: 135
Staða: Ótengdur

Re: 3070 að gefa sig

Pósturaf Frussi » Fim 19. Jún 2025 17:07

Ég myndi allavega byrja að skipta um kælikrem og athuga hvort það breytist eitthvað


Ryzen 9 5900x // ROG STRIX X570-F // RTX4080 Super // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz

Skjámynd

litli_b
Fiktari
Póstar: 71
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: 3070 að gefa sig

Pósturaf litli_b » Fim 19. Jún 2025 19:09

Ég er búinn að lenda í og vera ennþá í svakalegum gpu vandamálum, en reyndar AMD. En ætla bara koma með lista af hlutum sem ég mæli með að gera, ef þú ert ekki búinn að því nú þegar.
-Drivers. Að Uppfæra eða niðurfæra þá getur lagað eitthvað, slæmir drivers geta valdið crashum. Gætir líka prófað að alveg reinstalla þeim.
-Prófa aðra leiki og ef þú getur, prófa annað kort. Þetta hljómar annars eins og þetta sé 3070 kortið frekar en eitthverjir aðrir partar.
-Googleaðu vandamálið, sérstaklega með þínu korti. Getur verið eitthvað mjög specifískt sem einhver kallar á reddit er búnir að lenda í líka.
-Kíkja á allar snúrur og meira að segja PCiE raufina.
Get alls ekki lofað að neitt af þessu lagar þetta. Þetta eru bara grundvalla aðgerðirnar áður en þú þarft að fara í skurðaðgerðirnar. Vona annars að þetta lagast, örruglega einhverjir hérna með mikið betri svör :)
Síðast breytt af litli_b á Fim 19. Jún 2025 19:09, breytt samtals 1 sinni.