Hef áhuga á að setja upp plex server fyrir familíuna, væru max 4-5 stream í gangi á sama tíma (mögulega) en ekki alltaf, ekkert transcode og allir væru settir á direct play.
Þar sem ég er ekki skarpasti hnífurinn í skúffuni þá hef ég verið að googlea og þá er bæði mælt með bara að finna eitthverja gamla vél og nota hana sem server eða þá kaupa nýja.
Velti fyrir mér hvort eitthver meistari gæti hent upp eitthverju budget buildi hérna fyrir mig? Diskar þurfa ekki að vera með í þessu þar sem ég mun redda þeim að utan, en væri gaman að geta mögulega tengt 2-4x diska við vélina og þá mögulega með möguleikum á að upgradea í framtíðinni.
Endilega ef eitthverjum leiðist þá þygg ég allar hjálpir! Ef þetta á ekki heima hér þá endilega eyða
