Tema2022 skrifaði:jonsig skrifaði:Kaupi MooCool á motulisland.is. Nokkrir tugir skammta fyrir 3400kr. síðan sterílt soðið kranavatn úr katlinum.
Hvað ætli afjónað vatn geri þegar það kemur úr plastbrúsanum og í loopuna hjá þér ?
En ef ég myndi vilja setja lit á vökvann ?
Hvernig væri best að gera það ?
Mér finnst eitur- bleikur litur töff(MooCool). En ég er performance loopari.. svo ég veit ekkert um RGB viftur og pastel litaða kælivökva nema ég veit að þeir eiga það til að gunka allt upp í loopunni og jafnvel stífla eitthvað ef það er ekki fylgst með þeim.
Þú gætir auðvitað notað FROSTLÖG, þeir koma í allskonar litum, en eru seigari en vatn/moocool og ekki eins skilvirkt í að flytja varma.
Ég var með 2xVega64 á 24/7 keyrslu með þannig, hinsvegar kom smá gönk í loopuna hjá mér eftir ca.6mánuði en ég var að nota einhvern útrunninn frostlög frá europris blandaðann 20%

Svona til að vara við þá er frostlögur ethylene glycol, methanol, og propylene glycol. MJÖG eitraðir, smábörn þurfa bara nokkra ml. til að lenda á sjúkrahúsi eða verra.