Sinnumtveir skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:Sinnumtveir skrifaði:Anti-rant: Samt súpernæs að þurfa ekki CPU fyrir þessa BIOS uppfærslu

Þú ert alltof bjartsýnn
Þetta quick flash concept er svo sem ágætt en ég fékk ekki Memo-ið
Ég er vanur því í gegnum árin að geta ræst upp vél og uppfært Bios-inn í rólegheitum þegar maður er kominn með stýrikerfið uppsett.Get ekki sagt að ég sé að setja upp margar ó-samansettar borðtölvur uppá síðkastið og hvort þetta sé orðið Normið að þurfa að uppfæra BIOS svo CPU sé supported.
Ég er algerlega sammála. Það er grautfúlt að framleiðendur örgjörva (þeas AMD í þessu tilviki) sjái ekki til þess að hægt sé drösla upp "bios-setup/flash" á ~ "hvor-sem-helst" örgjörva. Þetta var ekki svona í den. Ég er samt hálf öfundsjúkur því ég á B550 móðurborð sem styður Ryzen 3K, 4K og 5K án þess að bjóða upp á CPU-laust flash. Ég hef ekki hugmynd um hvaða BIOS útgáfa er á borðinu og því gæti ég þurft að fá lánað "eldra" CPU til að flasha þegar ég tek það á endanum í notkun.
Það er smá ves að geta ekki haft option af quick flash miðað við þessa þróun.
Það er líka annar vinkill á þessu máli , hvað með Bios update í framtíðinni? +A ég í hættu á því að minn núverandi CPU hætti að vera supported.
Kannski öruggast að eiga afrit af núverandi BIOS í cloud storage já og lesa breytingar áður en maður uppfærir BIOS á AMD móðurborði.