Mig vantar í sjálfu sér ekkert mikið meira pláss en sýnist að "sweet spottið" sé í dag að kaupa 4TB diska.
Hugmyndin er að vera með 2x4TB diska speglaða í software RAID á Linux server.
Ég er að vandræðast með það hvað ég ætti að taka af þessum NAS diskum:
- 4 TB Seagate IronWolf
- 4 TB Toshiba N300
- 4 TB Western Digital RED
Létt "gúgl" gaf mér enga afgerandi niðurstöðu og BackBlaze listinn virðist ekki vera með þessa diska. Amazon umsagnir voru svipaðar um Seagate IronWolf og Western Digital RED en heldur neikvæðari um Toshiba N300 sem virðist samkvæmt þeim vera fremur hávær, hitna mikið og bila meira.
Eruð þið með einhverjar skoðanir eða reynslusögur af þessum diskum?
Kannski maður ætti að dreifa áhættunni og spegla saman 1x Seagate og 1x WD RED...
![Think :-k](./images/smilies/eusa_think.gif)