Er mikið að spá í að uppfæra móðurborð,minni og CPU - en er með ákveðið vandamál þar sem ég er með ITX kassa. Ekkert til á landinu af ITX borðum fyrir Coffee lake og bara eitt fyrir Ryzen(í Kísildal og þeir selja ekki Ryzen 1600 + þeir eru dýrari).
Vitið þið hvort tölvubúðirnar geti sérpantað fyrir mann íhluti ef þeir eru til úti(og væntanlega ef það er frá framleiðanda sem þeir eru þegar að selja)?
Veit að Coffee lake var bara að koma út en það eru þegar komin ITX borð og það eru komin 4-5 fyrir Ryzen.
Vill helst kaupa þetta hérna heima í einum pakka því þetta endar á Visa raðgreiðslum
![Very Happy :D](./images/smilies/icon_biggrin.gif)