Þar sem gamla góða Logitech UltraX lyklaborðið mitt er farið að láta illa hugsa ég að sé kominn tími á nýtt.
En þar sem ég hef ekki skoðað né keypt lyklaborð síðan 2009 þá hef ég ekki hugmynd hvað séu bestu kaupin í dag, og því leita ég til ykkar

Einu kröfurnar mínar eru íslenskt layout, numpad og það má ekki vera of hávært.
Baklýsing er kostur en ekki must.
Fýla low-profile takka eins og á UltraX, en samt ekki must heldur.
Spila tölvuleiki inn á milli þannig einhverskonar gaming lyklaborð er möguleiki, en skiptir samt ekki höfuðmáli.
Verðhugmynd er eitthvað í kringum 15 þúsund myndi ég halda, án þess að hafa skoðað verðin á lyklaborðum nýlega.
Er samt alveg tilbúinn að fara hærra fyrir hið fullkomna lyklaborð, en þá þyrfti það einmitt að vera frekar fullkomið

Fyrirfram þakkir!