Ég er búinn að vera að uppfæra og breyta hjá mér. Ég tók móðurborð, örgjörva og minni úr einum kassa og setti í annann (1150-i5 16gb ram). Þegar að ég reyni að starta vélinni gerist ekkert, ekkert ljós á móðurborð, viftur fara ekki í gang osfr. Ég er búinn að margathuga að 24pinna rafmagns tengið er í sambandi og 4 pinna líka. Ég er búinn að prufa bréfaklemmutrixið á psu og þá fara viftur í gang, þannig að líklega er psu ok. Ég prufaði líka annað psu sem er í lagi og það breytti engu. Mér datt í hug að eitthvað hefði komið fyrir móðurborðið í ísetningunni og setti þess vegna gamla settið ( móðurborð, örgjörva og minni)aftur í en nú virkar það ekki heldur.
Mér finnst full ótrúlegt að ég hafi skemmt 2 sett í dag þannig að hvorugt þeirra kveiki einusinni á viftum.
Bæði settin eru búin að vera í gangi þar til í dag svo að þetta er ekki compatability mál.
psu er í lagi.
Skrúfurnar undir móðurborðinu eru í lagi og ekkert að rekast upp í það.
Power switch er rétt tengdur (þó að viftur ættu að taka snúning jafnvel þó að hann væri vitlaust tengdur)
Ég er enginn sérfræðingur í þessu en er samt búinn að setja saman tugi eða hundruði véla í gegnum tíðina þannig að ég er enginn byrjandi heldur. Hvað gæti mér verið að yfirsjást? Er eitthvað hrikalega bjánalegt sem ég er að klúðra?
Verðlöggur alltaf velkomnar.