Skjákortið mitt http://www.geforce.com/hardware/desktop-gpus/geforce-gtx-680 er með eitt display port, eitt hdmi og tvö dvi.
Specs:
Vandamálið er: ég hef tekið eftir því að skjárinn sem er tengdur með hdmi tenginu er með öðruvísi contrast/brightness og það er greinilegur munur á milli skjána þótt ég sé búinn að stilla þá nákvæmlega eins og fara í gegnum það process nokkrum sinnum. Það truflar mig svosem ekkert rosalega.
Það sem truflar mig meira er að það er augljós munur á hversu hratt músin hreyfist á hdmi skjánum. Það er einsog að stillinginn á mouse pointer speed sé einu eða tvem bilum hægar á þeim skjá. Ég er búinn að prófa að switcha tengjunum og sama vandamál kemur þá á hinn skjáinn, þannig enginn galli er hér á ferð.
Ég er að spá hvernig ég leysi þetta, hvort ég þurfi einfaldlega að splæsa í betra skjákort. Ég er búinn að leita aðeins að female display port í male hdmi breytistykki en það var ekki til í elko, hef ekki haft tíma til að leita frekar, er ekki viss hvort það muni breyta miklu.
Þætti mjög vænt um aðstoð við þessu því þetta er að gera mig vitlausann
![Cat got my balls :catgotmyballs](./images/smilies/aiwebs_014.gif)