Uppfærsla á Skjákorti (GTA V)


Höfundur
jörundur85
Græningi
Póstar: 41
Skráði sig: Sun 20. Apr 2014 16:31
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Uppfærsla á Skjákorti (GTA V)

Pósturaf jörundur85 » Fim 16. Apr 2015 11:12

Sælir

Nú er maður að pæla í enn einni uppfærslunni, ég er þegar búinn að ákveða að kaupa mér SSD disk(http://www.start.is/index.php?route=product/product&product_id=719). Síðan fór maður að pæla í skjákortinu, svona að tilefni þess að GTA V er kominn á PC. Ég hef verið að skoða Geforce GTX 970 4GB (http://www.start.is/index.php?route=product/product&path=25_28_69&product_id=880). Hvað finnst ykkur? Hafið þið einhverja reynslu af þessu módeli fyrir GTA V? Og eru allt annað í lagi til þess að hoppa í þessa uppfærslu?


Vélin:
Turn: Cooler Master Elite 335U
Móðurborð: Gigabyte Z97X-Gaming 5, LGA1150, 4xDDR3, 1x.M.2, 6xSATA3, SLI
Örgjörvi: Intel Core i7-4790 3.6GHz, LGA1150, Quad-Core, 8MB cache
Skjákort: ASUS GeForce® GTX 760 DirectCU II 2GB GDDR5
Vinnsluminni: 8GB Kingston HyperX Predator 2133MHz (2x4GB) CL11
Aflgjafi: 600w Corsair CX600 V2 aflgjafi
Microsoft Windows 7 Home Premium Edition 64-bit
Síðast breytt af jörundur85 á Fim 16. Apr 2015 11:39, breytt samtals 1 sinni.


Turn:
Fractal Design Define r5 hvítur - MSI X99A Raider LGA 2011-v3 - Intel i7 5820K 4.2 GHz, MSI GTX1070 8G Gaming X - Crucial Ballistix Sport 16GB Kit (8GBx2) 2400Mhz - Samsung 240G SSD - 1 TB Western Digital Black 7200 - Asus 27" PG278Q TN LED 1ms 2560x1440 144hz

Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1510
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 240
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Skjákorti.

Pósturaf nidur » Fim 16. Apr 2015 11:16

Ég var að kaupa msi gtx 970 gamer, leikurinn keyrir mjög vel.


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.

Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1585
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 63
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Skjákorti (GTA V)

Pósturaf Xovius » Fim 16. Apr 2015 11:41

Ég er með tvö gigabyte windforce 970 og þau performa mjög vel. Er auðveldlega að ná 144fps (cappið fyrir skjáinn minn) bara með því að lækka antialiasing aðeins. Annars er allt í hæstu stillingum. Eitt kort ætti að runna 60fps auðveldlega.




Höfundur
jörundur85
Græningi
Póstar: 41
Skráði sig: Sun 20. Apr 2014 16:31
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Skjákorti (GTA V)

Pósturaf jörundur85 » Fim 16. Apr 2015 19:04

Ég var einhverstaðar búinn að heyra að 4Ggb VRam væri að ná að keyra leikinn í hæstu gæðastillingum, er eitthvað vit í því. Einnig, er 600w aflgjafi alveg að fara að styðja þetta kort??


Turn:
Fractal Design Define r5 hvítur - MSI X99A Raider LGA 2011-v3 - Intel i7 5820K 4.2 GHz, MSI GTX1070 8G Gaming X - Crucial Ballistix Sport 16GB Kit (8GBx2) 2400Mhz - Samsung 240G SSD - 1 TB Western Digital Black 7200 - Asus 27" PG278Q TN LED 1ms 2560x1440 144hz

Skjámynd

flottur
Tölvutryllir
Póstar: 694
Skráði sig: Þri 02. Jún 2009 14:37
Reputation: 47
Staðsetning: Gardentown
Staða: Tengdur

Re: Uppfærsla á Skjákorti (GTA V)

Pósturaf flottur » Fim 16. Apr 2015 19:20

jörundur85 skrifaði:Ég var einhverstaðar búinn að heyra að 4Ggb VRam væri að ná að keyra leikinn í hæstu gæðastillingum, er eitthvað vit í því. Einnig, er 600w aflgjafi alveg að fara að styðja þetta kort??


Aflgjafin þinn á alveg að geta höndlað skjákortið.
Annars hef ég ekki hugmynd um hvort 4gb af vrami ætti að vera nóg til að keyra leikin í hæstu stillingum.

Tékkaðu á þessu til að geta séð hvernig 970 höndlar gta 5



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Skjákorti (GTA V)

Pósturaf Danni V8 » Fös 17. Apr 2015 09:03

jörundur85 skrifaði:Ég var einhverstaðar búinn að heyra að 4Ggb VRam væri að ná að keyra leikinn í hæstu gæðastillingum, er eitthvað vit í því. Einnig, er 600w aflgjafi alveg að fara að styðja þetta kort??


4GB vram er nóg til að setja allt í max. Til að prófa þetta þá stillti ég leikinn hjá mér í algjört max @ 1920x1080 og rönnaði benchmarkið. Leikurinn sagðist vera að nota 3552 af 4095mb.

Ég spila leikinn með mest allt í High og bara avarage veiw distance og fer ekki undir 60fps nema það sé eitthvað rosalega mikið að gerast á skjánum, en með allt maxað eins og hægt er var leikurinn í svona 35-40fps avarage en droppaði niður í 28 lægst þegar það var mikið að gerast í benchmarkinu.

Þetta er á 2x 770 4gb.

4GB er nóg vram til að maxa allt, en síðan fer það bara eftir krafti kortsins hvort það nær að halda FPS á ásættanlegu leveli með allt í max.

Og varðandi aflgjafan, þá á 600w aflgjafi að fara létt með eitt 970. Ég er að keyra bæði mín 770 kort á 750w aflgjafa.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1585
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 63
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Skjákorti (GTA V)

Pósturaf Xovius » Fös 17. Apr 2015 09:49

600w er fínt í þetta kort, það dregur mjög lítið rafmagn. Annars varðandi VRam, ég er með tvö 970 svo þau samnýta 4GB (eða 3.5+0.5slow í þessu tilfelli) og það virðist ekkert takmarka performance hjá mér þó ég setji allt í botn.