Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Skjámynd

Höfundur
Sveppz
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Mið 08. Okt 2003 20:40
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf Sveppz » Fim 05. Mar 2015 23:31

Sælar verðlöggur,

Langar til að athuga hvað verðfallið er á tilteknu korti sem kostaði 120 þúsund krónur nýtt.

http://www.evga.com/Products/Specs/GPU.aspx?pn=E4755EA0-12DF-4F22-ABA3-650C494D83DC

* Kortið var sérpantað hjá Start í ágúst/september 2014
* Aldrei verið yfirklukkað.
* Rykhreinsað á 2 vikna fresti.


Nú er spurningin. Hvernig er verðmatið á þessu ?


- AMD Ryzen 9 7900X , ASRock X670E PG Ligtning , G.Skill 32GB DDR6 6000Mhz CL36 , NH-D15 , PowerColor RX 7900XTX Red Devil , Seasonic Prime TX 1600 -

Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf MatroX » Fim 05. Mar 2015 23:38

45-50þús sirka


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Fös 06. Mar 2015 00:28

Persónulega myndi ég segja allavega 60 - 65 þús og byggi ég það á að nýtt gtx980 kostar 99.990 kr. GTX980 er að meðaltali um 10% hraðara en GTX780Ti í leikjum miðað við þá benchmarks sem ég hef skoðað og ef við miðum við 70% af nývirði regluna myndi það gera 70 þús en þar sem 980 er nýrra generation(lægra TDP og hljóðlátara) tel ég sanngjarnt að lækka 780Ti kortið aðeins meira. Þetta er einungis mitt mat, endilega látið heyra í ykkur ef þið eruð ósammála.



Skjámynd

Höfundur
Sveppz
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Mið 08. Okt 2003 20:40
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf Sveppz » Fös 06. Mar 2015 08:35

I-JohnMatrix-I skrifaði:Persónulega myndi ég segja allavega 60 - 65 þús og byggi ég það á að nýtt gtx980 kostar 99.990 kr. GTX980 er að meðaltali um 10% hraðara en GTX780Ti í leikjum miðað við þá benchmarks sem ég hef skoðað og ef við miðum við 70% af nývirði regluna myndi það gera 70 þús en þar sem 980 er nýrra generation(lægra TDP og hljóðlátara) tel ég sanngjarnt að lækka 780Ti kortið aðeins meira. Þetta er einungis mitt mat, endilega látið heyra í ykkur ef þið eruð ósammála.


Ég hafði einmitt hugsað á milli 60-70 þús. Finnst mjög fáránlegt að selja kort sem er hálfs árs gamalt undir 40% af nývirði.

60% af nývriði yrði þá 72. þúsund.

Sambærilegt nýtt 980 kort væri þá ódýrast nýtt á 109. þúsund eða Asus Strix kortið. Og segjum að 60% af nývirði þess væri þá 65.400kr. (þá er viðmiðið 70%-10% af nývirði þar sem 980 er +10% betra)

Þótt að 700línan sé komin í eldri kantinn þá ætti hún ekki að vera komin á brunaútsölu :fly


- AMD Ryzen 9 7900X , ASRock X670E PG Ligtning , G.Skill 32GB DDR6 6000Mhz CL36 , NH-D15 , PowerColor RX 7900XTX Red Devil , Seasonic Prime TX 1600 -

Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 573
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Reputation: 76
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf Hannesinn » Fös 06. Mar 2015 10:14

Settu bara á það 70 þús. og athugaðu hvernig það gengur. Ég hef reyndar enga trú á að það seljist á 70 þús., en við tveir ráðum ekki gangverði. :)


Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf kiddi » Fös 06. Mar 2015 11:57

Það er ekkert fyrirfram ákveðið "verðfall" á notaðri vöru. Þessi "regla" um "30% af nývirði" sem svo margir Vaktarar vísa í er bara rugl, viðmiðun í besta falli. Víða erlendis, t.d. í USA, er 15-20% með því mesta sem gerist í afföllum á notuðum nýlegum vörum. Þú einfaldlega setur það verð sem þú vilt fá fyrir skjákortið og ef einhver þarna úti hefur áhuga á því þá annaðhvort borgar hann uppsett verð eða gerir þér tilboð sem viðkomandi þykir sjálfum sanngjarnt, þú ræður svo alveg hvort þú tekur því eða ekki. Ef þú færð engin tilboð þá veistu að verðið er of hátt og getur þá annaðhvort lækkað verðið, beðið lengur, eða hætt við sölu. Þett'er ekkert flókið :)



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2341
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 405
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf Moldvarpan » Fös 06. Mar 2015 13:20

Var að skoða aðeins ebay og amazon að ganni.

Það er hægt að fá alveg eins sem og samskonar kort, nema það er líka Classified, heimkominn með öllum kostnaði á 120.000kr
Þau væru í 12 mánaða ábyrgð og bæði voru Refurbished.
http://www.ebay.com/itm/3GB-EVGA-GTX-780-Ti-Dual-Classified-ACX-PC3-0-7000MHz-GDDR5-GPU-EVGA-Refurbished-/251855044803?pt=LH_DefaultDomain_3&hash=item3aa3bb00c3

http://www.amazon.com/gp/offer-listing/B00GMTGJIU/ref=dp_olp_refurbished?ie=UTF8&condition=refurbished


Svo mér finnst 70k nokk sanngjarnt verð fyrir þetta kort með þetta mikið eftir af ábyrgðinni.



Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 573
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Reputation: 76
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf Hannesinn » Fös 06. Mar 2015 13:52

kiddi skrifaði:Það er ekkert fyrirfram ákveðið "verðfall" á notaðri vöru. Þessi "regla" um "30% af nývirði" sem svo margir Vaktarar vísa í er bara rugl, viðmiðun í besta falli. Víða erlendis, t.d. í USA, er 15-20% með því mesta sem gerist í afföllum á notuðum nýlegum vörum. Þú einfaldlega setur það verð sem þú vilt fá fyrir skjákortið og ef einhver þarna úti hefur áhuga á því þá annaðhvort borgar hann uppsett verð eða gerir þér tilboð sem viðkomandi þykir sjálfum sanngjarnt, þú ræður svo alveg hvort þú tekur því eða ekki. Ef þú færð engin tilboð þá veistu að verðið er of hátt og getur þá annaðhvort lækkað verðið, beðið lengur, eða hætt við sölu. Þett'er ekkert flókið :)

Gríðarlega sammála þessu innleggi. Það eina sem ræður endursöluvirði er eftirspurnin.

Í þessu tilviki, þá er hins vegar um að ræða skjákort þar sem nýjusta kynslóðin eru ekki bara smá upgrade, heldur eru þau öflugri, nota minna rafmagn (þurfa minni aflgjafa), hitna minna (minni kælikostnaður), og það sem skiptir í þessu samhengi, high-end kortin kostuðu mun minna en high-end kortin af seinustu kynslóð.

Nývirði og þessi "70% viðmið" skipti bara engu máli, hvorki hér né annars staðar.


Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.

Skjámynd

hjalti8
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 353
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 13:03
Reputation: 16
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf hjalti8 » Fös 06. Mar 2015 14:39

Mér finnst eðlilegra að bera þetta kort saman við 970 frekar en 980.
Skv meðaltali úr 20 nýlegum leikjum þá er perf munurinn á 970 og 780ti á bilinu 2-4%.
Svo er 970 með meira vram og eyðir minna rafmagni svo að ég sé enga ástæðu fyrir því að taka 780ti fram yfir 970 kort.

Miðað við að nýtt 970 kort kostar 60-70k þá finnst mér verðmatið hjá matrox spot on.

Sveppz skrifaði: Finnst mjög fáránlegt að selja kort sem er hálfs árs gamalt undir 40% af nývirði.

Svona er þetta bara með þessi overpriced high-end kort. Þökk sé moore's law og góðri gpu skölun fyrir auka transistors þá eru skjákort einfaldlega bara ein slæm fjárfesting. Allir sem hafa selt svona kort kannast við hvað þetta er leiðinleg tilfinning :dissed



Skjámynd

Höfundur
Sveppz
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Mið 08. Okt 2003 20:40
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf Sveppz » Fös 06. Mar 2015 15:32

Mér finnst eðlilegra að bera þetta kort saman við 970 frekar en 980.
Skv meðaltali úr 20 nýlegum leikjum þá er perf munurinn á 970 og 780ti á bilinu 2-4%.
Svo er 970 með meira vram og eyðir minna rafmagni svo að ég sé enga ástæðu fyrir því að taka 780ti fram yfir 970 kort.


Þú ertu samt að gleyma því að 780ti kortið er betra all-around kort. En ef þú lítur á þetta eingöngu út frá leikjagetu þá er rétt að miða þetta við 970.

780Ti er t.d. með 45% betri FLOP heldur en 970 og 50% meiri bandvídd á minni, sem hefur reynst mér mun betur fyrir myndvinnslu heldur en 970 eða jafnvel 980 myndi gera.

En niðurstaðan er hinsvegar sú að sanngjarnt sé að selja svona kort fyrir 50% af upprunalegu verði eða 60þús, ef einhver er tilbúinn til að kaupa á því verði.

Þakka fyrir þetta drengir. =D>


- AMD Ryzen 9 7900X , ASRock X670E PG Ligtning , G.Skill 32GB DDR6 6000Mhz CL36 , NH-D15 , PowerColor RX 7900XTX Red Devil , Seasonic Prime TX 1600 -

Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf MatroX » Fös 06. Mar 2015 19:53

kiddi skrifaði:Það er ekkert fyrirfram ákveðið "verðfall" á notaðri vöru. Þessi "regla" um "30% af nývirði" sem svo margir Vaktarar vísa í er bara rugl, viðmiðun í besta falli. Víða erlendis, t.d. í USA, er 15-20% með því mesta sem gerist í afföllum á notuðum nýlegum vörum. Þú einfaldlega setur það verð sem þú vilt fá fyrir skjákortið og ef einhver þarna úti hefur áhuga á því þá annaðhvort borgar hann uppsett verð eða gerir þér tilboð sem viðkomandi þykir sjálfum sanngjarnt, þú ræður svo alveg hvort þú tekur því eða ekki. Ef þú færð engin tilboð þá veistu að verðið er of hátt og getur þá annaðhvort lækkað verðið, beðið lengur, eða hætt við sölu. Þett'er ekkert flókið :)

Hann bað um verðmat, og við gáfum honum það, í þessu tilfelli er ekki hægt að fara eftir eitthverjari 30% af nývirði sem er búinn að vera fínt viðmið í mörg ár en þú ert greinilega ekki á því, og það er ekki rétt að í usa er það bara 15-20% ég hef keypt helling af drasli af t.d overclock.net og það hefur oft verið miðað við 30% eða jafnvel meira, þú getur googleað og séð að það er oft og mörgum sinnum sagt að 30% sé fínt viðmið t.d á tomshardware,

núna vill ég hreint út sagt segja að kommentið þitt sé óþarfa komment og á engan tilgang í þessum þræði þar sem hann bað um verðmat, þ

í þessu tilfelli þá er GTX970 betra á flesta vegu og sérstaklega þegar þú oc'ar það, eini hluturinn sem 780ti hefur fram yfir GTX970 er gflop og cuda cores

þetta kort er að fara á 290-450$ dollar notuð að utan, og hærri kortin eru kingpin kort eða classified kort sem er ekki hægt að bera við þetta þetta sem hann er að selja.

þar sem það er hægt að fá nýtt 970 á 59.990 þá er 45-50þús max fyrir þetta. tek það fram allir mega hafa sína skoðun og hann bað um verðmat,


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf kiddi » Fös 06. Mar 2015 20:41

MatroX skrifaði:núna vill ég hreint út sagt segja að kommentið þitt sé óþarfa komment og á engan tilgang í þessum þræði þar sem hann bað um verðmat


Ég var kannski ekki nógu skýr, ég var í rauninni ekki að svara OP heldur einu af commentunum þar sem segir "ef við miðum við 70% af nývirði regluna", og þar sem ég lít á sjálfan mig sem sjálfskipaðan krossfara gegn verðlöggunni þá auðvitað get ég ekki sleppt tækifæri til að skipta mér af og reyna að leiðrétta þetta hugarfar margra Vaktara, að þeir telji sig hafa einhvern rétt á því að stýra því hvað er rétt og rangt verð á einkahlutum einstaklinga, þar sem það tíðkast hvergi annarsstaðar, í gervallri veröldinni. Það er allt í góðu að hann biðji um verðmat, en þegar ég heyri minnst á þessa blessuðu "70% af nývirði" reglu þá ræð ég bara ekki við mig :sleezyjoe



Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Fös 06. Mar 2015 21:48

kiddi skrifaði:
MatroX skrifaði:núna vill ég hreint út sagt segja að kommentið þitt sé óþarfa komment og á engan tilgang í þessum þræði þar sem hann bað um verðmat


Ég var kannski ekki nógu skýr, ég var í rauninni ekki að svara OP heldur einu af commentunum þar sem segir "ef við miðum við 70% af nývirði regluna", og þar sem ég lít á sjálfan mig sem sjálfskipaðan krossfara gegn verðlöggunni þá auðvitað get ég ekki sleppt tækifæri til að skipta mér af og reyna að leiðrétta þetta hugarfar margra Vaktara, að þeir telji sig hafa einhvern rétt á því að stýra því hvað er rétt og rangt verð á einkahlutum einstaklinga, þar sem það tíðkast hvergi annarsstaðar, í gervallri veröldinni. Það er allt í góðu að hann biðji um verðmat, en þegar ég heyri minnst á þessa blessuðu "70% af nývirði" reglu þá ræð ég bara ekki við mig :sleezyjoe


Ég sagði að "ef við miðum við" s.s. viðmið, það er enginn að segja að þetta sé heilög regla og það er enginn að reyna stýra hvað er rétt eða rangt verðmat á einkahlutum. OP bað um álit og við svöruðum eftir bestu getu, þegar kemur að tölvuíhlutum er 70% af nývirði sambærilegs hluts mjög góður viðmiðunarpunktur svo er hægt að lækka og hækka eftir aðstæðum og ástandi. Hann bað um verðmat og ég sagði mitt álit ásamt rökstuðningi, einnig var ég ekki með neinn dónaskap þannig að þitt comment á einfaldlega ekki við í þessum þræði. Ef þú villt ræða um þig og þína krossferð gegn verðlöggum ættirðu að gera það í öðrum þræði, held það sé meira segja til svoleiðis þráður og þar var skoðanakönnun sem sýndi á svart og hvítu að þú værir í minnihluta þegar kom að þínum skoðunum á verðlöggum.



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2770
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 124
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf zedro » Lau 07. Mar 2015 16:51

Dísús, þetta röfl alltaf. Kiddi var með fínt komment, á allveg við, það er engin föst regla á 70%. Framboð og eftirspurn og allt það.
Ef fólk ætlar að koma með verðmat þá á viðkomandi að bakka þau upp með gögnum. Hlekk á sambærilegt kort og hlekk á benchmarks
Innleggið hans MatroX er gott dæmi um slæmt innlegg.

Ég sé ekkert af því að setja þetta kort til sölu á 80k spurningin er, er einhver tilbúinn að kaupa það á því verði.
Gallinn er bara að svona vörur eiga til að falla í verði þegar nýjar línur koma út og maður þarf að bíta í það súra epli.

Vinsamlegast haldið ykkur on topic héðan í frá O:)


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf DJOli » Lau 07. Mar 2015 17:33

Ef það hjálpar, þá myndi ég ef ég ætti efni á því, með glöðu geði, borga 60-65 fyrir þetta kort.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf MatroX » Lau 07. Mar 2015 19:32

zedro skrifaði:Dísús, þetta röfl alltaf. Kiddi var með fínt komment, á allveg við, það er engin föst regla á 70%. Framboð og eftirspurn og allt það.
Ef fólk ætlar að koma með verðmat þá á viðkomandi að bakka þau upp með gögnum. Hlekk á sambærilegt kort og hlekk á benchmarks
Innleggið hans MatroX er gott dæmi um slæmt innlegg.

Ég sé ekkert af því að setja þetta kort til sölu á 80k spurningin er, er einhver tilbúinn að kaupa það á því verði.
Gallinn er bara að svona vörur eiga til að falla í verði þegar nýjar línur koma út og maður þarf að bíta í það súra epli.

Vinsamlegast haldið ykkur on topic héðan í frá O:)

Viltu þá ekki bara banna mig finnst mitt innleg var svo slæmt ?????

það var akkurat ekkert að mínu innlegi og ef eitthvað er þá hafði ég rétt fyrir mér þótt þú sért ekki sammála,

alveg magnað að það sé alltaf hægt að finna að commentunum mínum þegar það eina sem ég gerði var að svara gaurnum, :fly


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2770
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 124
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Verðmat á EVGA 780Ti sc ACX

Pósturaf zedro » Lau 07. Mar 2015 21:20

MatroX skrifaði:Viltu þá ekki bara banna mig finnst mitt innleg var svo slæmt ?????

Það er minnsta vandamálið. ;)

En svo ég svari þessu á uppbyggjandi hátt þá er ástæða afhverju þitt innlegg var flokkað sem slæmt innlegg og hefðirðu lesið það sem
ég skrifaði í innleggi mínu þá sæirðu alveg afhverju, en nei þú tekur því persónulega og ferð í fílu með þessu fína innleggi þínu og viljandi
reynir að pikka slagsmál. Þér dettur ekki í hug að jafnvel skoða hvernig þú getir bætt þig í framtíðinni.

Ef það fór framhjá einhverjum þá var ástæðan fyrir því að innlegg þitt flokkaðist sem slæmt eftirfarandi:
zedro skrifaði:Ef fólk ætlar að koma með verðmat þá á viðkomandi að bakka þau upp með gögnum. Hlekk á sambærilegt kort og hlekk á benchmarks
Innleggið hans MatroX er gott dæmi um slæmt innlegg.

Þú kemur með staðhæfingu um verðhugmynd:
MatroX skrifaði:45-50þús sirka

Á korti sem kostaði 120þ.kr nýtt sem er 6 mánaða gamalt og tekur ekkert fram afhverju það er svona klikkuð verðlækkun.
Þar af leiðandi flokkaði ég innlegg þitt sem slæmt innlegg og hvet þig til að huga að því í framtíðar verðgæslu.

MatroX skrifaði:alveg magnað að það sé alltaf hægt að finna að commentunum mínum þegar það eina sem ég gerði var að svara gaurnum,

Þú verður að gera þér grein fyrir því að hvernig þú svara fólki hefur áhrif á hvernig fólk bregst við því sem þú segir.

Dæmi: "30-40k af því ég segi það"

Fær óneitanlega verri viðbrög en:

Dæmi: "Ég verðlegg þetta á 30-40 því sambærilegt vara fæst á 50 hjá aðila X og sú vara er betra en vara sem er þú ert að selja".

Alræt allir sáttir? Z out :happy


Kísildalur.is þar sem nördin versla