Hröð Browser vél fyrir eldri mann

Skjámynd

Höfundur
oskar9
vélbúnaðarpervert
Póstar: 943
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Hröð Browser vél fyrir eldri mann

Pósturaf oskar9 » Fös 23. Ágú 2013 11:07

Sælir Vaktarar, er að setja saman nýja vél fyrir afa því hann er að brjálast á sinni gömlu (gamall dell turn með pentium örgjörva og 1gb af DDR minni) tölvan er svolítið mikið notuð en einungis fyrir browser notkun, þarf að vera snögg að ræsa sig og geta keyrt slatta af gluggum í chrome án þess að fara yfir um. Gamli ætlar ekkert að moka í þetta einhverjum helling þannig að ég fór í að setja saman netta budget vél sem hentar vel fyrir þetta.

Móðurborð: Asus P8H61 R2 - ITX borð fyrir 1155 socket
Örri: i3 2120 3.3 GHZ - Hvernig er innbygða skjástýringin að tækja 720p video og slíkt ?
Corsair: CX-500W aflgjafi - Treysti Corsair vel fyrir þessu og vil frekar borga aðeins fyrir gott PSU
RAM: Corsair 4GB DDR3 1600mhz Value
SSD: 120Gb Samsung 840 EVO
Kassi: Coolermaster Elite 120 Mini-ITX - Nettur kassi fyrir Mini-ITX borð en tekur samt PSU og skjákort í fullri stærð.

Smellti þessu saman hjá Tl.is og verðið er sléttur 90 þús kall sem ég tel ágætlega sloppið.

Er þörf á skjákorti með þessum örgjörva eða tæklar hann allt sem svona heimilisvélar lenda í ? ( annars styður kassinn öll skjákort svo maður gætt bætt því við seinna meir ef hann verður ekki sáttur við skjástýringuna)
Hafa Mini-ITX borð einhverja galla fram yfir venjuleg ATX borð fyrir svona heimilisvélar.
megið endilega skjóta því inn ef eitthvað mætti betur fara en 90-100 þús er svona toppurinn í verðinu

Það þarf svo ekki að segja mér að versla þetta ekki hjá Tölvulistanum þar sem ég fæ alltaf frábæra og snögga þjónustu hjá þeim á Akureyri svo þetta verður verslað þar nema einhver finni betri hluti sem þeir eru ekki að selja ;)

Takk fyrir


"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hröð Browser vél fyrir eldri mann

Pósturaf Gúrú » Fös 23. Ágú 2013 11:12

Mér finnst þetta allt of allt of dýrt fyrir notendakröfurnar.

Í allra versta falli myndi góð lausn fyrir svona notkun (keypt notuð) kosta svona 50 þúsund þar með talið SSD diskur.

Var að setja upp í gegnum markaðinn á Vaktinni turn fyrir vin á svona 24.000 sem gerir allt það sem þú ert að lýsa, en ég hef vissulega það yfir þig að vera staðsettur í Reykjavík.


Modus ponens


playman
Vaktari
Póstar: 2046
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 82
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hröð Browser vél fyrir eldri mann

Pósturaf playman » Fös 23. Ágú 2013 11:34

Uppfærsla 1 24.900kr
• AMD A4-3300 Dual Core 2.5GHz
• GIGABYTE A75M-DS2 móðurborð
• 4GB DDR3 1333MHz vinnsluminni
• 1GB Radeon HD6410D DX11 skjákjarni
• 5.1 HD Home Theater hljóðstýring
• 2xUSB3, 8xUSB2, SATA3 RAID, ofl.
• Passar í flestar eldri tölvur
Gigabyte GZ-P5 PLUS ATX turnkassi, svartur 7.990kr
Antec Neo Eco EC-2 620W aflgjafi, 120mm vifta, svartur 16.900kr
120GB SATA3 Mushkin SSD 2.5'' Chronos Low Profile 19.900kr

Samtals: 69.690kr

Svo gætirðu farið í þennan turn sem er með aflgjafa í staðin fyrir turninn og aflgjafan sem er í efra dæminu.
Inter-Tech Starter 4 ATX turnkassi með 500W aflgjafa, svartur 8.990kr
En flest allir mæla ekki með Inter tech aflgjöfum, vegna þess hve ílla sumir hafa lent í þeim, en þitt er valið.

Samtals: 53.790kr

En þessi vél ætti að tækla allt sem gamli ætlar sér fyrir. (nema að honum detti allt í einu að fara að spila BF3)


CPU: Intel Core i7-14700KF Icosa Core @ 3.4GHz RAM:32GB DDR5 6000MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
SSD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z790 Eagle AX GPU: NVIDIA RTX 3070Ti 8Gb
[Main screen:]LG UltraGear 32GP850-B 32" QHD nano-IPS [Secondary screen:] BenQ GW2455 - 24" 16:9 [Tertiary Screen:] BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9