MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Skjámynd

Höfundur
gledigondull
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mið 19. Jan 2011 19:54
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf gledigondull » Lau 23. Feb 2013 12:19

Sælir

Viftan í skjákortinu mínu er að hegða sér undarlega. Þegar ég spila leiki þá fer RPM-ið alltaf í botn eftir nokkrar mínútur og hljómar eins og flugvél þrátt fyrir að kortið sé einungis í 50 gráðum.

Er búinn að prufa að læsa hana í CCC í 45%, prufaði líka Afterburner og setti í 45%. Gerist alltaf það sama.

Búinn að installa dræverum aftur og ekkert virkar. Virðist ekki geta stjórnað viftunni. Ef ég finn ekkert útúr þessu ætla ég að setja OS-ið upp aftur.

Einhver hér sem hefur lent í þessu eða hefur uppástungur?



Skjámynd

Höfundur
gledigondull
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mið 19. Jan 2011 19:54
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf gledigondull » Lau 23. Feb 2013 15:28

Er búinn að vera að prófa þetta.

Ég læsi viftuna í 45% og hún fer þangað. Svo kveiki ég á t.d. Furmark eða einhverjum random leik.

Þegar kortið kemst í 55 gráður fer viftan að hækka rólega.

Svo í 57-58 gengur hún af göflunum...

Makes no sense.



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4328
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf chaplin » Lau 23. Feb 2013 15:33

Byrjaði þetta að gerast eftir e-h breytingar? Búinn að prufa annan driver?


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

Skjámynd

Höfundur
gledigondull
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mið 19. Jan 2011 19:54
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf gledigondull » Lau 23. Feb 2013 15:45

Búinn að prufa einn eldri driver. Engar breytingar nema ég skipti gölluðu 660ti korti út fyrir þetta.

Eina sem ég hef fundið inná netinu um þetta var RMA: http://forum-en.msi.com/index.php?topic=166687.0



Skjámynd

hjalti8
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 353
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 13:03
Reputation: 16
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf hjalti8 » Lau 23. Feb 2013 17:41

ég myndi bara skila kortinu og fá nýtt.
ef það gengur ekki þá hljómar þetta eins og bios vandamál, ég er akkurat með svona kort og ekkert vesen á mínu en það eru reyndar til amk 3 týpur af þeim, er þitt kort með 2x6 pin tengjum eða 1x6+1x8?
annars geturu nátturulega alltaf fengið þér betri kælingu þar sem twin frozr kælingin verður hvort eð er fljótt hávær þegar þú ferð út í yfirklukkun.

edit: hver eru stock clocks hjá þér?



Skjámynd

Höfundur
gledigondull
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mið 19. Jan 2011 19:54
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf gledigondull » Lau 23. Feb 2013 19:54

Mitt kort er 2x6 pin. Stock clocks eru 960 og 1250.

Er búinn að update-a Bios og finn ekki Vbios update fyrir kortið sjálft. Búinn að hjóla beint í MSI og þeir standa á gati.

Ég mun ekki yfirklukka til að byrja með þar sem þetta kort étur nánast allt sem ég kasta á það eins og er. Væri samt fínt að komast yfir 55 gráður án þess að stock viftan fari í 100%, hljómar eins og ég sitji inní flugvélahreyfli. :lol:

Bjalla í verkstæðið á mánudag og reyni að skipta því út. Vonandi fyrir ASUS týpuna... þar sem þetta er annað skjákortið frá MSI á stuttum tíma sem ég fæ gallað. :thumbsd



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Tengdur

Re: MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf DJOli » Lau 23. Feb 2013 20:02

Prufaðu Rivatuner.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

Höfundur
gledigondull
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mið 19. Jan 2011 19:54
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: MSI R7950 Twin Frozr viftuvandamál

Pósturaf gledigondull » Lau 23. Feb 2013 20:28

Datt það í hug en það virkar ekki heldur. Og ekki Speedfan né Precision. (By the way, er bara með eitt forrit installað í einu)

Tók líka eftir einu áðan, þegar vifturnar fara í botn (í 55 gráðum) hoppar GPU load á milli 64% og 100% eins og brjálæðingur (í stress testi). Kortið fer hæst í 62 gráður.

Lítur út fyrir að vera einstaklega gallað eintak. :face