Ég var að lesa ansi skemmtilega grein á [H]ard|OCP um nýja tækni sem Nvidia hefur innleitt í kjarna sína ( Geforce 6800+ og einnig ný Quadro kort) . Ég vissi svosem af þessu fyrir þar sem þeir keyptu allar vitsmunaeignir frá 3DFX fyrirtækinu sáluga. Þeir notfærðu sér þekkingu 3DFX á fyrirbæri sem þeir kölluðu "SLI" eða "Scan Line Interleaving". Gamla "SLI" tæknin var þannig að þú keyptir þér tvö Voodoo2 kort frá 3DFX og tengdir þau saman sem gerði það að verkum að þau unnu í sameiningu, annað kortið teiknaði oddatölu línur, hitt teiknaði heilu tölu línurnar.
Nú hefur Nvidia unnið að því að þróa þessa tækni og hefur náð henni nokkuð vel á strik. Þeirra útgáfa vinnur keimlíkt og hin en þó ekki alveg eins. Með tilkomu PCI-Express verður hægt að hafa tvö skjákort í einni tölvu leikandi létt. Kortin eru tengd saman með brú sem tryggir það að þau vinna saman. Þau skipta með sér verklaginu bróðurlega en ekki til helminga eins og 3DFX gerði forðum, nýja tæknin skiptir skjánum í tvo bita, stærðin á bitunum fer eftir því hversu mikið álag er á hverju korti fyrir sig. Þegar annað kortið er ekki að gera neitt þá fær það stærri skerf af skjánum til útreikninga.
Með þessu eru þeir að stíga stórt skref fram á við og mun grafík vinnslu heimurinn örugglega fagna þessu þar sem þú getur verið með tvö Nvidia Quadro kort í einni vél !

Nú er bara að bíða og sjá hvernig þeir spila úr þessu, en þetta er mjög spennandi tækni....
Hér eru nokkrir hlekkir á umfjöllun um tæknina

Umfjöllun hjá [H]ard|OCP
Umfjöllun hjá Anandtech.com
Umfjöllun hjá tech-report.com
Umfjöllun hjá kjánunum á tomshardware.com
"Official" heimasíða SLI frá Nvidia
