Video grabber vs gæði á video


Höfundur
HómerZim
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Þri 15. Des 2009 18:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Video grabber vs gæði á video

Pósturaf HómerZim » Sun 18. Nóv 2012 22:17



ég er óvanur þessum pælingum, en mig vantar að flytja gögn af filmu (DV) yfir í tölvu.
Eftir því sem mér skilst þá þarf ég að láta videocameruna (JVC GR-DVL 9800) spila filmuna og tengja með vír í tölvuna og láta þar eitthvað apparat taka það upp. (ef það er til betri aðferð væri ég til í að heyra um það)

Nú ég fór og keypti svona http://www.computer.is/vorur/6078/ og tengdi með gulum/rauðum/hvítum RCA tengingum á milli.
Fyrir það fyrst þá virkaði ekki hugbúnaðurinn sem fylgdi í boxinu(hann startaði eðlilega sýndi myndina sem cameran var að keyra reyndar í crappy gæðum en ég ákvað að reyna taka upp , en þegar ég ýtti á "record" þá fraus allt" ég prófaði nokkrum sinnum og líka að henda öllu út og endur installa) þannig að ég prófaði að niðurhala öðru forriti til að vinna upptökuna með og náði í prufuútgáfu að "powerdirector 11". Það tókst betur, nema hvað gæðin á myndinni voru léleg (mjög léleg). ég prófaði að tengja með s-video (fyrir mynd) og hvítu og rauðu RCA (fyrir hljóð) og þá batnaði myndin örlítið, en er samt lélegt.
Til samanburðar þá prófaði ég þetta beint í sjónvarp (með RCA tenginu Gulur/Rauður/Hvítur), þar er myndin mun betri. (ekkert frábær gæði, en alveg vel ásættanleg)
Því spyr ég hérna inni, í hverju liggur gæðamunurinn ? er þetta usb video grabber bara lélegur búnaður, þarf ég að kaupa betra innbyggt kort ? eða þarf ég að nota eitthvað annað.

Ég var að láta mér detta í hug hvort USB sé ekki nógu hraðvirkt, ég á að vera með usb2 sem á að geta gefið 480 Mbits (ef það er að virka eðlilega hjá mér) er það ekki sambærilegt við sambærilega gamalt firewire ?

Tölvan sem ég er með er svona Intel Duo 1.6 (775) Gigabyte P31-es3g móðurborð og Evga e-Geforce 8600 GT 256 skjákort 2 gb ddr2




DerrickM
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Þri 09. Okt 2012 17:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Video grabber vs gæði á video

Pósturaf DerrickM » Sun 18. Nóv 2012 22:24

Ertu búinn að prófa Windows Movie Maker, notaði það sjálfur einu sinni?




vinsi2
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Sun 18. Nóv 2012 22:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Video grabber vs gæði á video

Pósturaf vinsi2 » Sun 18. Nóv 2012 22:58

Ef ég skil vandamálið rétt þá ætlar þú að færa video sem tekið er upp á Mini-DV spólur inn í tölvu.
"vantar að flytja gögn af filmu (DV) yfir í tölvu."
Þetta stykki sem þú keyptir er til að "breyta analog vídeómerki í stafrænt form" en þú er með stafræna gögn á þínu bandi svo þetta virkar ekki. Hins vegar gætir þú tengt VHS tækið þitt við þetta og fært uppáhalds spólurnar yfir í stafrænt form.

Ég googlaði þessa vél sem þú gafst upp og hún á að vera með firewire tengi (IEEE 1394), þú þarft sennilega að nota það því USB er ekki nógu hraðvirkt til að hafa undan
að flytja gögnin inn. Ef að ekki er slíkt tengi á tölvunni þinni er hægt að fá kort með slíku http://www.computer.is/flokkar/47/
og snúru þarftu líka http://www.computer.is/flokkar/146/

Sumar fartölvur eru með svona tengi.

Sennilega getur þú svo notað Windows Movie Maker eða eitt af mörgum klippiforritum til að taka á móti gögnunum og vista þau sem skrá á harða diskinum.
Ég er með vél frá Sony sem tekur á mini-DV spólur og skrárnar sem koma úr henni eru rúm 12 Gb klukkutíminn en það eru .avi skrár með lítilli þjöppun.


Vona að ég sé ekki bara að bulla og að þú hafir eitthvert gagn af þessu.
Gangi þér vel



Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Video grabber vs gæði á video

Pósturaf Haxdal » Mán 19. Nóv 2012 09:39

vinsi2 skrifaði:<snip>
Vona að ég sé ekki bara að bulla og að þú hafir eitthvert gagn af þessu.
Gangi þér vel

Þetta stemmir, þú tengir dv vélar bara með Firewire tengi við tölvuna og notar forrit einsog Windows Movie Maker til að recorda videoið.
source : Hef oft breytt dv spólum yfir í movie fæla til geymslu. Ef það er notuð fartölva þá er best að recorda á flakkara, fartölvudiskar eru (nema það sé ssd) yfirleitt ekki með nógu gott performance til að halda undan skrifinu á diskinn án þess að missa ramma.


Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <


Höfundur
HómerZim
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Þri 15. Des 2009 18:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Video grabber vs gæði á video

Pósturaf HómerZim » Mán 19. Nóv 2012 22:02

Takk fyrir góð svör.

Ég gerði mér ekki grein fyrir að ég væri með digital "skrá" á filmunni. ég var einhvernveginn fastur í að hugsa að þetta sé bara filma :(
Ég downloadaði windows movie maker, en það neitar að taka við nokkru frá usb video grabbernum. Ég þarf þá að verða mér útum eitthvað firewire dæmi eins og þið talið um og prófa það þannig.




DerrickM
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Þri 09. Okt 2012 17:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Video grabber vs gæði á video

Pósturaf DerrickM » Mán 19. Nóv 2012 23:09

já verður að nota firewire