Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu

Ég er með HDD í tölvunni sem er skilgreindur sem (SAMSUNG SAMSUNG HD103SI SCSI Disk Device (RAID) en allir hinir eru (SAMSUNG SAMSUNG HD103SJ ATA Device (SATA). Er mikið mál að breyta þessu þannig að þeir séu allir eins skilgreindir (tengdir) þ.e. (SATA)?
i5 8600K CPU @ 3.60 GHz - Gigabyte Z370M D3H - GTX 1050 D5 2GB - Samsung 970 EVO M.2 250GB - ADATA 16GB DDR4 3000 MHz - Seasonic Prime Platinum 850W - Noctua NH-D 15 - ASUS VC279H 27" IPS - Fractal Design Define R5
-
AntiTrust
- Stjórnandi
- Póstar: 6379
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 173
- Staða: Ótengdur
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
Ert væntanlega með þennan disk tengdan í annan HDD controller á MBinu?
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
Ég er með fimm aðra diska í tövukassanum og hélt að allir sex diskarnir væru eins tengdir
Er þetta spurning um tenginguna við móðurborðið eða hvað 
i5 8600K CPU @ 3.60 GHz - Gigabyte Z370M D3H - GTX 1050 D5 2GB - Samsung 970 EVO M.2 250GB - ADATA 16GB DDR4 3000 MHz - Seasonic Prime Platinum 850W - Noctua NH-D 15 - ASUS VC279H 27" IPS - Fractal Design Define R5
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
Þetta er spurning um stillinguna á þeirri diskastýringu sem diskurinn er tengdur.
Borðið þitt er með 4x mismunandi SATA diskastýringum, 1x með 6x SATA2, 1x með 2x SATA2 tengjum, 1x með 2x eSATA (í raun bara SATA2 stýring) og svo að lokum 1x með 2x SATA3 tengjum. Afsakaðu ef þetta er ruglingslegt hjá mér.
En s.s. diskurinn sem er þarna stakur hjá þér virðist vera tengdur á stýringu sem er með RAID enable-að og kemur því fram sem SCSI diskur með RAID function.

Starfsmaður Tölvutækni.is
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
Get ég breytt þessu og þá hvernig? Eða er þetta dæmi fyrir fagmann 

i5 8600K CPU @ 3.60 GHz - Gigabyte Z370M D3H - GTX 1050 D5 2GB - Samsung 970 EVO M.2 250GB - ADATA 16GB DDR4 3000 MHz - Seasonic Prime Platinum 850W - Noctua NH-D 15 - ASUS VC279H 27" IPS - Fractal Design Define R5
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
karvel skrifaði:Get ég breytt þessu og þá hvernig? Eða er þetta dæmi fyrir fagmann
Af hverju viltu breyta þessu?
En annars er þetta bara stilling inn í BIOS, en ef þetta er diskur sem er með boot-upplýsingum eða einhverju þess háttar fyrir stýrikerfið að þá máttu ekki breyta þessu nema vera búinn að breyta registry í Windows sem samsvarar breytingunni fyrirfram....
Starfsmaður Tölvutækni.is
-
methylman
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 921
- Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
- Reputation: 17
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
lestu manual inn sem kom með borðinu BIOS kaflann þá kemur þetta, en annars skiftir þetta engu máli varðandi hraða slíkt
Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
Búinn að reyna með hjálp "User´s Manual" en næ ekki að leysa þetta
Er einhver nákvæmari aðstoð í boði
Já Klemmi, það er von að þú spyrjir en ég er einhvernveginn búinn að einsetja mér að leyfa smámunaseminni að ráða hér för 
Já Klemmi, það er von að þú spyrjir en ég er einhvernveginn búinn að einsetja mér að leyfa smámunaseminni að ráða hér för 
i5 8600K CPU @ 3.60 GHz - Gigabyte Z370M D3H - GTX 1050 D5 2GB - Samsung 970 EVO M.2 250GB - ADATA 16GB DDR4 3000 MHz - Seasonic Prime Platinum 850W - Noctua NH-D 15 - ASUS VC279H 27" IPS - Fractal Design Define R5
-
methylman
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 921
- Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
- Reputation: 17
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Röng skilgreining (tenging) á HDD í tölvu
Engin nákvæmari aðstoð í boði í fjarvinnu nei.