IceCaveman skrifaði:Þótt það kosti meira ættirðu að fjárfesta í hljóðkorti með boxi, það eru mun betri hljóð .. í þeim ...
Rangt, nú býst ég við að þú sért að tala um Audigy kortin þar sem lítill I/O kassi fylgir með. Í því tilfelli er enginn ábáti af þessum kassa annar en auknir tengimöguleikar sem eru reyndar mjög lítils virði (hver notar MIDI tengi (?) og svo er SPDIF yfir COAX miklu betra en yfir ljósleiðara).
Það er að vísu auka A/D breytir í kassanum fyrir þá sem hafa áhuga á að taka upp en ég hef hvergi heyrt að það sé betri gæði með honum heldur en þegar tengið á hljóðkortinu er notað. D/A breytirinn er hinsvegar á hljóðkortinu sjálfu og hljóðið er því flutt með hliðrænum hætti yfir í kassann og því
verra að tengja hátalara og heyrnartól við hann.
Þessvegna er það hin mesta peningasóun að kaupa Platinum útgáfuna af Audigy og Audigy2. USB-útgáfan er einfaldlega svottan brandari að ég ætla ekki að eyða orðum í hana en fyrir þá sem þurfa USB-hljóðkort eru M-audio USB-kortin tvímælalaust miklu betri kostur en Audigy2 USB.
Fyrir þá sem spá í hljóðgæðum eru bestu kaupin í Revo kortinu (breytir t.d. ekki 44khz hljóði í 48khz eins og SB-kortin) en Audigy2 er aðeins betra fyrir tölvuleiki, sérstaklega fyrir þá sem eru með marga hátalara.