Skjár - vantar ráðleggingar


Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Skjár - vantar ráðleggingar

Pósturaf Palm » Fös 12. Mar 2004 11:29

Ég er að spá að fara að kaupa mér skjá - vantar smá ráðleggingar.

Ég er mikið að vinna ljósmyndir og vil að hann sé góður í slíkt þ.e. skarpur og skýr.
Mér skilst að þunnir skjáir komi ekki til greina þar sem á þeim skiptir máli frá hvaða sjónarhorni er horft á skjáinn sbr. fartölvurskjáir - eru ekki annars allir þunnir skjáir þannig?
Líklega er best að fá einhvern sem er með flötum skjá þar sem ekki þarf að stilla tíðnina - held það sé betra að horfa á slíka skjái.

Mér býðst að kaupa skjái á góðum kjörum frá þessari vefsíðu:

21"
http://www.dustin.se/default.asp?ORIGIN ... upList.asp? GROUP1=BILDSK%C4RMAR%26GROUP2=CRT%26GROUP3=21+TUM%26SHOW=picture

19"
http://www.dustin.se/default.asp?ORIGIN ... upList.asp? GROUP1=BILDSK%C4RMAR%26GROUP2=CRT%26GROUP3=19+TUM%26SHOW=picture

Eru einhverjir skjáir þarna (helst 19") sem þið getið mælt með - ekki benda bara á þann dýrasta. :)

Palm




Cras Override
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 379
Skráði sig: Sun 28. Des 2003 01:01
Reputation: 0
Staðsetning: tölvuheiminum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Cras Override » Fös 12. Mar 2004 14:27

sko ég hef ekki mikið vit á þessu en með flata skjái þá er það þannig að ef að þú ert með svo kallaðan silicon skjá skilst mér að etta heiti þá skiptir ekki máli hvar þú horfir á hann.


MESS WITH THE BEST DIE LIKE THE REST

Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Fös 12. Mar 2004 18:26

Fyrir ljósmyndavinnslu skaltu ekki kaupa neitt annað en PRO útgáfur af Trinitron eða DiamondTron (frá Mitsubishi/NEC).

Besti skjárinn á þessum stað er að sjálfsögðu Sony F520 en hann er oggulítið dýr :)

Ef við lítum frekar á 19" skjáina þarna myndi ég hiklaust taka LACIE ELECTRON 19 BLUE IV. Lacie skjáirnir eru sérstaklega hannaðir fyrir grafíkvinnslu og það fylgir meira að segja svona húdd á skjáinn til að draga úr speglun. Hann er meira að segja á ágætis verði. Annar mögulegur kostur væri Viewsonic G90F en ég myndi miklu miklu frekar taka Lacie skjáinn.

Þarftu annars endilega að kaupa frá þessum stað? Í flestum löndum er hægt að fá Mitsubishi Diamond Pro 930SB á lægra verði en Lacie skjáina og ef ég man rétt notar Mitsubishi nýrri týpu af DiamondTron túbunum en Lacie. Það er líka heilmikill plús að geta séð skjáinn áður en maður kaupir því engir tveir CRT skjáir eru alveg eins.
Síðast breytt af skipio á Fös 12. Mar 2004 22:10, breytt samtals 2 sinnum.




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 996
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 46
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Fös 12. Mar 2004 20:16

Ef þú villt afbragðsmynd þá mæli ég með CTX professional línunni (trintron). Þeir eru á góðum prís líka.

Með túbu frá Sony, ég á PR705F...og það er skýr skjár ! Margir vinir mínir voru að eyða minna í sína skjái, en í staðinn voru þeir með 19" skjái, en þessi 17" ég á..þá hef ég aldrei á æfi minni séð skjá rúlla upp svona mörgum skjáum í gæðum.


Hlynur


gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Fös 12. Mar 2004 20:36

Ég er með 3 ára gamlan 17" CTX PR711FL og ég er svona máturlega ánægður með hann. Ég plana ekki að kaupa nýan næsta árið allavega.

En það er eitt vandamál, mér finnst hann einstaka sinnum flökta dáldið þegar hann er búinn að vera í gangi of lengi (of lengi as in ekki búið að ýta á kveikja/slökkva takkann nokkra daga í röð, jafnvel viku) :roll:




Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Palm » Fös 09. Apr 2004 08:17

Takk kærlega fyrir þessar ráðleggingar.
Maður getur alltaf treyst á ykkur.

Ég var bara að sjá svörin frá ykkur núna - treysti á það að ég fengi póst þegar það kæmi svar en - maður fær víst bara póst ef einhver svarar manns eigin póst ekki ef annað svar kemur á þráðinn - þið hafið sem sagt allir svarað svarinu.

Já mig grunaði að sony skjárinn væri ansi góður en hann er held ég aðeins of dýr enn sem komið er.

Ég þarf svo sem ekkert að kaupa frá þessari síðu en ég get fengið vsk-inn af og smá afslátt af listaverði ef ég kaupi þar.

Ég ætla að skoða þessa Trinitron eða DiamondTron skjái aðeins betur - einnig þennan LACIE skjá.
Já ég mun reyna að skoða skjáinn áður en ég kaupi hann - vil ekki kaupa án þess að horfa á hann.

Palm




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 996
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 46
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Fös 09. Apr 2004 08:38

Palm skrifaði:Takk kærlega fyrir þessar ráðleggingar.
Maður getur alltaf treyst á ykkur.

Ég var bara að sjá svörin frá ykkur núna - treysti á það að ég fengi póst þegar það kæmi svar en - maður fær víst bara póst ef einhver svarar manns eigin póst ekki ef annað svar kemur á þráðinn - þið hafið sem sagt allir svarað svarinu.

Já mig grunaði að sony skjárinn væri ansi góður en hann er held ég aðeins of dýr enn sem komið er.

Ég þarf svo sem ekkert að kaupa frá þessari síðu en ég get fengið vsk-inn af og smá afslátt af listaverði ef ég kaupi þar.

Ég ætla að skoða þessa Trinitron eða DiamondTron skjái aðeins betur - einnig þennan LACIE skjá.
Já ég mun reyna að skoða skjáinn áður en ég kaupi hann - vil ekki kaupa án þess að horfa á hann.

Palm


Bara að benda þér á, að CTX skjáirnir eru með Sony túbu.


Hlynur


vjoz
Fiktari
Póstar: 86
Skráði sig: Sun 18. Maí 2003 11:44
Reputation: 0
Staðsetning: Selfoss
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf vjoz » Fös 09. Apr 2004 12:52

Það eru ekki allir CTX skjáir með Sony túpu, bara sumar týpur,

eina ég get sagt þér er að googla úr þér augun, og lesa "users reviews" útum allt.

prófaðu líka að slá inn skjátýpuna sem þú ert að skoða á google og bæta við einhverjum orðum einsog "problem" "flicker" "bad" "pros and cons" osfrv. - þá ættirðu að finna einhverjar reynslusögur frá fólki, þó það sé ekki nema bloggaðar hugleiðingar um gæði eða galla skjásins.

Tékkaðu á því, þú ættir að komast langt með það að sjá hvað af þessum skjám eru töff og hverjir ekki.



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Fös 09. Apr 2004 14:59

Palm skrifaði:Takk kærlega fyrir þessar ráðleggingar.
Maður getur alltaf treyst á ykkur.

Ég var bara að sjá svörin frá ykkur núna - treysti á það að ég fengi póst þegar það kæmi svar en - maður fær víst bara póst ef einhver svarar manns eigin póst ekki ef annað svar kemur á þráðinn - þið hafið sem sagt allir svarað svarinu.

Já mig grunaði að sony skjárinn væri ansi góður en hann er held ég aðeins of dýr enn sem komið er.

Ég þarf svo sem ekkert að kaupa frá þessari síðu en ég get fengið vsk-inn af og smá afslátt af listaverði ef ég kaupi þar.

Ég ætla að skoða þessa Trinitron eða DiamondTron skjái aðeins betur - einnig þennan LACIE skjá.
Já ég mun reyna að skoða skjáinn áður en ég kaupi hann - vil ekki kaupa án þess að horfa á hann.

Palm

Bara svo það sé alveg ljóst; það eru fullt af framleiðendum sem nota pro túbur af Sony Trinitron eða Mitsubishi Diamondtron, s.s. Lacie, Viewsonic, Iiyama, Samsung, CTX jú, og margir fleiri.

Ef ég væri að kaupa mér 19" skjá myndi ég frekar fá mér skjá með Diamondtron túbu heldur en Trinitron en ég myndi skoða báða möguleika ef ég væri að kaupa 20"+ skjá. Besti 21" skjárinn fyrir grafíkvinnslu (fyrir utan rándýra skjái frá Barco o.s.frv.) er t.a.m. frá Sony en hann kostar um 200.000 kr.