Ég læt mér fátt um finnast, málið er að FX-örrarnir frá AMD áttu alltaf að vera flaggskipið hverju sinni og eingöngu fyrir þá sem þurfa algjörlega að eiga það allra besta á hverjum tímapunkti. AMD hafa ekki næga framleiðslugetu til að annað eftirspurn ef að þeir lækka verðið á FX-örrunum, þá þurfa þeir að fækka topp Opteron örgjörvunum í staðinn (þeir eru í raun einn og sami örgjörvinn).
Clawhammer kjarnarnir eiga ennþá eftir að lækka í verði með tilkomu nýrra örgjörva svo að við þessi venjulegu getum eignast þá fyrir eðlilegan pening.
Síðan er FX-51 ódýrari en bæði P4EE 3.4GHz og P4EE 3.4GHz þannig að mér finnst ekkert hræðilegt við þetta, Athlon64 3400+ er hvort eð er næstum jafn snöggur og stóri bróðir sinn.
Síðan fá ódýrari Athlon64 kjarnarnir bráðum dual channel líka með tilkomu socket 939.
Svo, engir ódýrir FXar. Hverjum er ekki sama
