Varið ykkur á Celeron


Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Varið ykkur á Celeron

Pósturaf wICE_man » Fös 20. Feb 2004 16:46

Þetta eru reyndar gamlar fréttir en samkvæmt úttekt sem gerð var á Anandtech.com eru Celeron örgjörvarnir arfaslakir svo vægt sé til orða tekið. 2.6GHz Celeron er mun hægvirkari en 1.6GHz Duron (eða 1.4GHz ef því er að skipta) en kostar tvöfalt meir Í sim city 4 er munurinn t.d. yfir 30%!!!

http://www.anandtech.com/cpu/showdoc.html?i=1927

Ástæða þessa er míkróskópískt skyndiminni þeirra (128KB L2) auk langrar pípunar í örgjörvanum, þ.e. 20 stig. Já og auðvitað 400Mhz kerfisbrautin sem er frá dögum Willamette kjarnans, (þess vangefna amlóða, blessuð sé minning hans:)) og leyfir ekki hærri RAM hraða en DDR266.

Duroninn er reyndar með jafn litlu L2 minni, 128KB en er auk þess með 64KB L1 minni sem bætist þar ofan á ólíkt Pentíum hönnuninni þar sem það er inclusive. Auk þess hefur hann ekki takmarkanir fyrir hraðan á RAMinu og miklu styttri pípun 12 stig ef ég man rétt.

Ég býst við að þetta séu engar stórfréttir en ég er þó að sjá menn hér á vefnum sem hafa orðið fyrir því óláni að kaupa sér Celeron.

Ég vil því benda mönnum á að skoða alltaf staðreyndirnar áður en þeir fara að versla sér tölvur. Bestu síðurnar til þess eru að mínu mati:

Anandtech.com: Hlutlæg og nákvæm umfjöllun um nýjasta tölvubúnað hverju sinni

Tomshardware.com: Einhverjir Intel fan boys í hópi dálkahöfunda en hafsjór upplýsinga í góðri framsettningu.

Theinquirer.net: Fyrstir með fréttirnar, uppfærð stöðugt yfir daginn, framsettningin er þó ekki jafn þægileg og hjá Tomma og Anand.



Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Fös 20. Feb 2004 16:50

Segðu þeim þetta strákunm sem eru stöðugt að reyna að verja tölvulistan fyrir að selja celeron örgjörva sem venjulega P4 örgjörva. setja svo Celeron á eins óáberandi stað og hægt er




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Lau 21. Feb 2004 11:30

úff, tölvulistinn og celeron er nú bara óttalega mikið drasl. Þegar ég uppfærði var ég næstum því búinn að kaupa mér Celeron. Síðan fór maður að fræðast um hann og ég tók frekar AMD :)



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17031
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Lau 21. Feb 2004 11:32

Hey það er ekki hægt að bera AMD og Celeron saman, Celeron er fyrst og fremst hugsaður fyrir létta vinnslu svo sem ritvinnslu og bókhaldsforrit, meðan AMD er fyrst og fremst leikja örri.




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Lau 21. Feb 2004 11:55

GuðjónR skrifaði:Hey það er ekki hægt að bera AMD og Celeron saman, Celeron er fyrst og fremst hugsaður fyrir létta vinnslu svo sem ritvinnslu og bókhaldsforrit, meðan AMD er fyrst og fremst leikja örri.


nei, celeron er bara fake örgjörvi, svona pentium að haga sér eins og tölvulistinn og BT. Af hverju segja þeir að örgjörvinn sé þetta mörg mhz. Það veit að flestir tölvunotendur horfa bara á 3 tölur. Mhz, minnið og diskinn.

s.s. ef það er til sölu 3ghz vél með 1gb minni og 120gb disk þá er það það eina sem fólk horfir á. Svo er þetta kannski celeron 3ghz, sdram 133 minni og 5200 snúninga diskur.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17031
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Lau 21. Feb 2004 13:08

Icarus ef ég ætti að horfa á þessi rök þín þá myndi ég frekar segja að AMD væri fake örri...
Mhz talan hans er allt önnur en að nafnið gefur í skyn...
t.d. Amd Athlon 2800XP Barton (2.083GHz) <---þeir sem ekki vita betur gætu haldið að þetta væri 2.8Ghz örri (XP2800).
Þannig að hver er að feika hvað ?




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Lau 21. Feb 2004 13:47

GuðjónR skrifaði:Icarus ef ég ætti að horfa á þessi rök þín þá myndi ég frekar segja að AMD væri fake örri...
Mhz talan hans er allt önnur en að nafnið gefur í skyn...
t.d. Amd Athlon 2800XP Barton (2.083GHz) <---þeir sem ekki vita betur gætu haldið að þetta væri 2.8Ghz örri (XP2800).
Þannig að hver er að feika hvað ?


þeir hafa aldrei sagt að örgjörvinn sé 2,8 ghz og búð sem myndi segja það væri bókstaflega að ljúga, en það er alveg hægt að segja að celeron sé 2,8ghz sem gæti verið rétt en þá er ekki verið að "ljúga" heldur leyna mikilvægum upplýsingum.



Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Lau 21. Feb 2004 13:52

Miðað við AMD nöfnin þá ætti 2500mhz Celeron að heita XP 1400+




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Lau 21. Feb 2004 14:27

IceCaveman skrifaði:Miðað við AMD nöfnin þá ætti 2500mhz Celeron að heita XP 1400+



hehe, góður punktur.



Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Lau 21. Feb 2004 14:32

IceCaveman skrifaði:Miðað við AMD nöfnin þá ætti 2500mhz Celeron að heita XP 1400+
:lol:




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Lau 21. Feb 2004 17:15

IceCaveman skrifaði:Miðað við AMD nöfnin þá ætti 2500mhz Celeron að heita XP 1400+

XP 1600+ ef AMD seldi þá




Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Sun 22. Feb 2004 02:05

Hey það er ekki hægt að bera AMD og Celeron saman, Celeron er fyrst og fremst hugsaður fyrir létta vinnslu svo sem ritvinnslu og bókhaldsforrit, meðan AMD er fyrst og fremst leikja örri.


Tja, ef svo væri þá mættu þeir kosta svona 30% af því sem þeir kosta núna. Málið er að hann er gjarnan seldur sem leikja örgjörvi, og þeir eru verðlagðir á sama bili og XP örrarnir sem er hlægilegt þar sem XPinn er tvöfalt hraðari ef við berum saman XP2500+ og celeron 2600MHz.

Varðandi "preformance-raiting" hjá AMD þá verð ég að segja að það þær hafa snúist dálítið í höndunum á þeim. Þetta er heiðarleg tilraun til að gefa neytandanum hugmynd um raunverulega afkastagetu. Þær voru í upphafi afar hófsamar þar sem 1700+ var oftar en ekki afkastameiri en 2000MHz Pentium 4. Þetta breyttist skyndilega með tilkomu Northwood sem er sennilega best heppnaði pentium kjarninn hingað til. 533MHz FSB, 512KB L2 cache og tilkoma fleirri forrita með SSE2 stuðningi gerðu það að verkun að á einni nóttu urðu þessar nafngiftir hjá AMD hlægilegar.

Ef þú vilt skoða hvernig þetta var í upphafi:

http://www.anandtech.com/cpu/showdoc.html?i=1554

Þeir löguðu þær aftur með 2400+ 2600+ og 2800+ en síðan rugluðust þær aftur þegar Pentium örgjörvarnir fengu 800MHz FSB. Þess ber þó að geta að tölvuverslanir voru ekkert að auglýsa muninn á 2.8a og 2.8c meðan þeir voru að losa sig við þann fyrr nefnda. Þær hafa svo aftur skánað með Athlon64 örgjörvunum sem standa vel undir nafni, sérstaklega í leikjavinnslu, ég sé það ekki breytast með tilkomu Prescott svo að ég held að þær séu frekar til góðs en ills.