Pósturaf Snikkari » Þri 17. Feb 2004 16:45
Ég er með svona zalman heatsink og viftu á FX5700 Ultra korti.
EKKI fá þér svona ef þú ert að yfirklukka kortið.
Það fer engin kæliplata á minnið.
Kortið er original 475/906.
Ég náði kortinu mínu uppí 550/1000 með original kælingunni, en bara 510/940 með zalman heatsinkinu, samt lappaði ég og nota AS5.
Þetta er nánast hljóðlaust en samt sem áður jókst hitinn töluvert.
Skoðaðu þetta vel áður þú gerir nokkuð, það hljóta einhverjir aðrir en ég að hafa gert þetta.
CM Scout 2 | | | Corsair RM850x
G.Skill 2x8GB Trident Z 3200Mhz | Samsung 870 EVO plus M.2 1TB |