Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Skjámynd

Höfundur
Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1066
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf Hargo » Mið 11. Ágú 2010 01:14

Konan á Macbook fartölvu og er farin að kvarta undan því að tölvan sé of hæg þegar hún er að vinna í mörgu í einu. Ég ætlaði því að stækka vinnsluminnið hjá henni en núna er hún með 1GB DDR2 667MHz (2x 512MB) í RAM.

Ég fór því á stúfana og ætlaði að skella mér á 2x1GB kubba fyrir hana. Fékk nett áfall þegar ég sá að verðið á svoleiðis grip er 23.900 hjá computer.is og ég myndi þurfa tvö svoleiðis stykki, þar með samtals 47.800kr.

Er þetta svona dýrt því þetta er eitthvað official Apple vinnsluminni? Er lítið inn í þessum Apple málum, hélt það væri bara jafn ódýrt að uppfæra vinnsluminnið í þessum vélum eins og PC.

Fann Super Talent 2GB vinnsluminni í Apple fartölvur hjá buy.is á 8.990kr. Er maður ekki alveg safe að taka það? Er það þá ekki Apple certified eða eitthvað álíka?

Er búinn að vera að reyna að senda þeim hjá buy.is póst en þeir svara mér aldrei...




darkppl
Gúrú
Póstar: 543
Skráði sig: Mán 12. Júl 2010 21:40
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf darkppl » Mið 11. Ágú 2010 03:31

þú getur hríngt í buy.is það er símanúmer á síðuinni


I7-8700K|Corsair H-150i|Asus Maximus X Hero (Wifi) |32GB G.Skill Tridend Z RGB|GTX 1080ti |
Coolermaster Mastercase 5|

Skjámynd

einarhr
Of mikill frítími
Póstar: 1994
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 266
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf einarhr » Mið 11. Ágú 2010 07:26

Ég veit ekki betur en að það séu standard DDR2 667mhz vinnsluminni í þessum MacBook Pro


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |


oskarom
Ofur-Nörd
Póstar: 272
Skráði sig: Mán 05. Mar 2007 18:51
Reputation: 12
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf oskarom » Mið 11. Ágú 2010 11:20

Hei þetta er vel orðað hjá þér... Apple = dýrt spaug.

Takk fyrir þetta, núna get ég farið að vinna :)

kv.
Oskar




Kristján Gerhard
Gúrú
Póstar: 522
Skráði sig: Mið 17. Maí 2006 20:27
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf Kristján Gerhard » Fös 13. Ágú 2010 20:31

Sæll,

Þú þarft ekki Apple certified minni eða neitt sérstakt. Það eina sem að þú þarft að passa er að kaupa
sama pc-rating og er í vélinni. Samkvæmt öllu ætti að vera hægt að kaupa betra minni og það
keyri bara á lægri klukkuhraða en mín reynsla er að svo er ekki.

KG




aevar86
Nörd
Póstar: 137
Skráði sig: Mán 24. Maí 2010 00:49
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf aevar86 » Fös 13. Ágú 2010 20:37

Þetta er dýrt spaug..
Ég uppfærði tölvuna hjá pabba mínum með "venjulegum" ddr2 kubbum og það er komið ár síðan, þannig að ég held þú sért alveg safe þó þú
látir þá ekki ræna þig..



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7174
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1047
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf rapport » Fös 13. Ágú 2010 22:10

En veistu, ef þu kaupir ekki þessa á 24þ þá mun enginn raunverulegur Apple maður geta horft á þig sömu augum aftur...

Þetta er bara svik og prettir hjá þér að gera þetta, ótrúlegt...

Það vita ALLIR að APPLE vörur með þessu logoi eru bara bestar og það þarf ekkert að ræða frekar, það er ekki séns að fá jafn góða eða betri vöru fyrir minni pening...



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Ágú 2010 22:16

rapport skrifaði:Það vita ALLIR að APPLE vörur með þessu logoi eru bara bestar og það þarf ekkert að ræða frekar, það er ekki séns að fá jafn góða eða betri vöru fyrir minni pening...

heyr heyr !!!



Skjámynd

Höfundur
Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1066
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf Hargo » Fös 13. Ágú 2010 22:18

Spurning hvort konan fái ekki bara vírus í tölvuna með því að vera með non-Apple vinnsluminni, svona í stíl við áróðurinn sem er í gangi í útvarpinu núna :lol:

Jón átti að skila ritgerð. Kvöldið fyrir skiladaginn fékk hann vírus. Hann átti ekki Apple tölvu....or something like that.

Búinn að finna hentugt vinnsluminni á ebay stores sem ég ætla að kaupa. Það er meira að segja frá Apple en er notað þannig að ég fæ það ódýrt. Þannig að ég mun ekki svíkja lit (já eða konan öllu heldur, ég á Thinkpad) og hún mun vera áfram Apple certified. Thank God for that...



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7174
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1047
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf rapport » Fös 13. Ágú 2010 22:35

GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Það vita ALLIR að APPLE vörur með þessu logoi eru bara bestar og það þarf ekkert að ræða frekar, það er ekki séns að fá jafn góða eða betri vöru fyrir minni pening...

heyr heyr !!!


m.v. undirskriftina þína þa ertu ekki að fatta að ég er að reyna vera kaldhæðinn... :evil:



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1258
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 141
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Apple vinnsluminni - dýrt spaug?

Pósturaf Minuz1 » Fös 13. Ágú 2010 22:43

rapport skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Það vita ALLIR að APPLE vörur með þessu logoi eru bara bestar og það þarf ekkert að ræða frekar, það er ekki séns að fá jafn góða eða betri vöru fyrir minni pening...

heyr heyr !!!


m.v. undirskriftina þína þa ertu ekki að fatta að ég er að reyna vera kaldhæðinn... :evil:


ohhh ég held að viti hvað hann er að tala um....bara eitthvað að villast gæðingurinn :D


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það