1920x1080 eða 1920x1200


Höfundur
eythorion
Fiktari
Póstar: 92
Skráði sig: Fös 16. Júl 2010 14:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

1920x1080 eða 1920x1200

Pósturaf eythorion » Fim 29. Júl 2010 13:00

Hvort er betra? Ég á örugglega eftir að spila aðalega leiki en kannski gera einhverja myndvinnslu.
Ég var að skoða þessa tvo skjái og fyrir utan stærð þá sýnist mér mesti munurinn vera upplausnin. Er það þess virði að borga 15þ meira fyrir 25,5" og 1920x1200?

http://buy.is/product.php?id_product=1610
http://buy.is/product.php?id_product=123




Gilmore
spjallið.is
Póstar: 416
Skráði sig: Mán 05. Feb 2007 14:44
Reputation: 4
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: 1920x1080 eða 1920x1200

Pósturaf Gilmore » Fim 29. Júl 2010 13:10

Mér finnst það ekki skipta máli, en flestir eru hrifnari af 1920x1200.


Intel 486 80mhz, 2MB RAM, VGA 256k skjákort, Soundblaster AWE 32, WD 730MB HDD, 28k modem, 14" Samsung monitor.

Skjámynd

audiophile
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1614
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 149
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: 1920x1080 eða 1920x1200

Pósturaf audiophile » Fim 29. Júl 2010 15:43

Fáðu þér ódýrari skjáinn eða 24" skjá sem er þá 1900x1200. Þessir skjáir sem eru á bilinu 25-28 tommur eru of stórir fyrir þessa upplausn. Semsagt pixlarnir eru bara stærri. Það er sagt að 24" séu með fullkomið pixel pitch fyrir 1900x upplausn en 26" og stærri þurfa helst 2560x.

Ég var voða skeptískur á að fá mér 16:9 skjá (1900x1080) vegna þess hve maður tapar pixlum á hæðina miðað við 16:10.......en fyrir rest lét ég verðið ráða og fékk mér Samsung 2494 hjá Buy.is og hef aldrei litið tilbaka. Þetta er æðislegur skjár sem kostaði um 45þ. og hef aldrei vantað fleiri pixla á hæðina og ég er áhugaljósmyndari sem nota Photoshop mikið.

1900x1080 er komið til að vera í ódýrari skjám í dag og það er bara ekkert að því. Ef þú vinnur við myndvinnslu væri það annað, enda myndirðu væntanlega fá þér 30" IPS skjá í það, sem kostar hálfa millu.....svo við skulum ekkert tala um það. :lol:


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: 1920x1080 eða 1920x1200

Pósturaf mind » Fim 29. Júl 2010 16:05

Er það þess virði að borga 15þ meira fyrir 25,5" og 1920x1200?
Nei. Ef vinnuplássið á skjánum myndi auka afköstin eða svipað mætti eflaust réttlæta auka peninginn.

Gæðalega séð ætti ekki að vera munur á skjáunum fyrir utan smíði og aukahluti. Þetta eru bæði TN panel skjáir sem er ódýrasta panelið og nær ekki að birta raunliti. Þó er það staðallinn í dag svo það er kannski ekkert sérstaklega athugunarvert.

Er sjálfur hrifnari af 1920 x 1200 upplausninni.



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2658
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 140
Staða: Tengdur

Re: 1920x1080 eða 1920x1200

Pósturaf svanur08 » Fim 29. Júl 2010 17:02

1920x1080 er dáldið meira wide heldur en 1920x1200 þetta er 16:9 vs. 16:10 þannig að 16:9 er wider alveg sama og sjónvörpin eru, ég er sjálfur með 1920x1200 en dauðlangar í 1920x1080 :)


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR

Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: 1920x1080 eða 1920x1200

Pósturaf Danni V8 » Fim 29. Júl 2010 18:29

Ég er búinn að vera í þónokkurn tíma með 1920x1080 og mér finnst það algjör snilld. Finnst langbest að geta náð í sumar FullHD myndir sem eru með akkurat sömu upplausn og skjárinn og passa þess vegna akkurat í hann, alveg borderless, í top gæðum.

En, ég hef lent í því að þegar myndir sem ég tek eru þannig að myndefnið passar akkurat inn í rammann, ekkert auka pláss, þá get ég ekki crop-að myndina til að breyta í 16:9 þannig að annað hvort kemur border að það klippist aðeins af myndinni þegar ég ætla að nota hana sem wallpaper.

Þar sem að myndavélin tekur ekki í 16:10 upplausn þá yrði sama sagan með þannig skjá en samt ekki eins slæmt, það væri hægt að redda fleyri myndum á þannig skjá.

En ég hef ekki ennþá átt 1920x1200 skjá svo ég get ekki sagt til um það hvort er betra, en miðað við mína reynslu á 1680x1050 skjánnum sem ég átti einusinni þá finnst mér 16:9 skemmtilegra að eiga, eiginlega bara út af borderless myndböndum.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x